Vera - 01.12.1993, Qupperneq 9

Vera - 01.12.1993, Qupperneq 9
^VaVaVaV^VaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVi Hvernig konur fara me& vín... og bæru ábyrgð á komandi kynslóðum. Þessi barátta kvenna fyrir bættu siðgæði hafði afgerandi áhrif á vestræn samfélög og þvi má til dæmis halda fram að til hennar megi rekja upphaf velferðar- kerfis nútímans. Lífsgleöi njóttu Efnahagslegri uppbyggingu í kjölfar síðari heimsstyrjaldarinnar fylgdi mikil lífs- nautnastefna og óbilandi trú á að auðlindir jarðar væru óþrjótandi. Menn - og þar á meðal konur - skyldu leyfa sér að eta, drekka og vera glaðir, reykja, neyta lyfja og njóta kynlífs. Um svipað leyti og Pillan kom á markaðinn, á hippatímanum miðjum og blómaskeiði nýju kvennahreyf- ingarinnar, urðu reykingar og di-ykkja hluti af frelsun kvenna. Fólk trúði á frelsi og lífsnautnir og í bókmenntum þessa tíma birtist oft hatur og beiskja í garð púrít- anskra mæðra, sem höfðu heft böm sín og kontið í veg fyrir að þau nytu lífsins. Síðari tíma hugsuðir hafa velt því fyrir sér hvort fundin hafi verið afsökun fyrir drykkju kvenna með því að gera lítið úr mæðrum og móðurhlutverkinu. Nú þegar við stöndum í anddyri nýrrar aldar er lífsgleði ekki lengur sjálfsögð mannréttindi og trúin á auðlindirnar fyrir bí. Jafnrétti kynjanna er kannski meira en nokkru sinni fyrr, en siðgæðishugmyndir síðustu aldar leika þó lausum hala. Enn eru gerðar meiri siðgæðiskröfur til kvenna en karla. Full kona þykir til dærnis allmiklu ógeðslegri en fullur kall. Hinn mikli munur sem við síðustu Móðurást og með- aumkvun, reglu- semi og siðprýði. Þetta eru eiginleikar sem kvenréttindakonur á 19. öld töldu að konum væru meðfæddir og með auknum réttindum þeirra hefðu þessir kostir sið- bætandi áhrif á samfélag- ið allt. A þessum tíma urðu miklar þjóðfélags- breytingar á Vestur- löndum, sem leiddu meðal annars til ólíkrar afstöðu kynjanna til áfengis. I kjölfar þess að karlar sóttu vinnu i auknum mæli út fyrir heimilin Qölgaði knæp- um og krám og drykkjan færðist út af heimilunum. Jafnframt varð til ímynd hinnar algáðu, dyggðugu og fórnfúsu konu, sem héldi fjölskyldunni saman á umbrotatímum. Konan átti að sýna sjálfsaga og neita sér um allar nautn- ir, þar á meðal áfengi. Danskar heimildir segja þó að konur í borgarastétt hafi ekki allar gengist mótþróalaust undir þessar kröfur heldur notað siðfágaðar aðferðir til að drekka í laumi: „Paraplyer, Ringe, Visitkortboger og en hel Mængde lignende Genstande, som hörer med til en Dames Udstyr, havde allesammen kun den ene Bestemmelse at kunne optage i sig og skjule et större eller mindre Kvantum Whiskey.”! Si&gæöisverðir samfélagsins Siðgæðið var tvöfalt og í veislusölum 19. aldar dreyptu konumar í mesta lagi á líkjör úr fíngurbjörgum meðan karlarnir steyptu í sig sjússum úr stórum glösum. Eiginkonur skyldu vera algáðar og siðprúðar á meðan eiginmenn drukku og drýgðu hór. Konur ólu upp börn og vinnufólk í góðum siðum, endurreistu fallnar stúlkur og reyndu að fá karlana til að hætta að drekka sig fulla og spýta á gólfin. Upp úr 1870 fóru konur í borgarastétt að stofna félög með það fyrir augum að hækka siðferðisstig almennings. Þær háðu einvígi við viskí- og bjórframleiðendur og hættu lifi sinu í stríði við vændis- húsaeigendur. Þær kröfðust kosningaréttar til að geta haft áhrif á lögin. Allt þetta gerðu þær í krafti þess að þær væru mæður aldamót var á drykkjuvenjum kynj- anna hefur þó að miklu leyti þurrkast út. En sú viðtekna hugmynd að konur séu farnar að haga sér eins og karlar á öllum sviðum - líka í viðskiptum sínum við Bakkus - er röng. Rannsóknir sýna að konur drekka enn umtals- vert minna en karl- menn og drykkju- siðir þeirra eru aðrir. Fyllirí ó Ljósm. Ruth Orkin stefnuskrónni? Fyrir rúmum áratug hófust kvennafræði- legar rannsóknir á áfengisneyslu. Þær eru hálft í hvoru andsvar við of mikilli einföldun í öðrum áfengisrannsóknum, þar sem niðurstöður eru oft notaðar til þess að hræða konur og hefta ásókn þeirra á yfir- ráðasvæði karla. Það er útbreiddur mis- skilningur að kvennahreyfingin berjist fyrir jafnrétti hvað sem tautar og raular. Konur vilja jafnrétti án aukaverkana. Aukin drykkja og ofbeldi er tæpast á stefnuskrá neinnar kvennahreyfingar. En vinna kvenna utan heimilis stækkar félagahóp þeirra og gefur þeint fleiri tæki- færi til að lyfta glasi. Almenn launavinna kvenna hefur aukið drykkju þeirra, en samkvæmt rannsóknum er ekkert sem bendir til þess að konur hafi upp til hópa aðlagast drykkjuvenjum karla. Nýlega sagði vísindamaður sem stundar áfengis- rannsóknir að áhugaverðasta spurningin í fræðigreininni um þessar mundir væri sú hvers vegna hin almenna þátttaka kvenna í atvinnulífinu hafi ekki leitt til víðtækari breytinga á drykkjuvenjum þeirra. Spurningin er sem sagt ekki sú hvers vegna drykkja kvenna hafi aukist upp á síðkastið hcldur hvers vegna hún hafi ekki aukist meira. Á næstu síðum verður leitast við að svara þeirri spurningu. BÁ 1 Regnhlifar, hringir, visitkortabœkur og hverskyns hlutir sem heyrðu til útbúnaðar dömu liöfðu allir aðeins þann eina tilgang að geta falið stœrri eða minni viskiskammt. HVl DREKKA ÞÆR MINNA EN ÞEIR? og vín með

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.