Vera - 01.09.1986, Qupperneq 38
Myndin á aö sýna hvernig
Reykjavíkurborg kemur gesti
fyrir sjónir. Ung stúlka íslensk
kemur I heimsókn eftir 20 ára
fjarveru. Hún sest að um nokk-
urra mánaöa skeið hjá frænd-
fólki sínu sem er aö byggja í
sælureitnum Grafarvogi. Þau
vinna bæöi baki brotnu, eigin-
maðurinn í margfaldri vinnu,
en konan I illa launuðu fóstru-
starfi, aö sjálfsögðu. Þau eru
þó sæl meö sitt, flytja brosandi
inn í hálfkaraöan kjallarann og
ekki eru lánakjörin aö sliga
þau, því byggingunni miðar
hratt þann tíma sem stúlkan
dvelstálandinu. Þaöerljóst aö
Hrafn ætlar sér aö gera góölát-
legt grín aö byggingaræði ís-
lendinga (án þess auðvitað aö
skýra hvers vegna allir verða
aö byggja eða kaupa), en skýr-
ingar hins myndarlega borgar-
verkfræöings gera kímnina aö
engu. Grafarvogsskipulaginu,
sem var mjög umdeilt á sínum
tíma, er sungið lof og prís.
Sömu sögu er aö segja um
Skúlagötuskipulagið, því er
lýst fjálgleþa hve strandlina
Reykjavíkur sé ömurleg á
þessu svæöi, þaö verður nú
eitthvaö annað þegar búiö
veröur að byggja blokkirnar viö
Skúlagötuströnd (ekki var
minnst á strandlengjuna viö
Kleppsveg sem er gjörsam-
lega hulin vegfarendum vegna
ógnarlangrar byggingar — Ijót-
ur blettur þaö). Fjalakötturinn
fær svipaöa meöferö, borgin
vildi svo gjarnan vernda þaö
hús, en eigandinn, hann vildi
bara rífa, segir í myndinni.
Borginni voru allar bjargir
bannaöar, allt Kela Vald aö
kenna, og nú ku hann vera bú-
inn aðselja lóöina fyrir 14 millj.
í myndinni eru sem sagt tek-
in fyrir helstu deilumál síöasta
kjörtímabils, en haldið þiö aö
stúlkan fái aö kynnast mismun-
andi sjónarmiöum? Nei takk.
Og þar er auðvitað komið aö
aöalatriðinu hvaö varöar þessa
mynd, sem er þaö aö hún er
einn alls herjar lofsöngur um
hugmyndafræði Sjálfstæöis-
flokksins. Borgarstjórinn er
eini maöurinn sem talað er viö,
auk embættismannanna áöur-
nefndu og svo stendur til aö
tala viö fröken Reykjavík, en
þaö verður aldrei neitt af því.
Hjónin ungu sem vinna öllum
stundum ýmist fyrir bygging-
unni sinni eða í henni, gefa sér
tíma (og hafa efni á) aö fara á
LOGTAKSURSKURÐUR
Aö kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfiröi, hefur
bæjarfógetinn í Hafnarfirði kveöiö upp lögtaks-
úrskurö fyrir eftirtöldum vangoldnum opinberum
gjöldum, álögöum 1986:
Tekjuskatti, eignarskatti, eignarskattsauka, slysa-
tryggingu v/heimilis, kirkjugarðsgjaldi, sóknargjaldi,
vinnueftirlitsgjaldi, slysatryggingagjaldi atvinnu-
rekanda, I ífey ri st ryggi n gagjald i atvinnurekanda,
gjaldi í framkvæmdasjóð aldraöra, atvinnuleysis-
tryggingagjaldi, sjúkratryggingagjaldi, sérstökum
skatti á verzlunar- og skrifstofuhúsnæði, iönlána-
sjóðs- og iönaðarmálagjaldi og útsvari og aðstöðu-
gjaldi.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskonar gjald-
hækkana og skattsekta til ríkissjóðs eða bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar.
Brodway til aö verða þar vitni
að fegurðarsamkeppni. Hver
er þar mættur nema borgar-
stjórinn sem segist til I aö gera
hvað sem er vegna fröken
Reykjavíkur, jafnvel að kaupa
5 kg. af skemmdum kartöflum!
Unga stúlkan ætlar síöan aö
kynna sér hagi fegurðardrottn-
ingarinnar en viö fáum ekkert
aö vita um hana nema það aö
hún vinnur I sjoppu og býr hjá
foreldrum sínum (sem líkaeiga
kött). Viö fáum líka að líta inn í
,,stúlknaherbergið“, en sam-
kvæmt málvenjum þýöir þaö
orð reyndar vinnukonuher-
bergi! Síöan ekki söguna meir
um fegurðardrottningu
Reykjavíkur.
Gesturinn fær all nokkuö aö
vita um pólitíkina I borginni
m.a. er hún aö minnsta kosti
tvisvar sett fyrir framan sjón-
varpstæki til aö horfa á gamla
upptöku frá borgarstjórnar-
kosningunum 1982! Undarlegt
mál þaö. Hún fer líka á borgar-
stjórnarfund og hlustar á ræö-
ur borgarfulltrúa og á viðtal viö
Davíö. En hvaö um lífið og fólk-
iö I borginni? Það er ekkert
fjallaö um atvinnulífiö, ekkert
um félagslíf, tómstundir,
gamla fólkið, félagslega þjón-
ustu, hvað þá (aðeins minnst á
dagvistun) menningu og listir,
nema hvað viö fáum aö sjá brot
úr leikritinu um Önnu Frank.
Þar af leiðandi verður niöur-
staða mín sú að þessi mynd
gefi afar yfirborðslega og tak-
markaða mynd af borginni,
sem rýrir heimildagildi hennar
verulega. Auk þess er myndin
afar einhliða, jafnvel boöiö upp
á lýgi eins og þá að fátækt sé
ekki til I Reykjavík!
Þaö verður ekki annað sagt
en að höndum hafi verið kast-
aö til þessarar myndar og mér
sýnist sem Hrafni Gunnlaugs-
syni hafi í raun haft afar litla
hugmynd um hvaö hann vildi
segja okkur hinum um Reykja-
vík (annað en aö prísa Davíð).
Ég spyr: í hvaö fóru 10 milljón-
irnar? Heföi nú ekki verið nær
aö fá t.d. sagnfræðing til liðs
viö kvikmyndagerðarmenn
eða aö minnsta kosti aö gæta
þess að mynd sem þessi, kost-
uð af almanna fé, sé ekki hrein
móðgun viö alla þá sem hafa
aöra skoðun en Sjálfstæöis-
flokkurinn. Reyndar er ég farin
aö efast um aö aörar skoðanir
séu leyfilegar hér í borg.
Kristín Ástgeirsdóttir
®LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Starfsmaöur óskast I fullt starf að skólasafnamiöstöð skóla-
skrifstofu Reykjavikur. Vélritunarkunnátta áskilin. Æskilegt er
aö umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur skólasafnafulltrúi í síma 28544-65 e.h.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö á sérstökum eyðublöðum
sem þar fást.
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Starfsfólk óskast I heimilishjálp. Heildags- eöa hlutastörf.
Hentugt fyrir húsmæöur og skólafólk sem hafa tíma aflögu.
Vinsamlegast hafiö samband viö heimilisþjónustu félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar Tjarnargötu 11, sími
18800.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö á sérstökum eyðublööum
sem þar fást.
38