Vera - 01.05.1995, Blaðsíða 27
LIFSREGLUR
TIL AÐ STJÓRNA
ÞYNGDINNI
Ekki vera píslarvottur.
Foröastu
a. svelti
b. gremju
c. sektarkennd.
aö hugarfarinu og foröast neikvæöar tilfinn-
ingar í eigin garð. Ef ykkur verða á mistök
skulið þiö kryfja þaö sem gerðist. Þá gengur
þetur næst og mistökin ala ekki á sektar-
kennd. Árangurinn stendur ekki og fellur með
einu atriöi, sem algengt er aö kallaö sé vilja-
styrkur. Margir líta svo á að annað hvort hafi
þeir viljastyrk eða ekki. Hafi þeir hann geti
þeir hætt að reykja eða orðið grannir, annars
sé baráttan til einskis. Það sem þeir kalla
viljastyrk er miklu fremur samheiti yfir sjálfs-
þekkingu, skipulag og ótal önnur atriði sem
við reynum aö ná auknum skilningi á og nota
eins og við getum okkurí hag. Kryfjið málin til
mergjar og notið þekkinguna til að ná tökum
á þeim. Lærið að sleppa EF-innkaupunum og
að setja spurningarmerki við það hvað „góð
húsmóðir" þarf að eiga í ísskápnum.
Mikilvægt er að setja upp forgangsröð og
hafa hreyfingu og hollar matarvenjur í önd-
vegi. Með skipulagi og andlegum undirbún-
ingi er hægt að takast á við freistingar og
komast hjá árekstrum. Undirbúið t.d. frídaga
með áherslu á útivist og leiki og dragið úr
þungu máltíðunum.
„3-0-l-aðferðin“
Með því að borða ekkert fyrr en um miðjan
dag, eins og algengt er um þá sem fara í
megrunarkúr, er einungis verið að undirbúa
hömlulaust hungur og græðgi. Látlaust át á
kvöldin er eðlileg afleiðing af morgunsvelti.
Nýju matarvenjurnar eru einfaldar: Borðið
allan venjulegan mat en sneiðið hjá óþarfa
fitu og sykri. Þið ætlið ekki í megrun eða á
sérfæði, heldur hafið þið skiþt um lífsstíl,
ætlið að þorða reglulega og í hófi. „3-0-1 að-
ferðin" hljóðar upp á þrjár máltíðir á dag, ekk-
ertá milli mála ogað taka einn dagfyriríeinu.
Sjálfstraust er hægt að byggja upp á marga
vegu. Ég hvet ykkur til að ákveða fyrst af
öllu aö reynast sjálfum ykkur vel, eins og
væruð þið besta vinkona ykkar sjálfra.
Forðist kvöldnart, því þrennsla líkamans er
hagstæðari ef ekkert er borðað stðustu þrjá
tímana fyrir svefn.
Byrjið daginn með hollum og góðum morg-
unmat strax og þið farið á fætur, helst ein-
hverju úr öllum fæðuflokkum. Fariö rólega af
stað, lítið í fýrstu og aukið smám saman við
ykkur ef þið eruð ekki vanar morgunmat. Síð-
an borðið þið fjölbreyttan og vel samsettan
hádegis- og kvöldverð. Með þessu móti ætt-
uð þið ekki að vera svangar og þið losnið við
að velta fyrir ykkur aukaþitum. Þeir eru ein-
Yfirvigt er vandamál til að leysa,
en ekki sjúkdómur til að lækna.
Stjórn á þyngdinni er ekki sama
og viljastyrkur.
Stjórnin felst í
a. skilningi á eigin persónuleika.
þ. uppsetningu á forgangsröð.
c. skipulagi fram í tímann.
m
Stjórn á þyngdinni felst ekki í
stríði við hungurtilfínninguna.
■ ■■■ V-7 \«J
^0^ .... 1 \ V
Hægt og örugglega næst sá ár-
angur sem þú ætlar að ná.
Viðhald réttrar þyngdar felst í því
að breyta um lífsstíl. Ekkert ann-
að endist.
(Linda Craighead, University of North-Carolina, Chapel Hill.]
faldlega ekki á dagskrá. Þó getið þið nælt
ykkur T hrökkbrauð eða bita af banana ef
hungriö sverfur að.
Forðist öfgar. Takið þátt í því sem er að
gerast í kringum ykkur, veislum meðtöldum,
en kappkostið að ná taumhaldi á græðginni.
Undirbúið ykkur í huganum og farið ekki af
stað banhungraðar. Þið ætlið að fá „kikkið” T
lífinu út úr öðru en sTfelldu áti, fylla lífið af öðr-
um nautnum, borða til að lifa en ekki að lifa
til að boröa. Það er gaman að fá „kikkið" út
úr því að þorða í hófi.
Af stað að hreyfa sig
Fólki sem er allt of þungt hentar ekki hvaða
hreyfing sem er. Sund, vatnsleikfimi og
ganga á góðum skóm eryfirleittí lagi, en haf-
ið samráð við lækni ef þið efist um getu ykk-
ar. Ég veit að þið eruð flestar feimnar við að
Margir líta svo á að annað hvort hafi þeir
viljastyrk eða ekki. Hafi þeir hann geti þeir
hætt að reykja eða orðið grannir, annars sé
baráttan til einskis. Það sem þeir kalla vilja-
styrk er miklu fremur samheiti yfir sjálfs-
þekkingu, skipulag og ótal önnur atriði sem
við reynum aö ná auknum skilningi á og nota
eins og við getum okkur í hag.
sýna ykkur léttklæddar T Tþróttasölum, sund-
laugum eða búningsklefum innan um straum-
línulagað fólk. Best er að hafa sérstaka tíma
fyrirykkur. Ef þiö eigið ekki kost á því getið þið
fariö nokkrar saman út aö ganga, í sund eða
leikfimitíma ef ykkur finnst þaö léttara.
Muniö aö finna hreyfingu sem fullnægir
ýmsum skilyrðum af ykkar hálfu, annars end-
ast góðu áformin ekki. Ykkur þarf umfram allt
að finnast gaman. Það er ekki nóg að vinkonu
ykkar finnist gaman í eróbikk, þið veljið fýrir
ykkur. Hlustið á ykkar eigin óskir. Reynið að
fá stuðning fiölskyldunnar, þaö er líka hennar
hagur að ykkur líöi betur. Gefist svo ekki uþþ
þótt ykkur líki ekki við það sem þið þrófið
fyrst. Aðrir möguleikar eru fyrir hendi. Og mun-
ið endilega að aukna sjálfstraustið er þrátt
fyrir allt miklu meira virði en kílóin sem kunna
að fjúka. Það er sjálfstraust og væntumþykja
í eigin garð sem gefur ykkur vellíðan, útgeisl-
un og kjark til aö halda áfram.
Gangi ykkur vel!
Eina hegöunin sem þú getur
breytt er þín eigin.
nýr lífsstíll