Vera - 01.08.1992, Síða 19
FRÁ RANNSÓKNASTOFU í KVENNAFRÆÐUM VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS
lesendahóp og að kvennarann-
sóknir á Norðurlöndum eignist
þar verðugan vettvang.
Fulltrúi íslands í ritstjórninni
er Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir.
Bakhópurinn hefur íleira á
prjónunum. Hann sendi inn
tillögu um hríngborðsumræð-
ur á 5. alþjóðlegu þverfaglegu
kvennaráðstefnunni (Fifth
International Interdisciplinary
Congress on Women) sem
verður haldin í San José í
Costa Rica 22.-26. febrúar
1993. Umræðuefnið er: Eíling
kvennarannsókna; reynsla
Norðurlandaþjóðanna. (Pro-
moting women's studies; the
experience of the Nordic coun-
tries). Tillögunni var vel tekið
og hópurinn boðinn velkom-
inn. Það er enn möguleiki á að
skrá sig á ráðstefnuna. Frekari
upplýsingar má fá í síma 91 69
44 84.
í fréttabréfl rannsóknastof-
unnar í haust verður vænt-
anlega listi yflr fundi og ráð-
stefnur hingað og þangað um
heiminn.
GÓ
Teikning: Áslaug Jónsdóttir
HAUST 1992
INNRITUN í PRÓFDEILD (Öldungadeild)
GRUNNSKÓLASTIG:
AÐFARANAM -ígiidi8.,9. og 10. bekkjar grunnskóla. Ætlað þeim sem ekki hafa lokið
, þessum áfanga eða vilja riija upp.
FORNAM - ígiidi 10. bekkjar grunnskóla. Foráfangi framhaldsskólastigs.
Kennslugreinar: íslenska, danska, enska og stærðfræði.
FRAMHALDSSKÓLASTIG:
HEILSUGÆSLUBRAUT - 2 vetra sjúkraliðanám
VIÐSKIPTABRAUT - 2 vetra nám sem lýkur með verslunarprófi.
MENNTAKJARNI - þrír áfangar kjarnagreina, íslenska, danska, enska, stærðfræði.
Auk þess þýska, félagsfræði, efnafræði, eðlisfræði, ítalska
og hjálpartímar í stærðfræði og íslensku.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla. Skólagjald miðast við kennslustundaljölda og greiðist fyrirfram
í upphafi annar eða mánaðarlega. Kennsla hefst 14. sept. næstkomandi.
Innritun fer fram í Miðbæjarskólanum, Fríkirkjuvegi 1, dagana 1., 2. og 3. sept. 1992 kl. 16-19.
Nánari fyrirspurnum svarað í síma 12992 og 14106. Skrifstofa Námsflokkanna er opin virka daga kl. 9-17.
ATH. Innritun í almenna flokka verður 21., 22. og 23. sept. nk.
c/yyj&ótÁ&Mi/
Ó- irn.
^-ÍM-ía (jj
/7iictccuaruccu.
fyvu (jMVU Á t
Nú eru liðin tvö ár frá stofnun
Rannsóknastofu í kvenna-
fræðum við Háskóla íslands og
ár frá opnunarhátíðinni 25.
ágúst 1991. Samkvæmt reglu-
gerð hefur ný stjórn tekið við. í
henni sitja Guðný Guðbjörns-
dóttir, Guðrún Ólafsdóttir,
Helga Kress, Kristín Björns-
dóttir, sem sátu í fyrri stjórn.
Úr stjórninni gengu þær sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir og
Ragnheiður Bragadóttir og
komu Kirstín Flygenring og
Sigríður Erlendsdóttir í þeirra
stað.
Fráfarandi stjórn er nokk-
uð ánægð með starflð undan-
farin tvö ár miðað við þann
þrönga fjárhag sem hún hefur
búið við. Hádegisfundirnir,
,Rabb um rannsóknir’ sem
voru annan hvern miðvikudag
s.l. vetur voru vel sóttir og þá
ekki síður opinberu fyrirlestr-
arnir. Þeir voru fjörir. Nám-
skeið í kvennabókmenntum
undir stjórn Helgu Kress var
haldið í samvinnu við Endur-
menntun Háskólans og var
fullsetið. Vinna er hafln við
gagnabanka um íslenskar
kvennarannsóknir með styrkj-
um úr Vísindasjóði og í
undirbúningi er að gefa út rit
með fyrirlestrum sem fluttir
eru á vegum stofunnar.
Stofan og Áhugahópur um
íslenskar kvennarannsóknir
auglýstu og úthlutuðu styrkj-
um til kvennarannsóknar og
unnu saman að undirbúningi
og stjórn norræna kvenna-
rannsóknanámskeiðsins, sem
haldið var í Skálholti dagana
7. til 14. júní og sagt er frá á
öðrum stað hér í blaðinu.
Á vormánuðum var Steinunn
V. Óskarsdóttir ráðin starfs-
maður stofunnar og var skrif-
stofan í Odda opin mánudaga
og miðvikudaga kl. 10.00-
14.00. Steinunn kemur til
starfa aftur eftir sumarleyfl í
ágúst og verður það fyrsta verk
hennar og stjórnarinnar að
senda út fréttabréf. í því verða,
m.a. nánari fréttir um það sem
hefur verið lauslega drepið á
hér auk frétta um starflð á
næsta vetri. Þær (og þeir) sem
hafa áhuga á að fá fréttabréflð
geta hringt í síma 91 69 45 95.
Stofan hefur nokkur tengsl
við útlönd. Hún er aðili að
ENWS (European Network of
Women's Studies) sem starfar
á vegum Evrópuráðsins og
hefur aðalstöðvar í Hollandi og
á fulltrúa í bakhópi norræna
kvennarannsóknatengilsins
(þvílíkt orð !) (koordinator for
nordisk kvinneforskning).
Eins og áður hefur komið fram
á þessurn vettvangi hefur hóp-
urinn verið að vinna að þvi að
koma á laggirnar norrænu
tímariti um kvennarannsóknir
á ensku. Nú er það mál komið
í höfn. NORA Journal of
Nordic Women's Studies kem-
ur út á næsta ári og gera
bakhópurinn og ritstjórnin sér
vorir um stóran, alþjóðlegan
19