Vera - 01.12.1993, Síða 21

Vera - 01.12.1993, Síða 21
VVaVaVaVA/aVaVaVaVaVaVaVaVAVaVaVí Hvernig konur fara me& vín... MEÐ UÓTLEIKANN SEM FÖRUNAUT s g heiti Anna og ég er alkóhólisti. Eg ætla að segja ykkur frá reynslu minni af alkóhólisma og hvemig ég hef með aðstoð guðs og góðra manna tekist á við þennan forna íjanda og öðlast fyrir vikið andlegan og til- finningalegan styrk og von. Algerlega gagnstætt því sem ég hélt hefur uppgötvun mín og viðurkenning á vandamálinu orðið mitt stærsta gæfuspor í lífinu. Alkóhólismi er ekki siðferðilegt spursmál, alkóhól- ismi er sjúkdómur: líkamlegur, tilfinningalegur og andlegur. Sjúkdómur sem fer ekki í manngreinarálit, spyr ekki hvort þú ert karl eða kona, ung eða gömul, feit eða mjó, fögur eða rík, svört eða hvít, hvort þú býrð á Arnarnesi eða hjúfrar þig upp við Amarhól. Ég var langt frá því að vera í ræsinu, var glimrandi sökk- sessfúl útávið og hafði háan status í samfélaginu. Hafði góða vinnu ef svo bar undir, náði mér í allskonar titla þess á milli. Lagði mikið kapp á að sanna umheiminum að ég væri einhvers virði, annmarkinn hinsvegar sá að ég sjálf átti ákaflega erfitt með að trúa því. Allt leit skínandi út - að minn- sta kosti virka daga — þvegið, bónað, straujað, stælt, allt nema ég sjálf, innan í mér. Þar var allt í bendu, viðvarandi panikk- ástand, taugarnar stekktar til hins ítrasta. Innra með mér var sár sem stöðugt blæddi, vildi ekki gróa, gat í raun ekki gróið. Eins og málum var háttað þá bara óx það og með því ósegjan- legar kvalir. Kvalir sem ég kunni ekki að stilla öðruvísi en með alkóhóli. Drykkjan veitti mér stundarfrið frá sálarang- istinni sem gagntekið hafði líf mitt. Ég drakk, eða öllu heldur datt í það, um hverja helgi. Ég var blokkát drykkjumanneskja, þ.e.a.s. missti minnið við drykkjuna, mundi ekki nema brot af því sem ég hafði sagt og gert þegar að rann af mér. Að vakna upp eftir að hafa ofurölvi haft kyn- mök við einhvem, sem ég varla meira en svo þekkti er ákaflega lítið geðslegt. Það kom ósjaldan fyrir. Oftar en ekki liélt ég að ég væri skotin í þessum mönnum, sem gat svosem vel verið. En þama var byrjað á öfugum enda. Það er giftusamlegra að byrja á því að kynnast fólki áður en maður fer að sænga hjá því. En ég átti í miklum erfiðleikum með samskipti við karlmenn sem kynverur, eða sem hugsanlega elskhuga, þegar ég var edrú. Ég þurfti áfengi til að „lijálpa mér“ en ég og áfengi vorum uppskrift að katastrófu. Ljótleikinn var minn fasti förunautur þegar ég drakk. Brotakennt minni um niður- lægingu og skörnrn voru fastir liðir. Ovissa, nagandi ótti við að rekast á fólk sem segði mér hryllingssögur af ósæmilegri hegðan minni fylgdi mér hvert fótmál. Líkamlegir timburmenn voru smávægilegir, en andlegir og tilfinningalegir timburmenn eltu mig svo dögum skipti eða þangað til ég datt aftur í það til að losa upp spennuna sem þessu fylgdi. Auðvitað sagði ég ekki nokkrum manni frá því hvemig mér leið heldur byrgði allt inni og sökkti mér niður í vinnu. Eftir því sem árin liðu voru allar hirslur innra með mér að yfírfyll- ast af hryllilegum leyndar- málum, skelfilegum endumiinn- ingum sem þustu fram þegar ég síst átti þess von. Það var orðið næsta fúllt starf að halda þessum minningum í skefjum, hylja þær, láta sem ekkert væri, reyna að halda andlitinu. Ég hafði vitað í mörg ár að ég átti við vanda að stríða, en fannst að það jafngilti full- komnum ósigri að viðurkenna vanmátt minn. Það gerðu bara algjörir alkar, ég var ekki eins slæm og þeir, ég var öðruvísi, enginn vissi hvað ég hafði gengið í gegnum, mátt þola! Mér fannst 21 3 og vín meö konur

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.