Vera - 01.09.1986, Blaðsíða 3
BOÐORÐ
Inga Dóra Björnsdóttir er alltaf jafn dug-
leg viö að senda okkur hitt og þetta. Aörar
Verur-verur mættu taka sér hana til fyrir-
myndar! En hér er sem sagt enn eitt gull-
kornið að vestan þarsem Inga Dóra unir við
sitt um þessar mundir:
Bandaríkjakonan Mary Daly er senni-
lega mörgum íslenskum konum kunn.
Hún er prófessor í guöfræöi og heimspeki
viö Boston College en auk kennslustarfa
hefur hún unnið ötullega viö skriftir og
liggja eftir hana fjöldinn allur af greinum
og bókum um kvenréttindi- og jafnréttis-
mál. Þekktustu bækur hennar eru Gyn/
Ecology, The Church and the Second
Sex, Beyond God the Father, en síðasta
bók hennar heitir Pure Lust.
Mary Daly er mjög róttæk í hugsun og
hafa bækur hennar vakiö mikla athygli og
miklar deilur, en Mary hefur veriö mjög
gagnrýnin og harðorð um stööu kvenna í
heimspeki, guðfræöi, í kirkjunni og sam-
félaginu almennt. Hún hefur einnig sýnt
fram á hvernig tungumáliö er fjötraö karl-
legri hugsun og mikið gert aö því aö snúa
orðum við og leika sér meö merkingu
þeirra. Hún er mjög mikil kvenréttinda-
kona, svo mikil aö hún trúir því aö konur
veröi aö segja algjörlega skilið viö karl-
menn og skapa nýjan heim einar og
óstuddar, þar sé eina leiöin til að konur fái
raunverulegt frelsi. Þó deila megi um rétt-
mæti hugmynda hennar, þá leika alltaf
hressilegir og ögrandi vindar um Mary,
sem vekja alla til umhugsunar sem fyrir
þeim veröa. Mary hefur að undanförnu
deilt hart á kvenréttindakonur, kallar bar-
áttu þeirra gervi kvenréttindabaráttu því
hana skorti í raun alla ástríöu, reiöi og
kraft. Hún heldur því fram aö konur verði
aö vera stööugt á varðbergi og virkar viö
aö fletta ofan misrétti og óréttlæti af hvaöa
tagi sem er, hvenær og hvar sem er í heim-
inum.
Mary hefur í anda guðfræðinnar sett
fram fjögur boðorð, sem kvenréttindakon-
ur eiga að fylgja til þess aö gæta meö réttu
talist kvenréttindakonur og ættu þau að
vera okkur öllum hvatning.
Fyrsta boðoröiö hljómar svo:
Konur eiga að skynja og skilja aö
þær eru ekki eins og karlmenn. Þær
eiga að sjá það sem góöan kost, en
ekki slæman. Þær eiga að láta sína
kvenlegu eiginleika dafna og njóta
sín, vera tilfinninganæmar og skap-
andi, en um leið skynsamar og rök-
vísar.
Annaö boöorö:
Sannar kvenréttindakonur gera sér
gein fyrir þeim refsingum, sem þær
verða að sæta vegna baráttu sinn-
ar. Karlveldisþjóðfélagið mun aldrei
verölauna slíkar konur og því veröa
kvenréttindakonur aö geta tekiö.
Þriðja boðorð:
Sannar kvenréttindakonur finna til
samkenndar og samstööu meö öll-
um konum og eru tilbúnar að berj-
ast fyrir málstaö þeirra. Þegar konur
á Vesturlöndum heyra um slæma
meðferð kvenna í þriöja heiminum,
eiga þær ekki aö yppa öxlum og
segja, ,,já það er sinn siðurinn í
landi hverju“, heldur reyna aö
fremsta megni aö berjast fyrir rétt-
indum þessara kvenna.
Fjóröa boöorö:
Sannar kvenréttindakonur gera sér
grein fyrir því að þær eru og veröa
alltaf óvinsælar og allt er gert til aö
einangra þær.
Svo mörg voru þau orö, eöa öllu heldur
boöorð Mary Daly.
I.D.B.
EINSTÆÐ
Elsku Vera mín!
Má ég nota lesendabréfadálkinn þinn til
aö velta dálítið vöngum yfir orðasamband-
inu „einstæö rnóðir"? Þaö er eitthvaö við
síaukna notkun þess, sem fer alveg rosa-
lega í taugarnar á mér og ég held það sé
vegna þess, aö ég hef það á tilfinningunni,
aö orðin „einstæö móðir" sé aö veröa
stimpill yfir „karlmannslaus móðir“.
Það er stórkostlegra gjalda vert, aö
athygli sé vakin á slæmri aðstöðu heimila,
sem aðeins hafa eina fyrirvinnu og þaö
kvenkyns. Sú umræöa vekur athygli á
ólíkri aöstööu kynjanna á vinnumarkaðn-
um, vondri frammistööu valdhafa í dag-
vistunarmálum, skólamálum, launamál-
um og svo framvegis og svo framvegis og
ekki veitir nú af! En notkun orðanna ein-
stæö móöir finnst mér farin að vekja sam-
úö meö konum, sem ekki eiga sér eigin-
karl, sambýliskarl eöa fyrirvinnu — þær
mæöur, sem einar ala önn fyrir krökkun-
um sínum er veriö að gera vorkunnarverð-
ar, ekki vegna þess aö þær veröi aö lifa
meö göllum samfélagsins, heldur vegna
þess, aö þær búa einar, þ.e. karlmanns-
lausar!
Oröið einstæö er voöalega hlaöið orö,
frá því erstutt í ,,einstæðingur“, — aö ekki
sé nú talað um ,,einstæðingsskapur“.
Minnumst þess, aö þó nokkrar konur hata
beinlínis valiö sér þann kost aö eignast
barn án þess að föðurnum sé nokkuð
ætlað aö koma nærri uppeldi þess eöa
fyrirvinnu. Einnig þess, að margar mæöur
eru fráskildar, hafa sjálfar losað sig úr
vondu sambandi og aö þeim hefur sjaldn-
ast liöiö betur, jafnvel þó svo þær hafi
minna aö bíta og brenna. Það er réttur
konunnar líka aö lifa lifinu ein og sambúð-
arlaus, þ.e. karlmannslaus og við ættum
aö vera vel á veröi gagnvart allri vorkunn
í garð þeirra kvenna, sem taka sér þann
rétt í hendur. Sumar myndu kjósa heitiö
„frjáls móöir“ eöa „sérstök móöir“ fremur
en einstæö móöir! Aö hamra á „einstæð-
ingsskap" karlmannslausra kvenna gerir
þannig tvennt: þaö ýtir undir þau viöhorf
að konur geti ekki án karla verið og þaö
felur raunverulegar orsakir þeirra aö-
stæöna, sem makalausir foreldrar neyö-
ast til að búa við.
Þetta er nú sú niðurstaða, sem ég kemst
aö. En þaö verður líka aö segjast eins og
er, aö ekki hef ég hugmynd um hvaöa orö
viö ættum aö nota í staðinn fyrir einstæð
móðir!
Með kærri kveðju Malla.
vekur athygli á því að hægt
er að fá blaðið í áskrift
erlendis.
3