Vera - 01.09.1986, Qupperneq 34
HUSIN
sem konurnar eiga
Oft er maður spurður, ,,hvað er þessi Hlað-
varpi?" Og það eru bæði konur og karlar sem
spyrja þessarar spurningar. Hér skal því útskýrt
hvað ,,þessi Hlaðvarpi“ er.
Hlaðvarpinn er eign kvenna og stendur við Vesturgötu 3 í
Reykjavík. Hugmyndin að því að kaupa húseignir á Vesturgötu 3
varð til þegar hópur kvenna, sem náð hafði saman í kosningunum
1982, sátu úti íkvennahúsi á Hótel Vík og ræddu kvennamál. Þetta
var síðla veturs 1984 og í þessum hópi voru þær Guðný Gerður,
Gerla, Ingibjörg Hafstað og Guðrún Jónsdóttir.
Þær höfðu frétt af því að húsin að Vesturgötu 3 væru til sölu.
Fengu þær iðnaðarmenn til að skoða húsin og ákváðu síðan að
stækka þann hóp kvenna er standa skyldi að þessum kaupum. Hér
var ekki um neina flokkspólitíska ákvörðun að ræða og ákveðið var
að þessi kvennahús yrðu ekki rekin á pólitískum grunni.
Fundur var boðaður á Gauk á Stöng til að fá 30 konur til að vera
fyrstu stofnendur. Akveðið var að stofna hlutafélag og hafa hlutina
litla til að allar konur á Islandi sem vildu, gætu eignast hlut. Einnig
var ákveðið að aðeins konur gætu átt hlutabréf og konur skyldu
stjóma þessum húsum og starfseminni þar. Til að byrja með var
mikill hugur og mikil bjartsýni og næsti fundur var boðaður á
Naustinu í byrjun júní og þar var félagið Vesturgata 3 hf. stofnað.
Akveðið var að hver hlutur í hinu nýja hlutafélagi kvenna skyldi
vera 1.000 krónur. Sjö listakonur voru fengnar til að hanna hluta-
bréfin sjö. Ákveðið var að samtals skyldu 8.000 hlutir vera til sölu.
Reynt skyldi að ná til sem flestra kvenna á íslandi til að fjármagna
kaupin.
Arkitektar voru mjög áhugasamir og gerðu tillögur um breyting-
ar á húsunum. Þær mynduðu hóp og sýndu tillögur sínar í Ásmund-
arsal á Listahátíð kvenna.
Hlutafjárstöfnunin gekk hinsvegar ekki eins hratt og vel og gert
hafði verið ráð fyrir. Stofnfélögum fannst ekkert mál að fjármagna
níu milljónir á einu ári, en það var kaupverð húsanna. Þar sem hver
hlutur kostaði ekki meir en 1.000 krónur, gætu velflestar konur í
landinu eignast hlutabréf.
Ekki tókst að fjármagna kaupin með hluUifjársöfnun. Vegna
lélegra undirtekta kvenna varð að brúa bilið með lántökum. Þetta
tókst þó og þann 1. júlí s.l. var afsalið afhent með pomp og prakt.
Það ber þó ekki að skilja sem svo að Hlaðvarpinn sé á einhverju
flæðiskeri, Af fádæma elju hefur þeim konum sem að honum
standa tekist að koma megninu af húsunum í notkun og er nú rekið
þar leikhús, tveir myndlistarsalir, vinnustofur fyrir listamenn og þar
er skrifstofa Kvennaathvarfsins. Auk þessa er húsnæði leigt út til
þriggja verslana sem konur eiga og reka.
I myndlistarsal á 1. hæð íbakhúsi hafa verið skipulagðarsýningar
til 1. desember n.k. Um þessar mundir er það Anna Concetta
Fugaro sem sýnir og stendur sýning hennar til 15. ágúst. Þar næst
koma Helga Egilsdóttir og Örn Ingólfsson með samsýningu. Þá
verður Kári Schram með einkasýningu, þar á eftir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Guðrún Svava Svavarsdóttir og Guðmundur
Björgvinsson.
Alþýðuleikhúsið er um þessar mundir að sýna „Hin sterkari"
eftir Strindberg og byrjar í næstu viku að æfa nýtt íslenskt verk sem
skrifað hefur verið sérstaklega fyrir „Strindberghópinn“ svokall-
aða. Ennþá er það leyndarmál hvaða íslenskur höfundur er að
skrifa það verk. Um mánaðarmótin fara síðan tveir nýir einþáttung-
ar í æfingu og er stefnt að frumsýningu þeirra um mánaðarmótin
september/október.
Þessa dagana er verið að undirbúa námskeið sem á að halda í
Hlaðvarpanum í vetur. Margar góðar hugmyndir hafa komið og er
verið að vinna úr þeim. Námskeiðin verða rækilega auglýst síðar.
Ennþá eru til hlutabréf og eru konur þær sem ekki eiga hlut í
þessari lista- og menningarmiðstöð kvenna, eindregið hvattar til að
eignast hlut. Hlaðvarpinn er ekki á hausnum og það er því engin
áhætta sem fýlgir hlutabréfakaupunum.
Skrifstofa Hlaðvarpans er opin alla virka daga frá kl. 14—18 og
er þá hægt að kaupa hlutabréf. Framkvæmdastjóri er Súsanna
Svavarsdóttir og síminn er 19055.
S.S.
það hressir
BiHcjahatfió
34