Vera - 01.04.1998, Síða 24
i
bell hooks
Verk femínistans eftir Þórdísi Valdimarsdóttur
bell hoeks eru orðin
mörg og vel þekkt, að
minnsta kosti í Banda-
ríkjunum. Á árunum
1981 til 199B hefur
hooks gefið út þrettán
bækur, skrifað ótelj-
andi greinar í tímarit,
haldið fjölmarga fyrir-
lestra innan lands og
utan, auk þess að koma
fram í viðtalsþáttum í
útvarpi og sjónvarpi.
Hróður hennar (eða ó-
hróður!) hefur borist út
um Evrópu og eru
kvennafræðinemar hér
á íslandi meira að
segja að lesa greinar
efiir þessa umdeildu
blökkukonu.
/jc///oo/u'
í fjölmiðlum og enn fremur þar sem
hooks er þekkt, og gagnrýnd, fyrir
það að skrifa mikið út frá persónu-
legri reynslu. bell hooks er fædd og
uppalin í Hopkinsville í Kentucky
snemma á sjötta áratugnum þegar
þar ríkti algjör aðskilnaður hvítra og
svartra. Faðir hennar skúraði póst- *
hús og mamma hennar var húsmóðir
þar til börnin sex voru komin á legg,
en þá varð hún þjónustukona hjá
hvítri fjölskyldu. bell á fjórar systur
og einn bróður en hún er sú eina af
systkinunum sem er langskólageng-
in. Sem barn var hún ákveðin í því
að verða rithöfundur og las allt sem
hún komst í tæri við. Eins og flestir
blökkumenn í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna tilheyrði fjölskylda hooks
svartri babtistakirkju og þar og hjá
langömmu sinni fann hooks hvatn-
ingu til að mennta sig. Hún útskrif-
aðist með B.A gráðu í ensku frá
Stanford University og hélt síðan til
University of California þar sem hún
útskrifaðist með doktorsgráðu í
ensku. Doktorsritgerðin fjallaði um
verk blökkukonunar Toni Morrison,
sérstaklega fyrstu skáldsögu hennar
The Bluest Eye.
Fljótlega eftir nám fór bell hooks
að kenna við Yale og síðar við Oberl-
in. Báðir þessir háskólar eru mjög
virtir og dýrir einkaskólar. Þrátt fyr-
ir betra kaup og styttri vinnutíma
kaus hooks að flytja sig um set og
kenna fólki sem er nær hennar eigin
bakgrunni. I dag kennir hooks við
City College í Harlem í New York.
City er ríkisrekinn háskóli í spænsku
Harlem og þar eru rúmlega 80%
nemenda litaðir, ólíkt Yale eða O-
berlin þar sem langflestir nemend-
urnir eru af efri millistétt og hvítir.
Gloria Watkins er skírnarnafn hooks en rithöfundanafnið
tók hún upp strax sautján ára. bell hooks er dregið af
nafni langömmu hennar en ástæðan fyrir því að hún skrif-
ar það með litlum stöfum er sú að hún, eins og fleiri
femínistar, var þeirrar skoðunar að það sem skipti megin
máli væri boðskapur textans en ekki höfundurinn. Þetta
kann aðdáendum bell hooks að þykja kaldhæðnislegt í
dag, þar sem hún sem persóna er orðin rnikið til umræðu
Tengsl svartra kvenna
við kvennahreyfinguna
Bækur bcll hooks eru hver annarri ólíkar. Fyrsta bókin
hennar Ain't I a Woman: Black Wotnen and Feminism
kom út 1981 og tekur á viðhorfum kvennahreyfingarinn-
ar í Bandaríkjunum til svartra kvenna. í bókinni sakar
hooks svartar konur um að hafa látið sér nægja að berjast
fyrir kynþáttajafnrétti en gleymt að hugsa um kvenrétt-
24
v?ra