Vera - 01.05.1995, Blaðsíða 4
^thafnakonur
ATHAFNAKONUR í AUGLÝSINGAGERÐ
Ég tek lyftuna upp á fimmtu hæö. Lyftan
opnast og ég stíg út. Tvö, þrjú skref til hægri
og nem staðar í dyragættinni. Við mér blasir
sólríkur salur í óeiginlegri merkingu þó,
gulmálaður, og það er hátt til lofts. Lágreistir
veggir, sem marka hverjum og einum sitt
vinnusvæði, koma ekki í veg fyrir að hér sé
einnig vítt til veggja. Á vinstri hönd er risastór
spegill í gylltum flúruöum ramma, í stíl Loövíks
fjórtánda, en mér á hægri hönd er píanó.
Glæsilegur inngangur. Þetta er Grafít. Auglýs-
ingastofa. Ekkert stál og gler hér, miklu frekar
blúndur og flúr. Það er greinilegt aö hér ráða
konur einhverju og það kemur í Ijós að af fimm
eigendum Grafíts eru þrjár konur.
erum hagsýnar húsmæður og varkárari en
strákamir."
„En þetta ergóö blanda,“ segir Halla Helga-
dóttir, „strákarnir eru framsæknari en við, þeir
vilja helst fá ný tæki um leið og þau koma á
markaöinn, við erum rólegri og höldum aftur af
okkur, þannig að viö leggjum ekki í neinar fjár-
festingar nema að vel hugsuðu máli. En þróunin
í tækninni er mjög hröð og aö því leyti er þessi
bransi erfiðari en hann var fýrir tíu árum eða
svo."
Þær Halla, sem er grafískur hönnuður,
Anna Svava og Hilmar Sigurðsson rifu sig upp
af íslensku auglýsingastofunni þar sem þau
störfuðu áður, fengu Finn Malmquist, sem þá
fræðingunum var fengin stjórnin, boðleiðirnar
urðu því ansi langar og það hafði í för með sér
alls konar misskilning. Þannig var maöur oft að
gera eitthvaö sem viöskiptavinurinn haföi alls
ekki beðið um. Grafít er allt öðru vísi fyrirtæki,
þetta er grasrótarhreyfing," heldur hún áfram
og hlær, „hér er enginn framkvæmdastjóri og
við tökum allar ákvaröanir í sameiningu. Oft
nægir aö við tölum um hlutina tvö og tvö en
þegar mikiö liggur við hoppum við öll inn í
eldhús og ræðum málin og það má segja aö viö
ræöum okkur fram til niðurstööu."
„Við erum fimm eigendur hér og enginn sér-
stakurfókus á konurnar," segir Anna Sigríður.
„Það kemur þó oft fyrir að karlkyns viðskipta-
GRAFÍT ER GRASRÓTARHREYFIAG
F.v. Anna Svava, Halla og Anna Sigríöur.
„Strákarnir voru soldiö hræddir um aö þaö yröi
alltof kellingalegt hérna, með allar þessar
blúndur, en þeir sætta sig við þetta á meðan
þeir þurfa ekki að hafa þær inni hjá sér," segir
Anna Sigríöur Guömundsdóttir þegar ég minnist
á útlitið. Innréttingar og húsgögn vekja óneit-
anlega athygli, þau eru greinilega ekki keypt í
rándýrri húsgagnaverslun og koma soldið á
óvart í fyrstu. Þau hófu reksturinn mjög skyn-
samlega, keyptu húsgögn í Borgarsölunni, mál-
uðu þau og innréttuðu húsnæðið sjálf.
„Viö byrjuðum með tvær tölvur, Hilmar átti
eina og mamma hennar Höllu hina," segir Anna
Svava Sverrisdóttir, „ogfólkfurðaði sigá því aö
við ætluðum ekki að tæknivæöast. En þaö má
segja að við höfum veriö aö tæknivæðast síðan
‘92 og það hefur stundum orðið smá titringur f
kringum fjárfestingarnar sem því fylgja, þvf við
var hjá Góðu fólki, til liðs við sig og saman
stofnuðu þau auglýsingastofuna Grafít. Anna
Sigríður starfaði áfram hjá íslensku auglýsinga-
stofunni en þegar Grafít vantaöi fastan texta-
gerðarmann tveimur árum seinna ákvaö hún að
slást f hópinn. Grafít, sem var stofnuö haustiö
1990, á fimm ára starfsafmæli í haust og þá
verður væntanlega tekið í píanóið!
„Ástæðan fyrir þvf að við stofnuðum Grafít
var aðallega sú að við vildum öðruvfsi vinnu-
brögð en þau sem tíðkuöust þar sem við vorum
áöur," segir Anna Svava.
„Þetta var um það leyti sem „markaðsfræð-
ingasprengingin" varð," segir Halla, „og
íslenska auglýsingastofan átti að verða eitt
allsherjar markaðsfyrirtæki. Þar með var teikn-
urunum ýtt inn á teiknistofuna og við misstum
alveg tengslin við viöskiptavinina. Markaðs-
vinir vilja frekar tala við strákana og stundum er
hringt og spurt hvort enginn sé við þótt við
séum hér allar þrjár", segir Anna Svava.
„Við erum ekkert að streitast neitt sérstak-
lega á móti þessu," segir Halla, „okkur finnst
þetta bara fyndið, en þaö er undarlegt að sum-
um finnst þeir þurfa að snúa sér til strákanna ef
um einhverja ákvarðanatöku er að ræða."
Þær segja aö markmiðið með starfseminni
sé að stunda hágæðahönnun og geta jafnframt
haft lifibrauðið af því.
„Þetta er skapandi og skemmtileg vinna,"
segir Anna Sigríöur, „við leggjum sál okkar í
hönnun og hugmyndavinnu og það er engin til-
viljun hvað kemur út úr okkar starfi. Við byrjuð-
um meö vilyrði fyrir einum viðskiptavini, hann er
hér enn og fleiri hafa bæst í hópinn. Þeir þurfa
náttúrlega alls konar vinnu, sumt krefst minni
hugmyndavinnu og minni hönnunar en annað,
en við leggjum áherslu á að vanda alla okkar
vinnu þannig að það sé góöur heildarsvipur á
öllu sem viðskiptavinurinn fær frá okkur."
Anna Sigríður segir að þær hafi lært mikið
og þroskast með fyrirtækinu og nú séu þær
ekki eins helteknar og þreytandi á heimili og
þær voru fyrst í stað. Anna Svava og Halla hafa
örlítið samviskubit yfir fæðingarorlofunum sín-
um, Anna Svava hefur farið í tvígang og Halla
einu sinni.
„Það er náttúrlega ákveðiö vandamál að
fólk á okkar aldri er aö eignast börn," segir
Halla. „Þaö er ekki tekið mikið tillit til þess í
þjóðfélaginu en við reynum að taka jákvætt á
því hér. Enda tel ég að forsenda þess aö reka
fyrirtæki og vera ánægöur hljóti að vera sú að
eiga sér eitthvert líf fyrir utan fyrirtækið."
Sonja B. Jonsdottir