Vera - 01.12.1993, Blaðsíða 47

Vera - 01.12.1993, Blaðsíða 47
valdið færði einkafyrirtæki starfsemina á silfurfati. Hvað hafa konurnar í verka- lýðshreyfingunni sagt unt þá launalækkun þegar vinna kvennanna var aukin og vinnutíminn styttur? Kvennalistakonur hafa marglýst sinni skoðun, bæði á Alþingi og úti í þjóðfélaginu. A hverju ári bjóðast verka- lýðshreyfingunni mörg tækifæri til að vekja athygli á launamun kynjanna og launum þeirra karla og kvenna sem eru undir framfærslumörkum. En af ástæðu sem ég kem ekki auga á lætur hreyfmgin tækifærin sér of oft úr greipum ganga. í þessu sambandi er hentugt að minnast á jeppann sem Jón Sigurðsson ætlaði að láta skattgreiðendur borga, en hann einn ætlaði að keyra. Kaupverð jeppans er u.þ.b. 5 til 6 árslaun verkakvenna. Jeppinn er ekki afmarkað dæmi í íslensku samfélagi held- ur hluti veruleikans. Þess veruleika sem Kvennalistinn hefur ítrekað reynt að fá fólk til að sjá: Veruleikann um hve auð þessa þjóðfélags er misskipt milli þegn- anna. Stjórnarandstaðan, með Guðrúnu Helgadóttur í fararbroddi, hélt umræðunni um bílaflota Seðlabankans gangandi um hríð. Enda er það hlutverk stjórnarand- stöðu að veita ríkisvaldinu aðhald. En verkalýðshreyfingin átti einnig að láta í sér heyra og setja bruðlið i Seðlabankanum í Á hverju ári bjóðast verkalý&shreyfingunni mörg tækifæri til að vekja athygli á launamun kynjanna og launum þeirra karla og kvenna sem eru undir framfærslumörkum. En af ástæöu sem ég kem ekki auga á lætur hreyfingin tækifærin sér of oft úr greipum ganga. samhengi við niðurskurðinn á launum láglaunafólks. Verkalýðsforystan á ekki að liggja í dvala milli þess sem hún sest að samningaborði. Tilvitnunin hér að framan í orð Hansínu um fæðingarorlof og rétt kvenna til að vera heima hjá veikum börnum sínum er einkar athyglisverð í augum þeirra kvenna sem eiga ekki böm. Hvernig réttlætir Hansína þessa „kjarabót” fyrir þeim? I annan stað er þetta dæmi athyglisvert sem svar við athugasemdum Kvennalistans um að laun kvenna séu 60% af launum karla því fæðingarorlof og réttur til að vera heima hjá sér er réttur en ekki laun. Eg hef reynt að átta mig á því hvers vegna konurnar þrjár brugðust svo einkennilega við ályktun okkar sem sátum landsfund Kvennalistans en hef ekki komið auga á aðra skýringu en þá að þær skammist sin fyrir lélega frammistöðu, og það skil ég vel í ljósi þess sem að framan segir. En hverju má búast við af konum sem efna til fundar til að mótmæla ályktun landsfundarins? Fundarboðendum hefur bersýnilega sést yfir það að með því að mótmæla ályktuninni er verið að segja að það sem í henni stendur sé ekki rétt. Þvi hljótum við landsfúndarfulltrúar að spyrja: Hvað af því sem við sögðum er ekki rétt? Er það rangt að í lok ágúst sl. hafi 2.700 konur verið atvinnulausar, að í sumar hafi atvinnuleysi nteðal kvenna aukist um 19%, að af einum milljarði sem ætlaður er til atvinnusköpunar í tengslum við gerð kjarasamninga fá karlar rúmar 900 milljónir en konur 80 milljónir eða að kaupmáttur hafi rýmað um 20% frá árinu 1988? Að lokum spyr ég: Hver græðir á mót- mælum kvennanna þriggja? Konur, lág- launafólk? Nei, örugglega ekki! Líklegast þykir mér að það séu karlar og ekki yrði ég hissa þótt sumum þeirra sé nú skemmt. Höfúndur er opinber starfsmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.