Vera - 01.08.1992, Qupperneq 21

Vera - 01.08.1992, Qupperneq 21
Getur verið að við, fullorðnu börnin, eigum erfitt með að sætta okkur við bá tilhugsun að paobi og mamma og afi og amma hafi langanir og stundi kynlíf? Konurhafa greint frá því að þær finni fyrir sterkari kvnhvöt eftir tíðahvörf og að þessi tilfinning nafi komið þeim á óvart. Heilbrigðir ein- staklingar geta líkamlega stundað kynlíf fram i háa elli. sjaldnar en einu sinni í mánuði frekar búist við óþægindum, en hin sem gerir það oftar. Ég segi „nýtur kynlífs" vegna þess að það skiptir ekki máli hvort beinar samfarir eru viðhafðar, sjálfsfró- un eða hvaða aðferðir aðrar sem fólk notar. Eldri konur sem ekki hafa notið kynlífs í nokkur ár geta fundið fyrir talsverðum óþægind- um þegar þær byrja á nýjan leik. Ef vilji er fyrir hendi hjá konunni er þó engin ástæða til að gefast upp og endanlega trúa þvi að gamlar kerlingar séu kynlausar og ónýtar. Svo heppilega vill til að líkaminn hefur undraverða hæfl- leika til að sjá um sig sjálfur. Þannig eykst slímmyndun í leg- göngum með aukinni tíðni kynlífs og eftir nokkur skipti flnnur kon- an litið eða ekkert fyrir óþæg- indum. í dag fást líka hjálpar- meðul sem gott er að nota meðan líkaminn er að koma sér í betra form eða svokölluð K-Y gel sem konan getur borið á skapabarm- ana eða á getnaðarlim karlsins og dregur það úr óþægindum. Konur verða að varast að nota vaselín, sem ég hef heyrt að sumar reyni, því vaselínið er fituleysanlegt og stiflar kirtla í leggöngum og þar með náttúrulega slímmyndun. Bregðist þessi ráð, en konan er yfir sig ástfangin og vill njóta þess, þá getur hún farið til læknis og fengið krem sem inniheldur estrogen. Það ætti að slá á óþæg- indin. Hjá karlmanninum verða þær breytingar helstar að það tekur lengri tíma fyrir getnaðarliminn að harðna, að koma honum fyrir i leggöngum konunnar og sáðlát geta látið standa á sér. Einnig getur hann þarfnast meiri örvun- ar. Hjá eldri körlum er svörunin oft veikari en hjá þeim yngri. Hinsvegar geta eldri menn stjórn- að sáðlátum betur og þar með notið kynlífsunaðar lengur. Menn- irnir, sem höfðu ótímabær sáðlát um tvitugt, njóta þess um sjötugt að geta dregið ástaleikinn á lang- inn. Eftir sáðlát em eldri menn ómóttækilegir gagnvart kyn- ferðislegri áreitni í 12-24 tíma. Af framansögðu er ljóst að líffræðilega geta aldraðir tekið þátt í samförum. En gera þeir það? Fyrstu athuganir sem gerðar voru á sambandi aldurs og kynlífs voru gerðar í Bandarikjunum á flmmta áratugnum. Niðurstöður þeirra bentu til þess, að þó svo kynlífsvirkni, í hvaða formi sem er, væri viðhaldið fram í háa elli, þá drægi almennt úr henni með árunum. Mynstrið var svipað fyrir karla og konur, konur greindu þó frá minni virkni á öllum aldri miðað við karla. Niðurstöður síðari tíma rannsókna hafa verið svipaðar og þessar fyrstu niður- stöður. Sé litið á samfarir þá em það að jafnaði 60-80% einstakl- inga sem hafa samfarir á ámnum 60-65 ára. Svo dregur hægt og rólega úr þeim, þannig að þegar fólk er að verða áttrætt hafa innan við 20% samfarir. Tiðnin er mismunandi eftir rannsóknum. Yngri hóparnir hafa samfarir allt að einu sinni eða oftar í viku, algengast þó einu sinni á eins til tveggja vikna fresti. Eldri