Vera - 01.04.1998, Page 42
Hún heitir Dsk Óskarsdóttir og hefur ver-
ið afkastamikil á tónlistarsviðinu. F/rir
jól gaf hún út geisladisk með jólalögum
og nú er von á öðrum diski sem nefnist Óskin.
Hún kallar hann vordisk en helmingur lag-
anna er við ljóð eftir skáldkonuna Jakobínu
Johnson - ástarljóð til íslands, en Jakobína
flutti vestur um haf 5 ára gömul. Ósk lærði á
píanó og þverflautu þegar hún var lítil og
byrjaði 14 ára að semja tónlist. Þegar hún var
18 ára var hún farin að spila í pásum hjá Guð-
mundi Ingólfssyni á Hominu og fleiri stöðum.
Ósk semur lögin, spilar undir, syngur, tekur
upp í eigin stúdíói og gefur út sjálf en Hljóma-
lind sér um dreifinguna. „Ég hef verið að
safna upptökugræjum og hljóðfærum og er nú
komin með fullkomið hljóðver hér heima,"
segir Ósk en hún fékk íbúð í verkamannabú-
stað í Breiðholtinu þegar hún flutti heim fyrir
nokkrum árum með börnin sín þrjú. Þá hafði
hún búið í Bretlandi og Bandaríkjunum í
meira en áratug en ákvað að setjast að á ís-
landi. „Ég spila á þverflautu með Rósu Björg
Helgadóttur sem kennir hrynlist í Waldorf-
skólanum á Grundarstíg og hjá Mannspekifé-
laginu," segir Ósk. „og svo er ég að taka upp
ljóðadisk með Birgittu Jónsdóttur sem kemur
út um næstu jól. Tónlistin á honum er aðal-
lega eftir Pollock bræðurna."
Skyndimynd