Vera - 01.08.1992, Side 10
UNGARKONUR
VERÐA
GAMIAR KONUR
SIGRÍÐUR JÓNSDÓHIR
FÉLAGSFRÆÐINGUR
Nýlega er lokið fyrri hluta
rannsóknarverkefnis
um lífskjör og hagi eldri
kvenna á Norður-
löndunum. Verkefnið er unnið á
vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar í tengslum við „Fram-
kvæmdaáætlun íyrir norrænt
jafnréttisátak 1989-1993“. Nefnd-
in vildi m.a. afla almennra upp-
lýsinga um eldri konur sem
þjóðfélagshóp, til að málefni
þeirra væru með í umfjöllun og
aðgerðum sem stuðla eiga að
jafnri stöðu kynjanna. Það má
færa fyrir því nokkur rök að í
jafnréttisumræðunni hafi kvenna-
hreyfingin gleymt eldri konum og
beint athyglinni að konum sem
eru ungar og í fullu fjöri. Ekki eru
til miklar upplýsingar um eldri
konur og þar til á allra síðustu
árum hafa þeir sem stunda rann-
sóknir veitt þeim litla athygli.
Við eldumst öll og í rannsókn-
inni vöknuðu spurningar eins og
þessar: „Geta gamlar konur í dag
verið fyrirmyndir gamalla kvenna
morgundagsins?" „Hvernig hefur
Elli kerling leikið konur sem
fæddust um aldamótin og hvernig
leikur hún konur sem fæddust á
árunum 1920-1930?“. Hver er
munurinn á gömlum konum í dag
og gömlum konum morgundags-
Öldruðum fjölgar
stöðugt á öllum
Norðurlöndunum
og eru konur
í meirihluta þeirra.
ins?“ Það getur þvi verið erfitt og í
sumum tilvikum gagnslaust að
tala um gamlar konur nútímans
án þess að leiða hugann að
gömlum konum framtíðarinnar.
Ellin sem stéttlaust
og kynlaust fyrirbæri
Það er oft talað um ellina eins og
stéttlaust og kynlaust fyrirbæri,
en auðvitað komum við til ellinn-
ar með allt sem lífið hefur fært
okkur til góðs og ills, ólíkan bak-
grunn, þar með talið ólíka stöðu,
stétt, lífsreynslu og síðast en ekki
síst kynferði, sem hefur ekki
minnsta þýðingu eins og niður-
stöður þessa rannsóknarverk-
efnis sanna.
Öldruðum fjölgar stöðugt á
öllum Norðurlöndunum og eru
konur í meirihluta þeirra. Á
síðustu 50 árum hefur munurinn
á lífslengd karla og kvenna aukist
úr einu ári í 6-7 ár. Því er málum
svo háttað í dag að konur sem
komnar eru yfir áttrætt eru
helmingi íleiri en karlar á sama
aldri á Norðurlöndunum. Kynja-
skipting 80 ára og eldri er þó
mismunandi eftir löndum. Af
heildarljölda aldraðra yflr áttrætt
í dag á íslandi er 61,6 % konur. Á
íslandi er reiknað með að það
dragi saman með kynjum í fram-
tíðinni, ólíkt þvi sem gerist á
hinum Norðurlöndunum, þannig
að árið 2010 verði konur 60,5 %
af öllum yfir áttrætt. Þetta skýrist
m.a. af þvi að meðalævilengd
íslenskra karla hefur aukist um
eitt ár sl.10 ár, á meðan meðal-
ævilengd kvenna hefur staðið í
stað, ólíkt þvi sem gerist á hinum
Norðurlöndunum.
Yfir áttrætt - engin
fjölskylda
Um aldamótin fæddust stórir
árgangar á öllum Norðurlöndun-
um en á þriðja og fjórða áratugn-
um varð breyting á. Ungt fólk
treysti sér ekki til að stofna
fjölskyldu og það er þetta fólk sem
er komið yíir áttrætt í dag. Þetta
gamla fólk á ]dví ekki fjölskyldu
sem styður við bakið á þeim í
ellinni. U.þ.b. flmmtungur (20%)
allra kvenna á Norðurlöndunum,
þar með taldar íslenskar konur,
sem komnar eru yfir áttrætt eru í
þessari aðstöðu. Aðeins um tíu %
í næstu kynslóð aldraðra verða í
10