Vera - 01.12.1993, Síða 37
VaVaVaVaVaV>VaVaVaVaVaVaVAW^VaVaVaVaVaVaVaVaV JÓLIN
IN FÉKK NÁL OG TVINNA
hcnni nýjustu ævisöguna nýjasta karlkyn-
itáknsins, sem er örugglega það sem hana
langar mest í.
Þetta er einhvern veginn svo miklu
auðveldara fyrir konumar. Karlar em ekki
sömu ólíkindalætin og þær - allt þetta
það er ekkert sem mig vantar og guð ég
það ekki ég nenni ekki að hugsa um
- fötin til dæmis tilheyra ríki konunnar
og velji þær skyrtu sem manninum fínnst
afkáraleg jafngildir það tilmæli um að
gjörasvovel og skipta um stíl því ella kunni
sambandið að vera í voða. Hið sama gildir
4 Um hvaðeina: Rakspíra - það er vond lykt
af þér — bók - reyndu að lesa einhvern
tímann eitthvað - borvél — það er svo
margt sem þarf að gera í húsinu. Þessi
tegund af konum er alveg viss tegund af
gefli - þetta er tilskipanagefillinn.
Guðmundur Andri Thorsson (Ur
Rimsíramsi)
Jólagjöf handa óskipulögðum
femínistum og öllum þeim sem
„gleyma" ab fara til tannlæk-
nis.
í Bóksölu stúdenta fæst dagbók fyrir árið
1994 sem heitir “Wornen Who Dare” eða
„Konur sem þora“. Fyrir utan að vera
hefðbundin dagbók sem hægt er að skrifa
inn fundi, afmæli og tíma hjá tannlækn-
inum, þá er mynd og stutt æviágrip ýmissa
góðra kvenna fortíðar og nútíðar á hverri
opnu. Á hverjum degi er annað hvort
afmælisdagur einhverrar merkiskonu eða
aðrir merkisatburðir mannkynssögunnar.
Marilyn French á t.d. afmæli 21. nóvem-
ber og þann 10. desember 1931 fékk
félagsmálafrömuðurinn og rithöfundurinn
Jane Addams friðarverðlaun Nóbels. Þarna
er hægt að bæta við afmælisdögum
vinkvennanna, Kvennafrídeginum og
öðrurn íslenskum merkisatburðum. Þá er
augljóst að það er mun auðveldara að
rnuna eftir kvensjúkdómalækninum ef t.d.
Jóhanna af Örk á afmæli (6. janúar) eða
hafa jafnvel ástæðu lil að fresta tímanum
fram til 23. maí, daginn sem hún var
handtekin af Burgundarmönnum. En það
fer auðvitað eftir þvi hvernig hver lítur á
það að fara til læknis...
Gjöf sem gefin er af kærleik fylgir
blessun. Gjöf sem gefm er af sýndar-
mennsku fylgja þær tilfinningar sem henni
er ætlað að breiða yfír.
Vésteinn Lúðvíksson
í Bóksölunni er rnikið úrval af erlendum
bókum og nokkuð af femínistaritum. Það
er þó missir af hillunum sem voru sérstak-
lega merktar kvennafræðum, því þar var
svo auðvelt að fylgjast með því nýja sem
kom inn í þeirn geira. Langflestar kvenna-
fræðibækur tengjast kvennafræðikúrsum
sem kenndir eru í sagnfræði, stjórn-
málafræði, mannfræði, félagsfræði og
uppcldisfræði í Háskólanum. Undir þeim
heitum er því gott að hefja leitina að
jólabókinni, t.d. handa sjálfri sér.
Gígja Svavarsdóttir
Jólakort
fró Amnesty International
í ár prýðir kortið olíumálverk eftir Kristínu
G. Gunnlaugsdóttur listmálara. Ákveðið
hlutfall af sölu jólakortanna rennur í
„hjálparsjóð“ en fé úr honum er nýtt til
endurhæfingar fórnarlamba pyndinga og
veitt til aðstoðar við aðstandendur
„horfínna“ og annarra sem sæta grófum
mannréttindabrotum.
fró SOS barnaþorpunum ó
íslandi
Sigrún Eldjárn teiknar.
Frá stofnun samtakanna 1949 til dagsins í
dag hafa verið byggð 318 þorp í 122 lönd-
um. SOS hýsa liðlega 26.000 börn og
u.þ.b. 152.000 börn sækja þjónustu í ein-
hverri af þeim tæplega 800 stofnunum
(skólum, dagheimilum, hjúkrunar-
heimilum) sem byggð hafa verið við
bamaþorpin.
Hægt er að panta jólakortin í síma 91-642910.
frá Kvennalistanum
Skrýdd myndum listakvenna.
37