Vera - 01.04.1998, Síða 36
Spennuhlaðið tímabil - Á þessum tíma hleðst upp
spenna á milli hjóna/sambýlisfólks. Árásar-
hneigð gagnvart hlutum eykst og allir í
fjölskyldunni vita hvað er að gerast.
Fjölskyldumeðlimir ganga með veggjum og vita
ekki hvenær sprengjan fellur, einungis að hún er
um það bil að springa.
Sprengitímabilið - Ofbeldisaðilinn springur og
beitir ofbeldi á einhvern hátt. Bæði getur hann
beitt maka sinn ofbeldinu og börn sín. Stundum
getur ofbeldið verið það alvarlegt að lögregla
skerst í leikinn eða einhver þarf að fara á
slysadeild. I mörgum tilfellum eru veggirnir einu
vitnin að ofbeldinu.
Hlýja ng notalega tímabilið - Ofbeldisaðilinn sýnir
iðrun, biðst fyrirgefningar og reynir að sýna
ábyrgð á gjörðum sínum. Hann lofar maka
sínum og/eða börnum öllu fögru og telur sig geta
breytt hegðun sinni. Hann ætlar ALDREI að
gera þetta aftur.
úr einföldum vandamálum sem upp koma í
daglegu lífi, t.d. í skóla. Hæfileikinn til að leysa
vanda á annan hátt en með barsmíðum er ekki
til staðar. Þau hafa lært á heimili sínu að sá sem
elskar þau mest, lemur þau mest. Þannig er
fyrirmyndin. Börn sem alast upp við ofbeldi á
heimili sínu geta haft eitthvert þessara einkenna:
‘ Magakvalir, höiuðverk, niðurgang ng væta
rúm sitt.
* Eru áberandi stressuð.
* Eru sviiasein og iylgja ekki eðlilegum þroska.
* Eiga við talörðugleika að stríða.
* Geta ekki iundið til með öðrum einstaklingum.
* Ráða illa við að stjórna tiliinningum sínum.
* Finnst þau ekki haia í neitt öruggt skjól að
leita.
* Eiga eriitt með einbeitingu og gengur illa í
skóla.
* Lélegt sjálismat.
þar sem ofbeldi á sér stað læra hegðunina og
nota hana þegar þau sjálf stofna heimili.
Fræðimönnum ber ekki saman um hversu
alvarleg áhrif ofbeldi í æsku getur haft á
viðkomandi einstakling. Ljóst er að börn sem
alast upp á ofbeldisheimili fá ranga mynd af
samskiptum fullorðinna einstaklinga. Þau eiga
því erfiðara með að takast á við eðlileg samskipti
þegar þau vaxa úr grasi.
Áfengi - Mjög margar konur vilja meina að
ofbeldi eiginmanna þeirra tengist áfengisnotkun.
Ofbeldinu getur verið beitt undir áhrifum
áfengis, eða daginn eftir að þess hefur verið
neytt. Sambandið á milli áfengisneyslu og
ofbeldis er flókið og ekki hægt að útleggja á einn
veg. Þó má ljóst vera að áfengisneysla afsakar
aldrei heimilisofbeldi. Hún getur verið ein
fjöldamargra skýringa en er aldrei afsökun.
Fjöldi manna beitir maka og börn sín ofbeldi
alsgáðir og yfirvegaðir.
* Blendnar tilfinningar gagnvart foreldrum
sínum og þau treysta illa fulforðnu fólki.
Af hverju viðgengst
heimilisofbeldi?
Ekki er til einhlít skýring á því hvers vegna fólk
beitir ástvini sína ofbeldi. Margir fræðimenn
hafa rannsakað orsakatengslin og komist að
þeirri niðurstöðu að margir áhrifaþættir spili þar
inn í. Neðangreindir þættir þykja líklegir til að
vera orsakavaldar en þetta eru einungis nokkrir
af fjölmörgum orsakaþáttum heimilisofbeldis.
Lærð hegðun - Börn sem alast upp á heimilum
Af hverju fer hún ekki?
Heimilisofbeldi snýst að hluta til um
valdbeitingu. Sá sem beitir ofbeldi er að sýna
vald sitt. Vald sem hann hefur yfir annarri
manneskju sem í þessu tilfelli er eiginkona
hans. Að sama skapi upplifir eiginkonan sig
vanmáttuga, hrædda, niðurlægða og reiða.
