Vera - 01.05.1995, Blaðsíða 28

Vera - 01.05.1995, Blaðsíða 28
Idkskólamál Fjórum vikum fyrir síöustu borgarstjórnarkoso ingar var fariö aö greiöa fólki 6000 krónur á mánuöi fyrir aö nýta ekki leikskólarými fyrir börn sín, en viö þaö styttist biölistinn hjá Dag- vist barna í Reykjavík nokkuö. Þessum greiösl- um lofaöi Sjálfstæöisflokkurinn í kosningabar- áttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar áriö 1990. Loforöiö var efnt fjórum árum síöar - rétt fyrir síöustu borgarstjómarkosningar. 6000 krónurnar runnu þó ekki óskiptar í vasa heima- vinnandi fólks, 40% af þeim fóru beint til ríkis- ins, því greiöslurnar voru skattlagöar og for- eldrarnir héldu eftir 3.600 krónum. arstjórn ekki verjandi að taka 12-15 milljónir af því fé sem ætlað er til dagvistarmála og setja þær beint í ríkissjóð, en það er sú upphæð sem 40% skattgreiðslan nemur. Árni bendir á að stór hópur þeirra sem hafa fengið þessa greiðslu í lögum um leikskóla segir aö öll börn skuli eiga rétt á leikskólavist frá því aö fæö- ingarorlofi foreldra lýkur Þó 3.600 krónur skipti litlu máli fyrir þá efna- meiri geta þær skipt heilmiklu máli fýrir þá sem lifa undir fátæktarmörkum og því miður hefur sá hópur fariö vaxandi á undanförnum árum. Það er þó alltaf spurning hver á að greiöa þessar krónur og í þessu tilfelli eru það börnin sem hafa greitt þær. Þó ekki hvaöa börn sem er heldur börn þeirra sem búa við svo slæm kjör að þeir geta ekki veitt börnum sínum þá menntun sem flest börn fá nú orðið í leikskólum landsins og býr þau undir frekari skólagöngu. Þessum greiðslum hefur nú verið hætt en að sögn Árna Þórs Sigurðssonarformanns Dagvist- ar barna í Reykjavík þykir meirihlutanum í borg- hafi varið henni til að greiða niður dagmæðra- gjöld, en þann 1. september n.k. verðurfarið aö greiða niöur dagmæðragjöld fyrir öll börn frá því að fæðingarorlofi lýkur og til fimm ára aldurs. Árni segir aö samkvæmt lögum sé þaö for- gangsverkefni sveitarfélaga að útvega dag- vistarrými, með leikskólum og niðurgreiddum rýmum hjá dagmæörum. Það sé ekki hlutverk sveitarfélaga aö greiöa fólki fýrir aö vera heima. Sveitarfélögunum beri að nota þetta fjármagn til að bæta stöðu dagmæðra með auknum niður- greiðslum á þeirra gjöldum, auk þess sem nú sé veriö að ræða möguleika á að stuðla að auknu samstarfi dagmæöra meö því m.a. að útvega þeim aðstöðu þar sem þærgeti hist með börnin. Hann segir að meö auknum niðurgreiöslum til dagmæðra muni eftirlit með þeim aukast og batna þar sem einungis verði greitt til þeirra dag- mæðra sem hafa leyfi og með þeim þarnafjölda sem leyfilegur er. Árni segir að þaö muni taka mörg ár aö gefa öllum börnum kost á leikskóladvöl því Sjálf- stæðisflokkurinn skildi eftir sig langan biðlista. Hann sér fram á að með því að verja 450 millj- ónum á ári til uppbyggingar leikskóla, eins og byrjað var á núna, ætti að reynast unnt að upp- fýlla lög um leikskóla í kringum næstu aldamót, en í þeim lögum segir að öll börn skuli eiga rétt á leikskólavist frá því aö fæðingarorlofi foreldra lýkur. Á meðan konur hafa einungis 70% af launum karla er hætt við því aö þegar farið er að greiða fólki fýrir að vera heima, og dagvistargjöldin eru nokkuö há, þyki sjálfsagt mál aö konan kveðji at- vinnulífið og karlinn fari út til aö sækja 100% launin. Mismunandi kjör 100% mannanna eru þó slík að ekki geta öll heimili leyft sér að sleppa alveg 70% laununum. Því er hætt við aö þaö séu frekast tveir hópar kvenna sem sitja eftir heima, annars vegar þær sem eiga karla sem hafa þokkaleg laun og hins vegar tekjulágar eða at- vinnulausar konur sem eiga menn í sömu stöðu og/eöa mörg börn. Því hlýtur sú spurning að vakna hvort ekki sé kominn tími til aö tekju- tengja leikskólagjöldin eða reyna að finna ein- hverjar leiöir til þess að öll börn - líka fátæku börnin - fái aö njóta þess að vera í leikskóla. Árni sagði að þessi mál hafi vissulega komið til umræðu en þetta sé stórt mál í útfærslu og skoða verði þæði kosti og galla á slíku kerfi. Hann sagði einnig að komið hefði til umræöu að veita atvinnulausu fólki afslátt eða niðurfellingu á leikskólagjöldunum en slíkar lausnir væru enn á umræðustigi. Hann benti loks á aö á undan- förnum árum hefði hagur barnafjölskyldna versnað mjög með alls kyns skattbreytingum, þjónustugjöldum og skertum barnabótum og því hlyti þaö að vera verkefni ríkisins aö skila barna- fjölskyldunum aftur þvf sem tekiö hefur veriö af þeim - þaö væri ekki verkefni sveitarfélaga að bæta kjaraskeröingar ríkisstjórnarinnar. Sonja B. Jónsdóttir

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.