Vera - 01.09.1986, Síða 32
Arið 1985 komu 97.443 erlendir ferðamenn til ís-
lands, sem er 14.2% fleiri en árið 1984. Á síðastliðn-
um 3 árum hefur erlendum ferðamönnum fjölgað
jafnt og þétt, eða um 34.2% og á einum aldarfjórð-
ungi hefur tala erlendra ferðamanna meira en sjö-
faldast og jafnframt hafa íslendingar aukið ferðalög
um eigið land á þessu árabili. Og í ár þegar þessi orð i
eru skrifuð, (ágúst 1986), er fjöldi ferðamanna kom-
inn yfir 100 þúsund. Greinilegt er að ferðaþjónusta
er atvinnugrein í vexti á íslandi og má benda á að
tekjur af þessari atvinnugrein voru um 3 milljarðar
króna á síðasta ári. Árið 1984 voru tekjur af ferða-
þjónustunni um 2 milljarðar og skilaði svipuðum
gjaldeyristekjum og loðnuvinnsian og helmingi
meiri tekjum en járnblendiverksmiðjan á Grundar-
tanga.
Hik í stjórnvöldum
En hvemig er búið að ferðamálum hér á landi? Eru
t.d. til næg hótel, tjaldstæði og salerni til að anna þess-
um ferðamannastraumi. Eru til fullnægjandi leiðbein-
ingar fyrir ferðamenn um hvernig þeir eiga að umgang-
ast viökvæma náttúru landsins? Allt bendir til þess að
eitthvað hik sé á stjórnvöldum um framkvæmd þessara
mála hér á landi, svo ekki sé tekið sterkara til orða.
Feröamálaráö í svelti
Fyrir nokkrum árum var bundið i lög að ferðamálaráð
fengi 10% af árlegri vörusölu Frihafnarinnar i Keflavík
en þeirri löggjöf hefur ekki verið framfylgt. í ár fékk
ferðamálaráð rúmar 19 milljónir í sinn hlut, sem er eitt-
hvaö nálægt 15% af áætluðum tekjum ríkissjóðs af
flugvallaskattinum sem nýlega var hækkaöur um
200%. Þetta kom fram í máli Kristínar Halldórsdóttur
þegar hún mælti fyrir tillögu um úrbætur í ferðaþjónustu
í mars s.l., sem hún stóð fyrir ásamt þingkonum
Kvennalistans þeim Guðrúnu Agnarsdóttur og Guð-
rúnu J. Halldórsdóttur. Þingmennirnir Helgi Seljan,
Karvel Þálmason, Kolbrún Jónsdóttir, og Kristín S.
Kvaran voru meðflutningsmenn. Kristín benti einnig á
að ef ferðamálaráð hefði fengið það sem því ber sam-
kvæmt lögum hefðu það átt að fá um 40 milljónir. Fjár-
skortur ferðamálaráðs verður til þess að minna verður
um kynningar og sölustörfum erlendis á vegum ráðsins
og ekkert verður gert til að bæta aðstöðu ferðamanna
hér á landi.
32
•*
I