Vera - 01.04.1998, Blaðsíða 40
1 iæ g t að
r hor g
Úkosturinn við vaxandi þáttfaýlismyndun er stöðugt vax-
andi umferðarþungi og plássfrek mannvirki sem taka við
þeim þúsundum sem vilja faúa á höfuðborgarsvæðinu. En
með markvissri stefnu er hægt að faúa líka til pláss fyrir
þau sem vilja ganga um nágrenni sitt og hjóla horgarhluta
á milli, óáreitt af faOaumferðinni. Við ræddum við starfs-
menn gatnamálastjóra Reykjavíkur um fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við göngu- og hjólreiðastíga í sumar en ótal
möguleikar fajóðast nú til útivistar á skemmOegum göngu-
leiðum í faorginni.
Skerjafjörður
í sumar veröur lagður stfgur meöfram störndinni í Skerjafirði, þar
sem fara hefur þurft upp fyrir olíusvæði.
Frá því að göngubrú var sett yfir Kringlumýrarbraut 1995
hefur gönguleiðin úr Fossvogsda! um Öskjuhlíð og Ægis-
síðu út á Seltjarnarnes verið ákaflega vinsæl en sú leið tengist
Elliðaárdal og Heiðmörk. I sumar mun kafli leiðarinnar í
Skerjafirði verða lagfærður þar sem var olíusvæði og þurfti að
taka krók fram hjá. Borgin hefur nú keypt það svæði og mun
leggja göngustíg meðfram ströndinnifsjá 1. mynd). Einnig hef-
ur verið lagður göngustígur neðan við kirkjugarðinn í Fossvogi
svo ekki þarf lengur að ganga í gegnum hann.
Helsta framkvæmdin í sumar verður hleðsla grjótvarnar við
Sæbraut og lagning göngu- og hjólreiðastígs samhliða því inn
í Laugarnes en stígurinn er nú kominn nálægt gatnamótum
Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar (sjá 3. mynd). Þaðan er
gott að ganga að útivistarparadís borgarinnar í Laugardal en í
Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum er dagskrá alla daga á sumr-
in. Framundan er einnig gerð göngubrúar yfir Kringlumýrar-
braut við Sóltún en sl. sumar var göngubrú yfir Miklubraut á
móts við Rauðagerði tekin í notkun og tengir hverfin norðan
Miklubrautar við Fossvogs- og Elliðarárdal. I sumar verður
stígurin meðfram Miklubraut til vesturs einnig lagfærður.
Til þess að hægt sé að ganga hringinn í kringum elsta hluta
borgarinnar vantar enn tengingu frá stígnum við Ægissíðu að
stígnum sem Iiggur frá gömlu höfninni meðfram strandlengj-
unni við Sæbraut og inn í Laugarnes. Fyrirhugað er að aðal-
gönguleiðin af suðurströndinni (Ægissíðu) að norðurströnd-
inni muni liggja meðfram Frostaskjóli og KR-vellinum að
Eiðsgranda og áfram um Ánanaust en nú standa yfir miklar
gatnaframkvæmdir við Ánanaust (sjá 2. mynd). Þeim verður
lokið á þessu ári og verður lagður stígur sjávarmegin við göt-
una sem tengist stígum á Granda út í Örfirisey.
Ur Laugarnesi liggur stígur sjávarmegin við Sæbraut (Klepps-
veg) að Holtavegi þar sem farið er yfir á ljósum. Fyrirhugað er
að fara í gegnum Þróttarsvæðið í framtíðinni en unnið verður
að gerð stígar meðfram hljóðmön ofan við Sæbraut (Klepps-
veg) í sumar. Þá er stutt í tengingu við Grafarvog en fallegur
stígur liggur framhjá athafnasvæði Björgunar við Sævarhöfða
inn í Grafarvog (sjá 4. mynd) þar sem stígar liggja um allt
hverfið. Einnig hefur verið lagður stígur neðan við Korpúlfs-
staði meðfram Leirvogi að ósum árinnar Korpu sem eru bæj-
armörk Reykjavíkur og Mosfellsbæjar (sjá 5. mynd).
Hægt er að ganga úr Elliðaárdal um efra Breiðholt upp í
Heiðmörk, helstu útivistarperlu borgarinnar. I nánustu fram-
tíð verður lagður nýr stígur þá leið og verður hann austan við
Elliðaár, framhjá hestamannasvæði Fáks.
EÞ
40 vera