Vera - 01.12.1993, Síða 23
^VaVaVaVAAVaVaVaVaVAWaVaVaV^ Hvernig konur fara meb vín
og ábendingar um breytingar til baka á
dögunum. Þar sýndist sitt hverjum. Laga
þetta, breyta þessu, þetta stenst ekki
o.s.frv. Gamla ég hefði hreinlega yfir-
bugast yfir þessu og ekki með nokkru móti
kunnað að taka slíkri krítík. Hefði tekið
hana alla í hjartastað og eins og við mann-
inn mælt farið beint á barinn til að drekkja
sorgum mínum. Hvað gerðist núna? Mér
var unnt að taka þessu með jafnaðargeði,
þetta varð ekki efniviður í drama, einungis
meiri vinnu. Hvarflaði ekki einu sinni að
mér að taka þessu persónulega. Þetta er
bara verkefni sem ég er að vinna að, þetta
er ekki ég.
Mér hefur verið kennt að ein megin-
forsenda þess að geta breytt lífí sínu sé að
vera auðmjúkur, þ.e.a.s. opinn íyrir því að
læra nýja hluti. Eg get einungis verið opin
ef ég er heiðarleg gagnvart sjálfri mér og
viðurkenni að ég kann ekki alla hluti um
leið og ég er viljug til að breyta mér.
Ég er sífellt að læra að vera í nútíðinni
en dvelja ekki í því sem var eða ókominni
tíð morgundagsins, næstu viku eða
mánaðar. Að vera í núinu er ein sú mesta
kúnst sem ég fæst við daglega. Það er ekki
eitthvað sem maður lærir einu sinni og nær
algjörum tökum á, heldur er þetta sífelldur
praxís.
Alkóhólismi er sjúkdómur þar sem
sjúklingurinn sjúkdómsgreinir sig sjálfur.
Ef áfengi fær þig lesandi góður til að gera
hluti sem þú mundir aldrei gera annars þá
er það virkilega þess virði að skoða gang
mála í alvöru. Það er engin skömm að því
að vera alkóhólisti, eina skömmin er að
gera ekkert í málunum.
Utsölustaðir:
Húsasmiójðn / Heimasmiójan
Haqkaup oq marqar raftækja-
verslanirum landallt
KENWOOD
KENWOOD
Veró írá kr
m
í þessu blaði hefur Vera fengið til liðs við sig tvær konur
sem starfa að áfengismálum. Hildigunnur Olafsdóttir t.v.,
afbrotafræðingur, er deildarstjóri á geðdeild Landspítalans
og vinnur við áfengisrannsóknir. Asa Guðmundsdóttir t.h.,
deildarsálfræðingur á sömu deild, vinnur einnig við áfengis-
rannsóknir og við áfengismeðferð á Vífilsstöðum.
Þær hafa setið ritnefndarfundi, bent á áhugaverð efni,
leiðbeint um efnistök og skrifað greinar. Vera þakkar þeim
áhugann og eldmóðinn.
Sara Vilbergsdóttir myndskreytti þemað að þessu sinni.
Sara hlaut nýverið 3. verðlaun í veggspjaldakeppni Nordisk
Forum.
Ljósm. Kristín Bogadóttir
og vín meb konur £3 kVA