Vera - 01.04.1998, Blaðsíða 21
t
Dæmi um spurningar sem hefði
mátt spyrja í Gettu betur:
Nefnið þrjú náttúruefni og þrjú gervi-
efni sem netuð eru í föt.
Hvaða estur er notaður í grískt salat?
Nefnið þrjá íslenska fatahönnuði sem
getið hafa sár gott orð á sínu sviði.
I hvaða tilgangi er saumsporið sikksakk
helst notað?
Hvaða jurt er notuð til að græða og kæla
hrunasár?
Uppúr hve heitu vatni er óhætt að þvo
flíkur úr lopa án þess þær skemmist?
Hvernig lauk ævi Úfelíu?
Hvað er höfuðfætla?
í hvaða mánuðum er talið óhætt að
sækja skelfisk í fjörur?
í hvaða skáldsögu nefnast höfuðpersón-
urnar Úlfhrún, Korka og Ása?
Hvaða fæðutegund er ríkust af járni?
Hvaða viðbit á íslandi inniheldur
minnsta dýrafitu?
Um hvað fjalla kenningar Piagets?
Hvaða konu er svona lýst: „Hún var allra
kvenna vænst er upp óxu á íslandi. Hún
var kurteis kona svo að í þann tíma
þóttu allt harnavípur er aðrar konur
höfðu í skart hjá henni. Allra kvenna
var hún kænst og hest orði farin. Hún
var örlynd kona."
V w
slík þekking þyki ekki nægilega merkileg. Inga Þóra hefur t.d.
sýnt galdraofsóknum mikinn áhuga og veit allt um það efni.
Hún reiknar þó ekki með að sú þekking nýtist sér í spurninga-
keppninni.
Inga Þóra: Stundum eru hafðar ein eða tvær kvennaspurningar.
Eru þá allar hinar spurningarnar karlaspurningar?
Herdis: Nei, það held ég ekki.
Inga Þóra: Nei, þetta á að vera svona „common knowledge”.
Anna Dóra: Það er stundum spurt um frægar konur.
Inga Þóra: Konur sem hafa komið sér áfram í heimi karla?
Það má eflaust velta því lengi fyrir sér á hvaða þekkingarsviðum
karlar séu sterkari en konur og á hvaða sviðum konur hafa yf-
irburði. Til gamans birtast hér dæmi um spurningar sem vel
hefðu átt heima í Spurningakeppni framhaldsskólanna. Lesend-
ur geta svo velt vöngum yfir því hvort kynið sé líklegra til að
svara þessum spurningum hiklaust og örugglega. Það gátu þær
Herdís, Inga Þóra og Anna Dóra.
ÁO
21 vCra
VEISLAN
VEITINGAELDIIÚS
SÍMI5612031
10 ár á Nesinu
Veislumatur • Kaffiboð
Brúðkaupsveislur og ráðgjöf
Afmœlisboð • Gœða smurbrauð
Hádegisveróaþjónusta
Útveeum sali • Gerum tilboð
Brynjar E\nuiii(lsson
matreiðslumeistari
Veislusalurinn
Sóltúni 3, Reykjavík
(A kógesh úsið)
G. Elsa Guðniuiulsdóttir
sinurbrauðsjómfrú
(