Vera - 01.12.1993, Qupperneq 38

Vera - 01.12.1993, Qupperneq 38
jólin ^V^aVAAVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVaVíVA/^VaVaVa^ VERA MÆLIR Steinunn Siguröardóttir Iðunn 1993 Astin fiskanna er svo hárfín, meitluð og spennandi frásögn að það er ekki hægt að leggja bókina frá sér fyrr en lestrinum er lokið. I þessari stuttu skáldsögu er öll sérstöku einkennin hennar Steinunnar sem þjappar saman harmrænni örlagasögu af hinni miklu ást sem hellist yfír sögukonuna. Hún gengur í eins konar björg tilfinninganna og alveg til enda ríkir spennan: Hver verða örlög hennar? Söguþráður er skemmtilega einfaldur en þó er reynt að skilgreina ástina og það tekst bara vel. I þessari fallegu, grænu bók sem lítur út eins og lítil dagbók er fogur og myndræn saga, sorgleg, fyndin og spakleg. Hrund Ólafsdóttir Hvatt a& rúnum Alfrún Gunnlaugsdóttir Mól og menning 1 993 Bækur Alfrúnar Gunnlaugsdóttur: Smásagnasafnið Af manna völdum og skáld- sögurnar Þel og Hringsól eru allar í miklu uppáhaldi hjá mér. Því var ég afar spennt að lesa þá nýjustu, Hvatt að rúnum. Eins og hinar þrjár las ég hana af áfergju og spenn- ingi og eins og fyrri daginn vöknuðu margar spumingar við lesturinn. Þessa bók verð ég að lesa þrisvar sinnum a.m.k. því í henni fléttast saman þrjár sögur sem eftir fyrsta lestur liggur ekki ljóst fyrir hvemig tengjast. Eg vil lesa hverja sögu fyrir sig því allar eru þær vel skrifaðar, skemmtilegar og þræl- spennandi og var ekki laust við að mér fynd- ist ég vera að ráða krossgátu. Bókin er krefj- andi og ótæmandi uppspretta umræðna. Helsti vildi ég að sem flestir læsu hana til að geta talað um hana við mig og velt vöngum með mér yfir hinum ótæmandi túlkunar- möguleikum. Ragnhildur Vigfúsdóttir Ódauðleg ást Ljúdmíla Petrúshevskaja þýö. Ingibjörg Haraldsdóttir Mál og menning 1993 Smásögur Ljúdmílu Petrúshevskaju eru heillandi. Þær eru fyndnar, en látlausar, þær em raunsæjar en koma við hjartað í manni. Sögusviðið er Moskvuborg samtímans og efniviðurinn óvenjuieg örlög, ástir, drykkja og veikindi. Héma er engin gervimennska á ferðinni. Persónur sagnanna eru svo mannlegar og einmitt það er svo hrífandi. Skáldskapur sem ber af, eftir eina af ffemstu skáldum móðurlands síns. Vala S. Valdimarsdóttir Franskur leikur Viadis Hjorth þýo. Asgeir Asgeirsson Almenna bókafélagið 1993 Þessi saga gerir töluverðar kröfur til lesand- ans. Hún tjallar um tilfinningalega einangmn og það er erfítt að ná sambandi við aðal- persónuna því hún nær ekki að gefa öðram af sjálfri sér. Sagan er ekki heillandi á yfir- borðinu. Maður þarf að hafa fyrir því að fínna tilfinningar sem krauma undir. En ef það tekst þá hefur maður ef til vill öðlast dýpri skilning á persónum eins og aðal- persónunni Láru. Asta Björk Sveinbjömsdóttir Veröld sem ég vil Saga Kvenréttindafélags Islands 1907-1992 rituð af SigríSi Th. Erlendsdóttur sagn- fræðingi. Loksins er hún komin! Þó svo að ekki sé fjallað um kvennabaráttu heillar aldar eins og sagt er í auglýsingabæklingnum þá er þetta góð bók, vel skrifuð, fróðleg og falleg. Að gefa er auðlegð þú gafst mér þann auð því þú vildir þiggja Jórunn Sörensen Orðsnilld kvenna Mólmfríður Sigurðardóttir valdi Mól og menning 1 992. Bókin skiptist í eftirfarandi kafla: Landið og náttúran, Söknuður og dauði, Lífið og tilver- an, Hugsanir og skáldskapur, Móðir og bam, Konur og karlar (sá kafli hefði átt að heita Um ástina, þar sem konur geta líka elskað aðrar konur), Ur Islendingasögum og þjóðlegum fróðleik, Þjóðvísur eftir konur, Málshættir um konur, Ur Ijóðabók barnanna. Orðsnilld kvenna er gullfalleg og eiguleg bók! Sjálfsögð bók fyrir allar konur Fjarri hlýju hjónasængur Inga Huld Hókonardóttir Mál og menning 1992 Öðruvísi íslandssaga er réttnefni á þessari bók. Það er alltaf gaman þegar sagnfræðing- ar reyna að setja fram og segja sögu á þann aðferð sem Inga Huld notar við söguritunina krefst mikils af höfundi og minnist ég þess ekki að hafa lesið jafn góða Islandssögu síðan bók Þómnnar Valdimarsdóttur Snorri á Húsafelli kom út. I gegnum umfjöllun um ástir, kynlíf, hjónabönd og frillulíf má lesa átakanlega sögu - Islandssögu sem of lengi hefur verið óskrifuð. Höfundur hefur starfað lengi sem blaða- maður og nýtist það vel í bókinni. Textinn rennur áfram á skemmtilegan, hnitmiðaðan og lifandi hátt. Hiklaust bók sem hægt er að mæla með til jólagjafa fyrir feður, syni og frændur á öllum aldri! Steinunn V. Óskarsdóttir Steiktir grænir tómatar Annie Flagg Skmldborg 1992 þýð. Jóhanna G. Erlingsdóttir Sagan kafar dýpra og spannar lengri tíma en kvikmyndin og frásögnin er oft skemmtilega marghliða. Hinsvegar geldur hún líka tímaflækingsins og finnst mér kvikmyndin hjálplegur rammi utan um sögu bókarinnar. Berglind Steinsdóttir Móöir og barn Elizabeth Fenwick ÞýS. Álfheiður Kjartansdóttir Örn og Örlygur 1992 Bókin lýsir á mjög skýran og aðgengilegan hátt meðgöngu, fæðingu og umönnum barns fyrstu þrjú árin. Texti er hnitmiðaður og bók- ina prýðir íjöldi mynda til frekari útskýringa. Bókin er handbók fyrir foreldra og er sem slík einkar handhægt uppflettirit sem í er að finna a.m.k. allt sem mér hefur dottið í hug að leita svara við, hvort sem um heiur verið að ræða atriði er tengjast meðgöngu, fæð- ingu eða umönnum ungbarnsins. í bókinni er líka að finna góð ráð við ýmsum vanda- málum sem upp kunna að koma og ítarlegur kafli er um sjúkdóma og slys. Að mínu mati er bókin ekki síður góð fyrir foreldra sem eiga börn fyrir. A mínu heimili hefur hún a.m.k. verið mikið skoðuð og lesin af eldri systkinum sem finnst hún mjög forvitnileg. Ég mæli því með bókinni fyrir alla verðandi foreldra. Gunnhildur Óskarsdóttir

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.