hóp- arnir greina frá því að þeir hafi samfarir mun sjaldnar. Að jafnaði em það hlutfallslega helmingi færri konur sem greina frá virkni. Sé litið á algengi sjálfsfróunar á meðal eldri einstaklinga þá hafa erlendar rannsóknir sýnt að 25- 40% (mismunandi eftir rann- sóknum) kvenna stundar sjálfs- fróun og 22-72% karla. Ekki em til neinar athuganir á kynlífs- virkni íslendinga á efri árum. Góð heilsa og viljugur mótaðili virðast þó hafa úrslitaáhrif um það hvort aldraðir stunda kynlíf eða ekki. Rannsóknarniðurstöð- ur benda til þess að giftir taki virkan þátt í kynlífí mun lengur en ógiftir. Það á þó frekar við um konur. Því má svo bæta við að tíðni, áhugi og virkni á yngri árum helst i hendur við tíðni, áhuga og virkni á efri árum. Þrátt fyrir að karlar greini frá meiri virkni en konur, þá er það svo að þegar hjón eru spurð af hveiju þau hafa hætt samförum, nefna báðir aðilar karlmanninn sem meginorsök. Hann hætti og konan þá líka. Þetta er kannski ekki svo mótsagnakennt, þvi algengt er að konur eiga sér eldri menn og einnig þann sið að karlinn hafl frumkvæðið. Þannig að ef karlinn er farinn að líta á sig sem lítt áhugaverðan um 70, 80 ára aldur, þá gerir konan kannski ekki neitt í málinu. Þó svo hún gjarnan vildi. Og hann lika. Rannsakendur hafa túlkað nið- urstöður um minnkandi áhuga eldri kvenna á kynlífi á þann veg að ekki sé um lífeðlisfræðilegar ástæður að ræða, heldur séu kon- ur hreinlega að veija og vernda sjálfar sig. Með hækkandi aldri fer konum fækkandi sem hafa mótaðila. Hér á islandi voru 1. des 1989 u.þ.b. 100 karlar fyrir hveijar 122 konur á aldrinum 70-79 ára. Fyrir hverja ógifta 100 karla eru hins vegar 217 ógiftar konur. Fyrir 100 karla á aldrinum 80-89 eru 150 konur og 200 konur fyrir 100 karla eldri en 90 ára. Hins vegar eru mun íleiri karlar en konur í hjónabandi á þessum aldri. Það er nóg úrval fyrir einstæðu karlana en lítið sem ekkert fyrir konur í sömu aðstöðu. Þegar tekið er tillit til þeirra viðhorfa sem eru ríkjandi til kynlífs eldri kvenna þá er auðskilið að ógiftar konur velji að lifa einar og án samfara. Það hafa ekki allar konur áhuga á að heyra háðsglósur um að þær hafi verið „ein af þeim sem heimsóttu ný- bakaða ekkilinn hlaðin tertum og öðru bakkelsi". Önnur ástæða er að konur forðist að stofna til nýrra kynna vegna þess að þær hræðist að verða beittar ofbeldi í samskiptunum og þvi velji þær að vera einar og skírlífar. Nú má ekki líta svo á að þessari grein sé ætlað að koma öllum íslenskum „gamlingjum" í rúmið; þröngva kynlífsumræðu upp á þá sem engan áhuga hafa. Þvi fer fjarri. Persónuleiki og samband fólks nær langt út fyrir kynlíflð. Hinsvegar á aldur fólks einn og sér ekki að valda því að kynþarfir þess séu vanmetnar. I okkar frjálsa samfélagi ættu skemmti- staðir sem gamalt einhleypt fólk sækir, ekki að fá á sig niður- lægjandi stimpil. Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfrœðingur. KHÚ5Í&J Býður upp á fjölbreytt námskeið á haustönn sem hefst þann 14. sept. DANSLEIKFIMI KRAMHÚSSINS LEIKFIMI FYRIR BAKVEIKA KRIP0LIY0GA TAI CHI TÓNMENNT 0G LEIKLIST FYRIR BÖRN KÓRSKÓLI FYRIR FULL0RÐNA „LEYNDIR DRAUMAR" LEIKLIST FYRIR FULL0RÐNA SÍMI 15103 21

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.