Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 4
Agi og uppeldi G
Vangaveltur um börn og stööu grunnskólans hafa verið mikið í umraeðunni. Vera fékk
fjórar manneskjur til að tjá sig um málið - Odd Albertsson skólastjóra Lýðskólans,
Helgu Sigurjónsdóttur menntaskólakennara, Guðrúnu Þóru Hjaltadóttur foreldri og
Margréti Arnljótsdóttur skólasálfræðing.
Bríet og sneiðin af kökunni 14
Bríet er félag ungra femínista sem í daglegu tali ganga undir nafninu Bríeturnar. Þær
stjórna útvarpsþættinum Emblu á Bylgjunni á sunnudagskvöldum þar sem þær fjalla
um kvenréttindi. Brynhildur H. Ómarsdóttir ræddi við þær.
Qfsóknir gegn konum í Afganistan 18
Meðferð talebana á konum í Afganistan hefur verið líkt við ofsóknir gegn gyðingum.
Undanfarið hafa konur um allan heim tekið þátt í undirskriftasöfnun á Netinu til að
mótmæla þeim hryllingi sem viðgengst í landinu og skora á þjóðir heims að gera eitt-
hvað í málinu.
Esther í Bang Gang 22
' Esther Thalía Casey er söngkona í hljómsveitinni Bang Gang og einn af stofnendum
leikfélagsins Leikskólans. Kvenréttindakonan Bríet Bjarnhéðinsdóttir var langa-
langamma hennar. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við Esther um lífið og tilveruna.
Bella Ahzug 24
Ein merkasta kvenréttindakona aldarinnar lést á síðasta ári. Hún var sannkölluð hetja
- byrjaði 13 ára gömul að rísa gegn ofurvaldi karla og hætti því ekki meðan hún lifði.
Eitt af því sem rekja má til baráttu hennar eru kvennaráðstefnur Sameinuðu þjóðanna
sem haldnar hafa verið síðan 1975.
Hefur þú efni á að spara til ellinnnar? 26
Undanfarið hefur mikið verið rætt um lífeyrismál og nauðsyn þess að leggja meira fyr-
ir til ellinnar en lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð. Vera kynnti sér ný lög um lífeyrismál og
komst að því að í þeim er ákvæði sem telst mikil réttarbót fyrir giftar konur sem hafa
ekki haft tækifæri til að greiða í lífeyrissjóð.
Kvennalistakonur í Samfylkingunni 36
Framboðslistar Samfylkingarinnar fyrir alþingiskosningarnar eru að verða til og er
hlutur kvenna þar víðast með ágætum. Vera kynnir Kvennalistakonurnar sem taka að
sér að heyja þessa sögulegu kosningabaráttu.
Að komast áfram á kjaftinum 46
Athyglisverð grein eftir Bergljótu Baldursdóttur, málfræðing og dagskrárgerðarkonu,
þar sem hún greinir frá rannsóknum á ólíku málfari karla og kvenna og veltir fyrir sér
möguleikum kvenna í stjórnmálum þar sem hinn karllegi talsmáti hefur verið ríkjandi.
Ekki lengur pabbi, mamma, börn og bíll 50
Ösp Viggósdóttir gaf nýlega út litabókina Fjölskyldur eftir Bandaríkjamanninn Mich-
ael Willhoite. Þar er börnum kennt að ekki séu allar fjölskyldur eins og að ekkert sé
athugavert við það.
Þvagleki - algengt vandamál meðal kvenna 52
Vala S. Valdimarsdóttir ræddi við hjúkrunarfræðingana Guðríði Þorsteinsdóttur hjá
Lyfju og Eddu Ólafsdóttur og Unni Björk Gunnarsdóttur hjá Össuri um þvagleka. Þar
er um að ræða algengara vandamál en marga grunar, en til eru hjálpartæki og fyrir-
byggjandi ráð sem konur ættu að kynna sér.
Ást á konudaginn 58
Vilt þú fé blómvönd á konudaginn, bara af því að blómasalar keppast við að auglýsa
að nú verði eiginmenn að gefa eiginkonum sínum blóm? Agla S. Björnsdóttir er á
annarri skoðun og dregur hér upp grátbroslega mynd af konudegi.
Dagbók femínista 17 Leikhús 20 Bíé 51 Ténlist 56
Forsíðumyndin er af
ungum femínistum í
félaginu Bríeti.
tfmarit um konur
og kvenfrelsi
1/99 -18. árg.
Austurstræti 16,
101 Reykjavík
s: 552 2188
og 552 6310
fax: 552 7560
vera@centrum.is
http://www.centrum.is/vera
útgefandi
Samtök um kvennalista
ritnefnd
Agla Sigríður Björnsdóttir,
Brynhildur Heiðar- og
Ómarsdóttir
Heiða Jóhannsdóttir
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
Ragnhildur Helgadóttir,
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir,
Sigrún Erla Egilsdóttir
Sigurlína V. Ingvarsdóttir <j
Sólveig Jónasdóttir,
Vala S. Valdimarsdóttir
ritstýra og ábyrgðarkona
Elísabet Þorgeirsdóttir
skrifstofustýra
Vala S. Valdimarsdóttir
utlit og tölvuumbrot
Matthildur Björg
Sigurgeirsdóttir
Ijósmyndir Bára o.fl.
auglýsingar
Áslaug Nielsen
sími 533 1850
fax 533 1855
filmuvinna
Offsetþjónustan hf.
prentun
Grafík
plastpökkun
Vinnuheimilið Bjarkarás
©VERAISSN 1021-8793
ath. Greinar í Veru eru /
birtar á ábyrgð höfunda
og eru ekki endilega
stefna útgefenda.