Vera - 01.04.1998, Page 20
Stelpurnar
4
ssm geta betur
Föst hefð hefur skapast um Spurningakeppni
framhaldsskólanna, Gettu hetur, þar sem átta
lið keppa til úrslita í sjónvarpi ár hvert. Þjóðin
situr við skjáinn til að herja þessa ungu snill-
inga augum - fyrirmyndir annarra ungmenna,
fulltrúa framtíðarinnar. En er hugsanlegt að
eitthvað sé bogið við þessa mynd? Hugum að
því. Á sviðinu eru tvö lið, hvort skipað þremur
ungum mönnun, úrvalinu úr framhaldsskólun-
um. Og heima í stofu spyr fólk sig: Hvar er
kvenfólkið? Og barnið spyr: Eru stelpur vitlaus-
ari en strákar? Einhver segir: Stelpurnar þora
ekki! Annar segir: Strákar eu klárari en stelp-
ur! Sá þriðji segir: Það er eitthvað bogið við
keppnina.
Nafn: Inga Þóra Ingvarsdóttir
Aldur: 18 ára
Skóli: Menntaskólinn við Hamrahlíð,
3. námsár.
Námsbraut:
Félagsfræðabraut
Búseta: Vesturbær í Reykjavík
Nafn: Anna Dóra Valsdóttir
Aldur: 18 ára
Skóli: FjöUirautaskálinn í Breiðholti,
2. námsár.
Námsbraut:Nýmálabraut.
Búseta: Breiðholt i Reykjavik
Nafn: Herdis Sigurgrímsdóttir
Aldur: 17 ára
Skóli: Fjölbrautaskóli Suðurlands,
2. námsár.
Námsbraut: Náttúrufræði- og
málabraut.
Búseta: Eyrarbakki
i'
(
Það reynist erfitt að greina vandann. Það vantar ekki að for-
ráðamenn keppninnar hvetji til þess að stúlkur séu í liðunum
og opnar forkeppnir fari fram á vegum nemendafélaga í skól-
unum. En ár eftir ár mæta samt 24 galvaskir drengir til keppni í
sjónvarpi.
Svo gerast þau undur og stórmerki í vetur að þrjú lið hafa á að
skipa kvenkyns keppanda og hlutfallið verður 21 strákur og 3 stelp-
ur. Til leiks eru mættar þrjár kvenhetjur sem óneitanlega skera sig
úr á sviðinu. Athyglin hlýtur að að beinast að þeim. Þetta eru stelp-
ur sem alist hafa upp við að horfa á strákana keppa. Og heima hjá
þeim var sagt: Þetta getur þú! Anna Dóra, Herdís og Inga Þóra
fengu þá hvatningu sem til þurfti heima hjá sér. Þú reddar þessu fyr-
ir kvenþjóðina, var sagt heima hjá Önnu Dóru. Og þessar stelpur
létu sig hafa það að vera kallaðar gáfnaljós eða frekjur.
Herdis: Engin ein stelpa má skara framúr.
Anna Dóra: Þær mega ekki trana sér fram.
Inga Þóra: Þær eru hræddar um hvað strákarnir hugsa.
Herdis: Sjálfstraustið vantar.
Anna Dóra: Strákarnir hafa frekar trú á sjálfum sér.
Herdis: Þeir mega vera besservisserar en við erum bara
stimplaðar frekjur.
Anna Dóra: Stelpurnar þurfa frekar hvatningu. Sjálfstraustið
vantar.
Inga Þóra: I MH stóðu stelpurnar í nemendafélaginu fyrir
sérstakri undankeppni þar sem því var lofað að enginn fengi að vita
hvað við gætum.
Herdis: Eg dró vinkonu mína með í undankeppnina og við vorum
einu stelpurnar en það var fullt af strákum.
Anna Dóra: Það var bent á mig og ég beðin að taka þátt.
Herdís: Það þarf að finna betri aðferð til að finna þátttakendur.
Inga Þóra: Stelpurnar hafa minni trúa á sér og trana sér ekki fram.
Anna Dóra: Það er betra að vera valin af öðrum, t.d. að kennarar
bendi á mann.
Sumir hafa bent á að spurningarnar í Gettu betur séu á þröngu sviði
og áherslan sé öll á einstök minnisatriði upp úr alfræðibókum. Sú
gagnrýni, sem til dæmis hefur verið beint að sagnfræðinni að
reynsluheimur kvenna sé þar verulega vanræktur, á þá í einhverjum
tilfellum við um spurningarnar í Gettu betur. Það má til sanns veg-
ar færa að viðfangsefnum og áhugasviðum kvenna sé ekki gert hátt
undir höfði í spurningakeppninni og það má velta því fyrir sér hvort
20 v?ra