Vera - 01.12.1993, Síða 16
Hvernig konur fara með
...og vín meb konur ^VaVaVAAVaVaVaVaVaVaWaVaVaVaVaVaVa^
gegn stúti undir stýri eða fylliríi á fóstur-
skeiði. Þungaðar konur eru sá hópur sem
minnst drekkur, en bindindi flestra þeirra
er tímabundið. Aróður gegn drykkju ólétt-
ra kvenna hafi því lítil áhrif á sölu áfengra
drykkja, en gefur þá hugmynd að verulega
sé unnið að því að koma í veg fyrir
drykkjuskap.
Útungunarvélar?
I bæklingi um áfengi og meðgöngu frá
Landlæknisembættinu stendur skýrum
stöfum: „Abyrgðin er móðurinnar". En
drykkja verðandi mæðra er angi af miklu
stærra vandamáli - áfengisvandanum
öllum - og vart verjandi að leggja alla
ábyrgðina á herðar kvenna.
Hildigunnur Ólafsdóttir afbrota-
fræðingur segir að sterk öfl í þjóðfélaginu
stýri lífsvenjum kvenna hvað snertir áfengi
eins og allt annað. Viðbrögðin verði sterk
ef óttast er að konur séu að víkja sér undan
viðhalds- og endurnýjunarhlutverkinu og
læknisfræðilegar niðurstöður séu notaðar
til að festa konur í því hlutverki. „Flestar
rannsóknir sem gerðar hafa verið á
áfengissköðuðum börnum hafa eingöngu
beinst að áfengisneyslu kvenna á með-
göngu og konurnar hafa nánast verið
skoðaðar sem útungunarvélar, en vanda-
málið ekki tengt áfengisneysluvenjum
kvenna i heild sinni. Lausnin þykir sú að
konur á frjósemisaldri neyti mjög lítils
áfengis, eða alls ekki. Hættan á fóstur-
skemmdum vegna mikillar áfengis-
notkunar er talin mikil á fyrstu vikum
meðgöngu, áður en konan veit að hún er
ófrísk og getur breytt venjum sínum í sam-
ræmi við það. Ég man ekki eftir því að
karlar hafi í sama mæli verið hvattir til að
tempra áfengisneyslu sína þrátt fyrir að
rannsóknir hafi sýnt að mikil áfengis-
neysla getur haft skaðleg áhrif á sæði. En
Til þeirra sem huga á þátttöku í Nordisk forum
SÆNSKA OG FINNSKA FYRIR FERÐAFÓLK:
Með sérstakrí áherslu á finnskt samfélag ogfinnska sögu.
Tekið er mið af því að vænta má að næsta ár muni íslendingar
fjölmenna til Abo í Finnlandi á norrænt kvennaþing.
Hafið samband við Námsflokka Reykjavíkur hið fyrsta.
Námsflokkar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 1,101 Reykjavík,
Sími12992 -14106
hræðsluáróður af
þessu tagi sendir
þau skilaboð til
kvenna að haga lífí
sínu á ákveðinn
hátt vegna hags-
muna þj óð-
félagsins,” segir
Hildigunnur.
Kanadískur
félagsfræðingur, dr.
Roberta G. Ferr-
ence, segir í viðtali
við blaðið The Journal: „Það er erfítt fyrir
fólk sem vant er að drekka að hætta því
fyrirvaralaust þegar allir í kringum það
halda áfram. Það er ekki einkamál kvenna
að ganga með og ala upp bam né nokkuð
sem þær ákveða upp á eigin spýtur að taka
á sig - það er mál samfélagsins alls. Ég
held að við verðum að líta á þessi mál í
stóru samhengi.” Dr. Ferrence segir líka að
ein leið fyrir maka eða sambýlismenn að
sýna verðandi mæðrum tilfinningalegan
stuðning sé að hætta sjálfir að drekka
meóan á meðgöngunni stendur. Þarf ekki
landlæknir að skrifa nýjan bækling?
Dómsdagsspár
Anna Wahlgren, sænskur rithöfundur og
níu barna móðir, hefur skrifað þykkan
doðrant um börn og barnauppeldi. Þar
segir meðal annars: „Ég virðist kannski
léttlynd, en ég þoli ekki alla þessa dóms-
dagsspádóma. Það er svo auðvelt að kenna
móðurinni um - meðan ekki er nefnt einu
orði að vísindin standa ráðþrota frammi
fyrir 65-70% allra fósturskaða og hafa
ekki hugmynd um hver orsök þeirra er.
Það er móðirin sem verður að lifa með
sködduðu barni sinu, ekki dómsdagsspá-
mennimir. Móðirin á alltaf að ásaka sjálfa
sig: „Var það magnyltaflan sem ég tók
þegar ég var kvefuð... eða vínið sem ég
drakk í veislunni áður en ég vissi að ég var
ólétt...?” Þetta er ósvífíð, ábyrgðarlaust og
viðbjóðslegt. Sömu læknar og skamma
okkur fyrir að reykja nota okkur blygðun-
arlaust sem tilraunadýr fyrir alls kyns lyf -
til dæmis Neurosedyn sem á sínum tíma
var sérstaklega mælt með fyrir órólegar,
óléttar konur.”
Anna Wahlgren segir að óléttar konur
þoli hvorki boð né bönn, sem nóg sé af í
sænsku samfélagi. En í nýlegum bæklingi
um konur og áfengi sem liggur frammi í
sænskum vínbúðum er þó lítið um leið-
beinandi vísifingur. Þar segir meðal
annars: „Það eru engin ný sannindi að lífs-
stíll móður hafi áhrif á þroska fósturs, þó
að unga kynsióðin virðist stundum halda
það. En konur eiga samt sem áður líkama
sinn og líf sjálfar. Kröfur um kvenlegar
dyggðir á 19. öld voru kannski kreíjandi
og ósanngjarnar, en hlutverk kvenna á
okkur tímum er ekki síður kreijandi þó að
öðruvísi sé. Konur verða sjálfar að gera
það upp við sig hvort þær eru ánægðar
með kvenhlutverkið eða hvemig þær vilji
breyta því. En áfengi er engin lausn.”
BÁ
V^áVíVaVVWaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVí
16
&
ÓLÍKIR HEIMAR
Þó að heimar stráka og stelpna séu kannski líkari í dag en nokkru sinni fyrr, er veröldin ekki
einkynja. Alkunna er að uppeldi stúlkna gengur frá unga aldri út á það að kcnna þeim að
hugsa um og taka tillit til annarra. Nýjar erlendar rannsóknir sýna mikinn mun á viðhorfum
stelpna og stráka til spennuglæpa og áfengisneyslu, en engan mun á viðhorfum þeirra til
neyslu ólöglegra vímugjafa. Áfengisneyslu fylgja læti og gassagangur, sem samræmist
karlmannsímyndinni. Hin óvirka víma dópsins virðist falla betur að kvenímyndinni, auk þess
sem notkun stúlkna á ólöglegum vímuefnum endurspeglar kannski át formæðra þeirra á
löglegu læknadópi.
Ásókn kvenna í pillur er oft skýrð á þann veg að þeim sé tanrt að setja sig í sjúklingshlut-
verkið. Lyfjaneysluna má líta á sem dulda kvennakúgun, sem hefur það markmið að hafa
konur rólegar og aðlaga þær félagshlutverki sínu. Veröld karla er útávið, veröld kvenna
innávið. Þegar eitthvað bjátar á drekka þeir sig fulla og fremja glæpi, en þær veikjast og éta
lyf. I flestum löndum eru fangelsin full af körlum, en konur fylla tauga- og geðdeildir.
BÁ