Vera - 01.12.1993, Page 41

Vera - 01.12.1993, Page 41
Hverjir hafa lagt sitt á vogarskál jafnréttis undanfarib? Hverjir hafa unniá jafnréttisbaráttunni mest gagn og ógagn? HVAÐ FINNST ÞÉR? Sendu Veru línu eba taktu upp símtólib og láttu skoóun þína í Ijós. PLIJS Ellert B. Schram Fyrir leiðara miðvikudaginn 10. nóv. sl. þar sem segir m.a.: - Staðreyndin er sú að konur eru alla jafna í láglaunastörfum. Er það vegna þess að konur sæki frekar í láglaunastörf eða er það vegna þess að lág laun eru greidd þegar konur eru annars vegar? Þetta er lykilspumingin. Hér skal því haldið blákalt fram að vinnuveitendur hafí komist upp með að bjóða konum lægri laun en körlum. Og það á jaftit við hvort sem störfin em sam- bærileg eða ekki. Hvað þá ef um er að ræða hefðbundin kvennastörf. Skýringin á sér sjálfsagt sögulegan aðdraganda frá því konur vom að langmestu leyti ómenntaðar og til uppfyllingar á vinnumarkaðnum. En i seinni tíð er orsakanna að leita í vanmati á störfum kvenna og vanmætti þeirra sjálfra til að standa saman um bætt kjör. Við þurfum ekki annað en að líta yfir atburðarás síðustu ára og áratuga til að átta okkur á því að réttindi kvenna hafa verið í lágmarki. Síðbúinn kosningaréttur, tak- markaður fjöldi menntaðra kvenna, nýfengið fæðingarorlof, vanbúið dag- vistunarkerfi. Allt á þetta rætur að rekja til skeytingarleysis karlaveldisins til stöðu kvenna í þjóðfélaginu. Þær voru hús- mæður, karlarnir fyrirvinnur. Verkalýðshreyfingin á sinn þátt í þessu. Henni hefur verið tröllriðið af hugs- unarhætti karla og þar hefur enginn merkj- anleg herferð eða barátta verið háð fyrir bættum hlut kvenna á vinnumarkaðnum. Verkalýðshreyfíngin er risavaxið nátttröll sem hefur ekki haft innri kraft eða hugmyndaflug til að aðlaga sig breyttum viðhorfum í þjóðfélaginu. Kvennabaráttan hefur farið þar fyrir ofan garð og neðan. ... Jafnréttisróð Fyrir fyrsta jafnréttisþingið. Það var kominn tími til! Kvennalistinn Ekki aðeins fyrir að njóta fylgis 20% þjóðarinnar heldur einnig fyrir góða álykt- un um atvinnumál sem virðist hafa vakið verkalýðsforystuna af Þyrnirósarsvefni sínum. Mokka og Hannes Sigurðsson Fyrir sýningaröð sem sýnir margbreyti- leika femínismans og fyrir fróðlegt viðtal við líkamsræktarkonuna og aðgerðarsinn- ann Laurie Fierstein: Líkaminn sem lista- verk og verkfæri i jafnréttisbaráttu kvenna. Útvarpsráð Fyrir bókun sína þann 15. október sl. þar sem útvarpsráð beinir því til útvarpsstjóra að óháðum aðila verði falið að kanna hlut kvenna í fréttum Utvarps og Sjónvarps og fréttatengdum þáttum, til að kanna hver þróunin hefur verið síðan 1987. Einnig fyrir bókun sína þann 22. október þar sem gagnrýndur var fjöldi karlkyns þátttakenda „með áþekk stjórnmálaviðhorf' í um- ræðuþáttum sjónvarpsins. Rannsóknastofa í kvenna- fræðum Fyrir Rabb um rannsóknir, þar sem fræði- konur kynna rannsóknir sínar. Vikublaðið Fyrir tíða og góða umfjöllun um jafn- réttismál. Sérstakan plús fær grein Þorgerðar Einarsdóttur: Einkalífið - hinn gleymdi vig\’öllur kvennabaráttunnar. Þór Jónsson Fyrir leiðara í Tímanum þann 6. nóvember sl. þar sem hann rekur hvernig hlutur kvenna er víða fyrir borð borinn; launa- rnunur kynjanna, fáar konur í fremstu röðum stjórnmálamanna í ljórflokkunum og umijöllun ijölmiðla um konur. Hann segir að það sé full ástæða fyrir ijölmiðla að skoða rækilega sinn þátt í þessum efnum. MÍMU2 Fjölmiólar Fyrir skammarlega litla umfjöllun urn fyrsta jafnréttisþingið. Hvenær ætli þeim skiljist að jafnréttismál eru þungavigtannál rétt eins og önnur þjóðfélagsmál? Jafnréttisróö Fyrir val á framsögumönnum á jafnréttis- þinginu. Benedikt Davíðsson, Magnús Gunnarsson, Ólafur Ragnar Grímsson... hvað hafa þessir rnenn lagt á vogarskál jafnréttis? Var virkilega ekki hægt að fínna einhverja betri? Magnús Óskarsson og allir hinir karlarnir sem ruku upp til handa og fóta vegna bókunar útvarpsráðs og kusu að snúa út úr henni. Felufemínistarnir Hve lengi þurfum við að lesa viðtöl við konur sem hafna kvennabaráttunni þótt ljóst sé bæði af orðum þeirra og æði að þær lifa og starfa í anda hennar? Er ekki kominn tími til að koma út úr skápnum?

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.