Vera - 01.04.1998, Side 16
í leikskólana
viðtal við Þröst Brynjarsson, varaformann leikskólakennara
hann að segja örlitið irá herferðinni,
starfinu og sjálfum sár.
Hvers vegna er svona nauðsynlegt að karlar
séu starfandi í leikskúlum til jafns við kon-
ur?
Markmiðið er að
gera nám og starf
leikskólakennara
að raunhæfum og jákvæð-
um valkosti fyrir unga
karla. Eg var búinn að velta
því fyrir mér í mörg ár
hvernig við gætum breytt
kynjaskiptingunni innan
leikskólanna. Ég er fæddur
jafnréttissinni og finnst því
eðlilegt að bæði kynin sé að
finna í öllum störfum. Það
segir sig sjálft, að mínu
mati, andrúmsloftið er ein-
faldlega jákvæðara þar sem
bæði kynin eru. I leikskól-
anum eru bæði stelpur og
strákar og eðlilegt að þau
læri hvernig kynin vinna
saman. Þar fer fram mikil
félagsmótun og þetta eru
fyrstu störfin sem þau í raun
kynnast. Svo eru kynin ólík
og maður sér það glöggt að
í þeim leikskólum þar sem
bæði kynin starfa eru leik-
irnir öðruvísi. Þar sem leik-
skólakennarar eru ein-
göngu konur er t.d. óal-
gengt að farið sé í hefð-
bundna strákaleiki, eins og
t.d. fótbolta. Heimiliskrók-
ar í öllum leikskólum eru
t.d. yfirfullir af förðunar-
græjum en hvergi ein ein-
asta rakvél, sem dæmi.
Hvatningin til hlutverka-
leikja er oft lítil fyrir strák-
ana og þó að aðstaða eins
og t.d. smíðahorn sé til staðar er hún lítið
notuð. Strákaleikirnir eru oftar hávaða-
samir og óþrifalegir og þar sem kvenna-
menning er ráðandi er oft auðveldlega gef-
ist upp. Best er sagan sem Margrét Pála
hefur oft notað, þar sem strákurinn bað
um að vera pabbinn í leiknum, stelpan
hugsaði sig um lengi og sagði síðan: „Ok,
Félag íslenskra leikskólakennara stend-
ur um þessar mundir fyrir auglýsinga-
og kynningarherferð þar sem starf leik-
skólakennarans er kynnt fyrir ungum
körlum sem vænlegur starfsvettvangur.
Af þvi tilefni tók VERA varaformann fé-
lagsins, Þröst Brynjarsson tali og bað
i
i
16 v£ra