Vera - 01.04.1998, Side 39
Hún var fimmtán ára gömul og búin að hitta tilvonandi eiginmann sinn.
Hún gerði sér fljótlega grein fyrir að hann lenti oft í ryskingum þegar
þau voru að skemmta sér saman en fannst það ekkert til að hafa áhyggjur
af. Hann var svo góður alla hina dagana. Samband þeirra þróaðist eins og
gengur og gerist og á nokkrum árurn voru þau búin að stofna eigið heimili
og orðnir foreldrar. Fyrstu merki um ofbeldi gagnvart henni komu í Ijós
þegar hann var drukkinn og fór að kalla hana ljótum nöfnum. Hún lærði
fljótt á mynstrið í hegðun hans á meðan hann drakk. Ef hún vogaði sér að
biðja hann að koma heim, eða hætta að drekka, kom gusan. Hóra, mella,
fífl og fáviti, kveðjurnar voru allar á þessa leið. Þetta var einungis byrjun-
in. Hann var alltaf undir áhrifum áfengis þegar hann beitti ofbeldi, hvort
sem það var niðurlæging í orði eða barsmíðar. Þegar börnin voru orðin tvö
hófust barsmíðarnar. Oftast endirinn á laugardagskvöldi að loknu sam-
kvæmi.
Henni var hent á skápa, hún kýld niður í rúm eða slegið til hennar. Al-
varlegasta árásin átti sér stað fyrir mörgum árum en er fersk í minningunni.
Hann sat við drykkju heima hjá sér að loknum dansleik. Hún var farin að
sofa þegar hann réðst á hana og skipaði henni að korna fram í stofu. Hún
karlmann var sá hinn sami búinn að fá högg. „Hann breytist í annan mann
í hvertskipti sem hann drekkur. „ Hann er mjög góður rnaður þegar hann
er edrú, kurteis og skemmtilegur.
Hún ræddi stundum við hann urn að fara í áfengismeðferð en ekki mátti
heyrast á það minnst. Hann átti ekki við áfengisvandamál að stríða. Hún
segist hafa skammast sín fyrir ástandið og lagt sig frarn um að halda þessu
leyndu. Foreldrar hennar komu mikið inn á heimilið en þau vissu ekki hvað
hafði gengið á fyrr en mörgum árum seinna. Kíktu þau í heimsókn á sunnu-
dagsmorgni eftir átakanótt, var búið að þrífa húsið hátt og lágt. Allir á
heimilinu tóku þátt í að leika leikritið til enda. Þau voru hin hamingjusama
fjölskylda út á við.
Þær voru margar næturnar sem hún þurfti að flýja eiginmann sinn og þá
var ekki um marga staði að velja. „Eg svaf frekar i bílnum en að fara heim
til foreldra minna, þótt þau byggju nálægt okkur. Ég vildi ekki sverta
mannorð hans gagnvart þeim.”
Síðustu árin í hjónabandinu voru átakamikil. Hann drakk stíft og of-
beldið var í beinu hlutfalli við drykkjuna. Ástandið versnaði þegar börnin
voru farin að heiman. „Á tímabili var ég farin að drekka með honum.”
„Hann er svo góður maður”
iðmælandi minn cr
glæsileg kona á fimmtugs-
aldri en lítur ekki út fyrir
að vera degi eldri en 35
ára. Hún er ein af þús-
undum kvenna sem hafa
upplifað að vera fórnar-
lamb heimilisofheldis. í
áag er hún laus úr prís-
undinni. Það voru þung
spor að ganga út af heimili
s»nu( frá öllu sem hún
hafði byggt upp í gegnum
arin og þeim sem henni
iannst vænst um. Hún
íállst á að segja sögu sínu
i von um að hún geti hjálp-
að öðrum konum sem
standa í sömu sporum og
hún gerði í fjöldamörg ár.
var á nærfatnaði einum
klæða. Hún leit á hann
og sá að hann er með
stóran hníf í hendi.
Henni tókst að flýja und-
an honum og út úr húsinu.