Um leið og konan er dottin í farið að vera
hrædd og undir í valdabaráttunni gefst hún
upp. Hún fer að líta á ofbeldið sem hluta af
sambandinu, þótt hún viti innst inni að svona
eigi samband ekki að vera. Lélegt sjálfsmat
hennar gerir henni erfiðara að ganga út. Því
lengur sem hún er í sambandinu, þeim mun
erfiðara er að yfirgefa manninn. Aðrar
algengar ástæður fyrir því að konur halda
kyrru fyrir í ofbeldissamböndum eru:
* Þær trúa því að þær geti breytt hegðun
eiginmanna sinna.
* Þær trúa þvi að þeir bæti sig.
* Trúarleg eða menningarleg skoðun að
skilnaðir séu röng ákvörðun.
* Fjárhagslegar ástæður.
* Hótanir um meira oibeldi eða jainvel dauða
ei hún ier irá honum.
* Hótanir mannsins að taka hömin ai henni
eða gera þeim mein.
* Hótanir um oibeldi gagnvart hennar nánustu.
Það læra börnin
sem fyrir þeim er haft
Á íslandi verða hundruð barna vitni að
heimilisofbeldi á ári hverju. Þau horfa á foreldra
sína meiða og verða sára. Stundum verða þau
fyrir ofbeldinu, bæði á beinan og óbeinan hátt.
Hlutum er kastað og þeir lenda á börnum en þau
geta líka verið sá aðili sem ofbeldinu er beint
gegn. 1 sumum tilfellum horfa þau á eða hlusta
á sársaukavein foreldranna. Foreldrar eru
fyrirmyndir og börnin læra það sem fyrir þeim er
haft. Börn sem búa við heimilisofbeldi eiga oft
mjög erfitt með að tjá tilfinningar sínar. Hegðun
þeirra verður yfirleitt óeðlileg eftir að þau hafa
verið vitni að ofbeldi. Þau kunna ekki að leysa
Valdabarátta - I hjónabandi hefur
karlmaðurinn verið drottnandi frá aldaöðli.
Hann er höfuð fjölskyldunnar og hann lítur
gjarnan sjálfur á sig sem sameiningartákn
hennar. Þar sem bókstafstrú ríkir telur
karlmaðurinn sig hafa vald frá guði til að
refsa konu sinni og láta hana hlýða. Almennt
er vald karlmannsins undirstrikað á einn eða
annan hátt í trúarbrögðum. Ofbeldi sem
karlmaðurinn beitir konuna snýst um að sýna
valdstyrk sinn og þar hjálpar til að karlmenn
eru í flestum tilfellum líkamlega sterkari. í
rannsókn árið 1982 komu Hildigunnur
Ólafsdóttir, Sigrún Júlíusdóttir og Þorgerður
Benediktsdóttir fram með kenningu þar sem
segir: „f reynd eru valdatengslin í hjónabandi
oft líkari sambandi hins sterka og veika
fremur en jafnrétthárra einstaklinga.”
Fjárhagssknrtur, atvinnuleysi og streita eru
þættir sem jafnframt vega þungt sem
skýringar á ofbeldinu.
Heimilisofbeldi þrífst á þögninni.
Nauðsynlegt er að opna umrœðuna þar til
allir vita að keimilisofbeldi á aldrei rétt á sér
og það er ekki einkamál fórnarlambanna.
Heimildir:
Stjórnarskrá. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið.
Reykjavík 1996. Almenn hegningarlög. Dóms- og
kirkjumálaráðuncytið. Reykjavík. Júní 1997
Skýrsla dómsmálaráðherra um orsakir, umfang og
afleiðingar heimilisofbeldis og annars ofbeldis gegn
konum og börnum. Dóms- og kirkjumálaráðu-neytið.
Febrúar 1997.
Árskýrsla Samtaka um kvcnnaathvarf 1996.
wysiwyg://24/http://dekalbsheri ff.org/domvio.html
wrc-gbmc.org/Articles/violancel.html
exnet.iastate.edu/Pages/nncc/Abuse/sac43ðinnocent.
victi m.html.
36 v^ra