Vera - 01.05.1995, Blaðsíða 29
norræn mannréttindaráðstefna í júní:
Þann 1. og 2. júní n.k. verður haldin hér á landi
11. Norræna mannréttindaráðstefnan. Þessi
ráðstefna er haldin á vegum Norrænu Mann-
réttindastofnananna og er Mannréttindaskrif-
stofa íslands skipuleggjandi hennar að þessu
sinni.
Viðfangsefni 11. Norrænu Mannréttinda-
ráðstefnunnar verður mannréttindi kvenna og
er ráöstefnan liöur í undirbúningi Norðurlanda
fyrir Heimsþing Sameinuðu þjóðanna um
málefni kvenna í Peking 4.-15. september n.k.
í umræðum á ráðstefnunni verður stuðst við
framkvæmdaáætlunina sem birt verður í apríi
af nefnd Sameinuðu þjóðanna um stöðu
kvenna og niðurstöður fjölþjóölegra svæða-
funda sem haldnir hafa verið til undirbúnings
Heimsþinginu. Ræöumenn á ráðstefnunni eru
alþjóölega kunnir sérfræöingar á sviði mann-
réttinda, þeirra á meðal eru Katarina Tomas-
evski, Ann Marie Penngart, Halfdan Mahler,
Thomas Hammarberg, Ólöf Þórhildur Ólafs-
dóttir og Elsa Stamatopoulou-Robbins.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um
ráðstefnuna geta leitað til Mannréttindaskrif-
stofu íslands, Laugavegi 31, sími 552 2720.
ráðstefna í haust:
OG MANNRÉTTINDI KVENNA 1995
Rannsóknastofa í kvennafræðum viö Háskóla
íslands og mannréttindaskrifstofa íslands
hafa ákveöið að halda ráðstefnu um íslenskar
kvennarannsóknir og mannréttindi kvenna
helgina 20.-22. október n.k. Ráðstefnan
verður þverfagleg og á að endursþegla stöðu
íslenskra kvennarannsókna áriö 1995.
Ráðstefna um íslenskar kvennarannsóknir var
síðast haldin fyrir tíu árum og því við hæfi aö
blása til annarrar núna.
Komið hefur fram tillaga um aö hafa
ráðstefnuna tvískipta: annars vegar fræöilega
fyrirlestra og hins vegar erindi úr kvenna-
baráttunni.
Kvennarannsóknastofan lýsir nú eftir
tillögum að fyrirlestrum meöal þeirra sem hafa
stundaö rannsóknir á sviði kvennafræða og
meðal kvennabaráttukvenna og skulu þær
sendar til Rannsóknastofu í kvennafræðum,
Sumarhöll, Háskóla islands, 101 Reykjavík,
fyrir 1. júní n.k. Þær/þeir sem hafa áhuga eru
beðnar/ir að senda tillögu aö fyrirlestri á u.þ.b.
hálfri til einni blaðsíðu. Einnig óskar stofan
eftir uppástungum um sérstök þemu fyrir
ráöstefnuna.
Fyrirhugaö er að gefa út ráöstefnurit meö
fyrirlestrum ráðstefnunnar.
Taktu þátt
í átaki
sem skilar
árangri
til framtíðar
ráðstefnur