Vera - 01.09.1986, Page 15
•2,0
r&o-1
öí
Indland
nœst!
Eins og komiö mun haía
fram í fréttum var haldin
alþjóöleg kvennabóka-
hátíö í Noregi í júní s.l.
Nokkrar íslenskar konur
sœttu fœris að vera þar
meö, m.a. Vigdís Gríms-
dóttir rithöfundur. Hún
sagði frá því í viðtali viö
eitt dagblaðanna, hversu
slœleg þátttaka íslenskra
bókaútgefenda var, aö-
eins nokkrar bœkur á litlu
boröi í einu horninu. Nú
jœja, kannski tekur ein-
hver við sér nœst, en þaö
mun verða á Indlandi alla
leið! Ein 140 útgáfufyrir-
tceki frá 30 löndum sendu
fulltrúa og bœkur til sýnis,
meöal gesta voru Ger-
main Greer, Liza Alther,
Marie Cardinal, Nawal el
Saadawi, o.fl. Prógrammiö
barst Veru í hendur en
ekki fyrr en hátíðinni lauk
og voru þá mörg handar-
bökin nöguö. Þarna voru
fyrirlestrar og upplestrar,
m.a undir fyrirsögninni
„Aö skriía til aö frelsast",
starfshópar voru í gangi
um feminiska hugmynda-
frœði og um barnabók-
menntir o.fl. Það mun hafa
veriö algjör tilviljun aö
norsku stelpurnar stóöu aö
hátíðinni aö þessu sinni.
Ein skipuleggjendanna,
Elisabeth Bjelland segir
frá því í viötali viö Kvinne
aö hún og ein vinkona
hennar hafi veriö mjög
svekktar yíir því aö hafa
ekki komist á fyrstu al-
þjóölegu hátíöina, sem
haldin var í London 1984.
Því skriíuðu þœr skipu-
leggjurum þeirrar hátiðar
til að spyrja hvar og
hvenœr sú nœsta yröi.
Svarið sem þœr fengu var
einfaldlega: „Þið getiö haft
hana hjá ykkur"! Og það
varö úr. Elisabeth og vin-
konan höföu samband
við fleiri konur í útgáfu-
iðnaðinum í Noregi og
létu svo bara hendur
standa fram úr ermum.
Svona eiga konur aö
vera!
E.S.: Hver vill taka aö sér að
skipuleggja hópferö til
Indlands árið 1988?
Ms
Hin rómaöa og verðlaunaða (Pulitzer Price 1983)
skáldsaga „The Color Purple" eftir bandarísku skáld-
konuna Alice Walker mun vœntanleg í íslenskri þýð-
ingu í haust. Þaö er Forlagið sem gefur bókina út.
Varla er aö efa aö hér á landi verður bókinni jafn vel
tekið og annars staðar í Englandi hefur hún selst
betur en dœmi þekkjast til. Þar var þaö kvennafor-
lagið „The Women’s Press," sem gaf bókina út og í
grein í tímaritinu Women’s Review í júlí segir einmitt
frá því hversu erfiðlega því fyrirtœki gekk aö ná at-
hygli gagnrýnenda (annars en skribenta kvenna-
blaða og svartra), sem létu sér fátt um söguna f innast.
Þrátt fyrir það hefur bókin rokið út og orðið litlu og fá-
tœku kvennaforlagi mikil búbót. Sagan hefur nú
veriö kvikmynduö undir stjórn Steven Spielbergs,
sem haföi Alice Walker sér til hœgri handar viö kvik-
myndunina. Alice ku sátt við árangurinn. Það eru
tvœr áöur óþekktar leikkonur sem fara meö aðal-
hlutverkin, Whoopi Goldberg og Margaret Abery.
Kvikmyndin hefur slegiö í gegn vestan hafs og nú er
hún komin hingaö til lands.
Rosa Luxemburg
Önnur biómynd, sem gaman vœri að sjá er án efa
kvikmynd Margarethe von Trotta um Rosu Luxem-
burg. Rosa er leikin af Barböru Sukowa, sem fékk
reyndar verölaun sem besta leikkonan á kvik-
myndahátíðinni í Cannes í ár. Myndin rekur líí Rosu
Luxemburg síöustu árin, en Rose var myrt 1919. Von
Trotta haföi lengi látið sig dreyma um að gera mynd
um Rosu og segir í viðtali í ensku tímariti aö hún hafi
fyrst heyrt hennar getið í stúdentaóeiröunum árið
1968. Þá hafi mynd hennar skotið upp kollinum ásamt
meö myndum af Lenin og Marx. „Hún var eina konan
í hópnum, greinilega svo tilíinningarík en um leið
svo alvarleg. Ég haföi aldrei ímyndað mér aö finna
slíkt andlit meðal þessara manna og mér fannst sem
ég hlyti aö eiga eftir að rekast á hana. Þaö sem snart
mig var þessi kyrri kraftur í svipnum. E.t.v. reyndi ég
aö lœra af reynslu minni sem leikkonu þegar ég
reyndi aö skilja þessa konu, sem þrátt fyrir sinn póli-
tíska feril glataöi aldrei konunni í sjálfri sér." Og
Margarethe bœtir viö: „Já, það heföi verið erfitt fyrir
karl að gera þessa mynd, allt írá því jafnvel aö skriía
handritið. Rosu bœði dreymdi um það að eignast
börn og búa viö kyrrlátt sveitalíf annars vegar og svo
hins vegar aö taka þátt í byltingu. Aðeins konur
dreyma þannig og ég efast um aö karl-leikstjóri skilji
þetta. Auk þess held ég aö karl hefði valiö annað
hvort aö lýsa einkalífi hennar eöa stjórnmálaferlin-
um, ekki báðu í einu. Eingöngu konu gœti tekist að
blanda þessu saman og sýna báöum hliðum jafna
viröingu." ms
15