Vera - 01.08.1992, Page 18
Ú R FÉLAGSLÍFI ALDRAÐRA
Félagslíf eldri borgara er Ijölbreytt og
fólk getur haft nóg fyrir stafni. Mörg
sveitarfélög standa fyrir skipulögðu
félagslífi og ætti fólk að snúa sér til
þeirra til að byija með. Listinn hér að
neðan er aðeins dæmi um það sem er í
boði.
Félagsmálastofnun Reykjavíkur-
borgar rekur öfluga félagsmálastarf-
semi í sex þjónustumiðstöðvum vitt og
breitt um borgina. Miðstöðvarnar út-
vega heimilishjálp, en þær þjóna einnig
því hlutverki að vera félagsmiðstöðvar
aldraðra. Þar er hægt að fá fjölbreytta
þjónustu, svo sem akstur að heiman til
þjónustumiðstöðvarinnar, hádegismat,
aðstoð við böðun, fót- og hársnyrtingu.
í miðstöðinni geta aldraðir einnig
fengið aðstoð vegna bankaviðskipta,
við gerð skattskýrslna og upplýsingar
um rétt sinn gagnvart Trygginga-
stofnun, svo eitthvað sé nefnt.
Félagslífið samanstendur af gömlu
dönsunum, danskennslu, vinsælum
leikfimitímum, ýmis konar handa-
vinnu og smíðum. Þá eru líka haldin
Þorrablót, grillveislur, kvöldvökur,
spilakvöld og margt fleira.
Sumarferðir aldraðra eru með skrifstofu í þjónustu-
miðstöðinni í Bólstaðarhlíð og bjóða öldruðum upp á
ferðir um landið. Um er að ræða 1/2 dags- og
heilsdagsferðir og eins 6 daga hringferð með
gistingu. Hækjur og stafir eru engin hindrun. Einnig
eiga aldraðir þess kost að fara í orlofsdvöl að
Löngumýri í Skagafirði. S. 689679 og 689671.
Kór eldri borgara.
Félag eldri borgara er félag fyrir fólk 60 ára og eldri,
og greiða meðlimir þess 2.000 krónur á ári. Félags-
skirteinið gildir sem afsláttarkort að ýmis konar
þjónustu víða um land og veitir félagið í Reykjavík
upplýsingar um starfsemina á landsbyggðinni. Félag
eldri borgara stendur fyrir fjölbreyttri félagsstarf-
semi. Boðið er upp á ferðalög bæði innanlands og
utan. Þá eru einnig ball-kvöld, kórstarf, leikhópar,
gönguhópar og spiladagar. Félagsmenn geta einnig
fengið lögfræðiþjónustu og ráðgjafaþjónustu um
tryggingamál. Félagið hefur einnig staðið að bygg-
ingu íbúða fýrir aldraða.
Samtök aldraðra er byggingasamvinnufélag sem
byggir íbúðir fyrir félagsmenn. Samtökin eru ekki
með félagsstarfsemi.
Kirkjusöfnuðir. Margar kirkjur bjóða upp á sam-
verustundir fýrir aldraða í söfnuðinum. Þar eru
kaffiveitingar, spilað á spil, farið með bænir, létt
leikfimi, söngur, biblíulestur og sumstaðar eru
biblíuleshringir. Sumar kirkjur bjóða upp á hár- og
fótsnyrtingu ásamt heimsóknarþjónustu.
Hana Nú er klúbbur sem er starfrækt-
ur af Félagsmálastofnun Kópavogs
fyrir Kópavogsbúa 50 ára og eldri.
Þessi klúbbur er öðruvísi að því leyti að
Kópavogsbúar mega bjóða með sér
gestum, hvaðanæva af á landinu og á
hvaða aldri sem er, á allar samveru-
stundir. Klúbburinn stendur fyrir
fræðslu- og skemmtiferðum fyrir alla
fjölskylduna. Meðlimir halda kleinu-
kvöld, kvöldgöngur, grillveislur, fara
saman í leikhús og á myndlistar-
sýningar. Margir fara í kvöld- og
helgargönguferðir, læra að spila golf og
heimsækja stofnanir eins og Alþingi,
Veðurstofuna og Háskólann.
Pútt klúbburinn Nes, kennir fólki að
spila golf alla virka daga frá 13:30 til
16:00 í Laugardalnum á sumrin og svo
er haldið áfram innanhúss á veturna.
Meira en helmingur klúbbfélaga eru
konur. Sími: 26746.
íþróttir. Sund er vinsælasta íþrótt
meðal aldraða. Sundlaug Seltjarnar-
ness, ásamt fleiri sundlaugum, býður
uppá vatnsleikfimi og leiðsögn í sundi
á ákveðnum tímum. Fólk þarf ekki að
skrá sig heldur mætir og er með.
Símaþjónusta. Silfurlínan er síma-
þjónusta fyrir aldraða sem er opin alla
virka daga frá 16 til 18. Þangað er hægt
að hringja og biðja um alls konar
ráðleggingar og aðstoð við ýmis konar
smá viðvík. Til dæmis að láta gera við
vatnskassann, skipta um pakkningu á
krananum, eða skipta um ljósaperu.
Eldri iðnaðarmenn koma svo og gera
við. Síminn er: 616262.
Einnig er vert að benda á heimsóknar-
þjónustu Rauða krossins og heimsend-
ingarjrjónustu Blindrabókasafnsins.
ÞB
18