Hún hljóp rakleiðis til vinahjóna sinna sem bjuggu skammt frá. Það eina
sem hún gat komið frá sér var að börnin væru inni í húsinu. Hún bað ná-
grannann að fara heim til sín og athuga með börnin. Nágranninn gat róað
manninn og sat hjá honum þar til hann sofnaði. Börnin sluppu ómeidd og
sváfu atburðinn af sér. Daginn eftir mundi eiginmaðurinn ekki eftir neinu
frá kvöldinu áður frekar en í öll hin skiptin þegar ofbeldi átti sér stað. Hún
þurfti nokkrum sinnum að hringja á lögregluna og láta fjarlægja manninn
sinn af heimilinu ef hún óttaðist mjög um öryggi sitt og barnanna. Aldrei
leitaði hún til læknis vegna áverkanna, til þess var hún allt of hrædd. Of-
beldinu beitti hann aldrei gagnvart börnurn sínum. Það beindist gegn henni
og öðrum karlmönnum sem urðu á vegi hans þegar hann var drukkinn.
Hann var ákaflega afbrýðisamur. Ef hún svo mikið sem talaði við annan
Endalok hjónabandsins voru ekki umflúin í hennar huga.
Það tók mörg ár að safna kjarki og horfast í augu við að
eitthvað var athugavert við sambandið. Hann kýldi hana
þegar hún tilkynnti að hún væri farin frá honum endan-
lega. Þá nótt flúði hún heim til foreldra sinni í fyrsta
skipti. Tuttugu og fimm ára hjónabandi var lokið. í dag
er hún byrjuð að skapa sér nýtt líf og farin að geta séð
hlutina í öðru ljósi. Hún leitaði sér aldrei aðstoðar í
Kvennaathvarfinu. Eina aðstoðin í gegnum tíðina var
hjálp frá lögreglunni er hún hafði hringt og óskað eftir
aðstoð. Foreldrar hennar reyndust henni vel. Þau studdu
hana þegar hún var búin að taka þessa ákvörðun. Börn-
in áfelldust móður sína fyrir að yfirgefa heimilið. 1 þeirra
huga var hún að bregðast. Fyrrverandi eiginmaðurinn
sverti hana í þeirra augum. Hann trúir því enn að hún
komi aftur til hans. Hún er komin í aðra sambúð og nýi
sambýlismaðurinn á sök á því að hjónabandinu lauk, að
mati fyrrverandi eiginmannsins, ekki að eitthvað hafi ver-
ið athugavert í hjónabandinu. Á annað ár er liðið frá því
hún fór og núna eru öll börnin farin að heimsækja hana
og hafa eðlileg samskipti. Þau hjónin ráku fyrirtæki, áttu
einbýlishús, bíla og fínan sumarbústað. Við skilnaðinn
stóð hún eftir með fötin sín í tösku. Hún gerði ekki til-
kall til neinna eigna.
Ertu bitur yfir því hvernig hlutirnir hafa þróast ?
„Ég vann myrkranna á milli og sá um stórt heimili. Ég
vann alla daga vikunnar í fyrirtækinu okkar. Ég kom
heim, eldaði mat fyrir alla fjölskylduna og fór aftur að
vinna. Heimilið okkar var eins og félagsmiðstöð sem ég
sá algjörlega um. Ég sakna þess að umgangast ekki allt
fólkið sem kom mikið til okkar. Ég sé hins vegar mest eft-
ir þeim ttma þegar ég var sívinnandi. Eftir á sé ég kannski
af hverju ég var alltaf að vinna. Það var ákveðinn flótta-
leið. Ég sé líka hvað ástandið var orðið alvarlegt þegar ég vildi ekki fara út
með manninum mínum. Ég gat ekki hugsað mér að vera innan um annað
fólk með honum.”
Hvernig líður þér í dag?
Mér líður mjög vel. Ég get farið út að skemmta mér án þess að hafa á-
hyggjur af slagsmálum eða að einhver verði sér til skammar. Ég þarf ekki
iengur að leika hlutverk og vera í leikriti. Auk þess er virkilega gott að
finna að börnin eru farin að koma til mín aftur. Ég fann í gegnum skilnað-
inn hverjir hafa reynst góðir vinir og þeir hafa svo sannarlega staðið með
mér. 1 dag þarf ég bara að bera ábyrgð á sjálfri mér. Ég get verið ég sjálf.”
39 v^ra