Vera - 01.08.1992, Side 14

Vera - 01.08.1992, Side 14
„Kátu ekkjurnar" eru önnum kafnar konur. Aldurs- forsetinn, Rannveig Löve, er sér- kennari og vinnur á fræðslu- skrifstofu Reykjaness. Pálína Jónsdóttir er menntaskólakenn- ari og leiðsögumaður á sumrin til að æfa sig í þýskunni. Hún var einmitt að koma úr Þingvallaferð, „ég fer aðeins styttri ferðir nú orðið. Ég vil sofa í bólinu mínu á Á Hesteyri. kvöldin til að safna kröftum.“ Kristjana systir hennar, sú yngsta í hópnum, er íþróttakenn- ari að mennt en hefur unnið sem skólaritari í Hvassaleitisskóla undanfarin ár. Kristín Möller er meinatæknir og vinnur í Blóð- bankanum. Systurnar eru fædd- ar á Hesteyri og ákváðu að fara á bernskuslóðirnar í sumar. Kristín, sem fer með Pálínu á tónleika og hafði aldrei komið í Jökulfirðina, langaði mikiðvestur og úr varð að hún, Auður vinnu- félagi hennar og Rannveig bætt- ust í hópinn. „Við ókum rúmlega þúsund kílómetra á einni viku. Það hlýtur að vera dæmi um kjark kerlinga á sjötugsaldri," segir Kristjana og hlær þegar Rannveig minnir á að hún sé orðin 72 ára. ■ K Konur * ♦ XI £ o K. f JÖKULFJÖRÐUM Þær voru viku í ferðinni og nutu hverrar stundar. Þær fengu lánað hús á Hesteyri og fóru í langar göngur og stuttar. „Við borðuðum heilsufæði allan tímann svo ekk- ert kæmi fýrir okkur. Enda hafði það áhrif,“ segir Rannveig hlæj- andi og Kristjana bætir við að kamarinn hafi verið í dágóðri fjarlægð frá húsinu og hlaupin þangað hafi verið mjög hressandi. „Kvöldvökurnar okkar voru ynd- islegar," segir Rannveig. „Við elsk- uðum landið okkar svo óskaplega mikið, það var svo fallegt. Við sungum fjöldan allan af ætt- jarðarlögum. Ekki nóg með það. við lásum hvor fyrir aðra kafla úr bók eftir Guðrúnu Guðvarðar- dóttur sem hafði ferðast um þessar sömu slóðir og lýsir öllu. Við lásum bæði fyrir og eftir gönguferðirnar til að athuga hvort við hefðum verið á réttum slóð- um. Síðan kom Kristín með gátur sem við spreyttum okkur á.“ TÖFRAFORMÚLA AÐ GÓDRI ELLI Þær eru sammála um að maður sé ekki degi eldri en manni finnist maður sjálfur vera. „En það er engin töfraformúla," segir Pálína, „þetta er ræktun bæði líkamlega og andlega, þess vegna stundum við gönguferðir, tónleika og leik- hús.“ Kristjana bætir við að fólk verði að lifa skynsamlegu og hollu lífi til að halda heilsunni eins og frekast er unnt. „Aðalatriðið er að horfa á björtu hliðarnar," segir Rannveig. „Mér leiðist fólk sem sýknt og heilagt er að sífra og barma sér. Eins og móðir mín sagði alltaf þá er ekki meira á okkur lagt en við þolum. Það sem gerir lífið glatt og gott, þegar aldurinn færist yfir mann, er það sem maður kann og veit síðan maður var ungur og er tengt fallegum minningum. Það kom best í ljós hjá okkur fyrir vestan þegar við höfðum kvöldvökurnar, ljóðin og söngurinn streymdi upp úr okkur.“ „Ef ég reyni ekki sjálf að njóta lífsins, fara og gera það sem er mér til yndis, eins og að fara á tónleika og í ferðalög, því ættu aðrir að gera það fyrir mig?“ spyr Kristin og segir að maður njóti best lifsins með þvi að drífa sig og fá aðra með sér, ekki að bíða sífellt eftir að aðrir geri allt íýrir mann. Pálína bendir á að svo komist maður á þann aldur að verða þakklátur fyrir hvern dag sem maður fær í viðbót og nýtur hans út í æsar, notar hann til einhvers góðs fýrir sjálfan sig og aðra. Þegar ég spyr hvort ekki sé best að temja sér þann hugsunar- gang sem fyrst, segir Pálína sögu af rúmlega fertugri konu sem fór til læknis. Þegar hann spurði hvernig henni liði sagði hún að það væri allt grátt í grátt. Börnin farin að heiman og þau hjónin skilin. Hann spurði þá hvernig hún vildi vera þegar hún yrði 65 ára. Án þess að hugsa sig um svaraði hún: Sjálfstæð, óháð, framtakssöm, dáldið vitrari en ég er núna og glöð. Hún sagði að ef hún hefði fengið umhugsunar- frest hefði hún farið að kiyfja þetta nánar, en þetta hjálpaði henni yfir dauðan punkt því að sama dag fór hún að æfa sig í því hvernig hún vildi verða 65 ára. AÐ NJÓTA LÍFSINS Það hefur engin þeirra tíma til að taka þátt í skipulegu tómstunda- starfi fyrir aldraða. Rannveig nennir ekki að vera í föndri, „það höfðar ekki til mín, ég vil velja sjálf." Hún fer iðulega með Hana nú hópnum í leikhúsið og mætir á bókmennta- og söngkvöld hjá þeim. Auk þess er hún í leshring með konum sem hún var með fýrir nokkrum árum í bók- menntafræði í Háskólanum. í vor fór hún með Kristínu og Pálínu í Brekkuskóg þar sem þær lifðu í vellystingum, sóttu messur og tónleika og fóru í gönguferðir. Hún var að venju viku í sumar- bústað á Þingvöllum og fór svo í heilsubótarferð að Reykhólum. „Það var uppbyggjandi fyrir líkama og sál. Ég varð að breyta lifnaðarháttum mínum, við eigum aðeins þennan eina líkama og eigum að virða hann. Nú er ég að fara til Noregs til að kynna mér nýjungar í starfi. Það er gaman að fara til útlanda en það jafnast ekkert á við ísland." Undanfarin ár hafa Pálína og Kristjana sótt, ásamt þriðju syst- urinni, námskeið á vegum End- urmenntunarnefndar Háskólans, m. a. í bókmenntum og listasögu. Kristín hefur verið virk í kristilegu félagi frá barnsaldri og er á förum til útlanda með kirkjunni sinni, Neskirkju. Fýrr i sumar skellti hún sér á Vatnajökul með aust- firskum konum og þeysti þar um á snjósleða sér til mikillar ánægju. „Við erum alltaf að gera eitt- hvað,“ segir Rannveig, „en allt tengist það þeirri menningu sem við erum aldar upp í og kunnum vel að meta.“ ALSÆLA AMMAN Það er auðséð að þær hafa allar nóg að gera og ég spyr um ímyndina af gömlu konunni sem hefur mest yndi af barnabörn- unum. Þrjár þeirra eiga barna- börn „þó þau séu alveg yndisleg," segir Pálína. „þá vaxa þau líka úr grasi og það þýðir ekkert að vera háður þeim. Það þýðir ekkert að vera háður öðrum. Það er eins Kristín segir að maður verður sjálfur að standa sig.“ Sú hugsun hvarflar að mér að konur njóti ellinnar betur en 14

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.