Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 11

Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 11
Helga Sigurjónsdóttir, menntaskólakennari Valdalausar kennslukonur - hvers vegna? Haustið 1957 hóf ég störf sem barnakennari í Kópavogsskóla þaðan sem ég hafði útskrifast með barnapróf átta árum áður. Sumir samkennara minna voru fyrrum kennarar mínir, góðir kennarar og sómi stéttar sinnar enda virtir af nemendum og foreldrum. Þá var þetta karlastarf og naut virðingar. Með setn- ingu fyrstu fræðslulaganna 1907 tókst þjóðarsátt um menntun. Hún var talin með eftirsóknarverðustu gæðum lífsins, þess vegna voru kennarar mikils metnir. Þeim var trúað fyrir því ábyrgðarmikla starfi að miðla þekkingu til ungmenna og koma dýrmætum menningararfi Vesturlanda milli kynslóða; arfi sem á rætur að rekja til menningar fornríkjanna við Miðjarðarhaf. Þá kom engum til hugar að kyn kennara skipti máli. Góður kennari var sá sem náði að fullnægja fróðleiksþorsta nem- enda, glæða áhuga þeirra á námsefninu og opna þeim nýja heima. Hjá slíkum kennara leið börnunum vel, þau voru kappsfull og áhugasöm og vildu gera betur og betur. Karlmennirnir hurfu úr grunnskólun- um En nú er af sem áður var. Kennarar eru ekki lengur virt stétt og vel launuð enda ekki lit- ið á starf þeirra sem fræðslustarf fyrst og fremst. Grunnskólakennarar hafa samþykkt að verða nokkurs konar vinnukonur allrar þjóðarinnar. Þeir telja sér skylt að auk sjálfrar kennslunnar sé stundleg og tímanleg velferð barna og unglinga á ábyrgð þeirra ekki siður en foreldra. Með því að undirgangast þessar kröfur stjórnvalda, foreldra og uppeldisfræðinn- ar hafa grunnskólakennarar glatað forræði yfir eigin starfi. En hvernig gerðist þetta? Hvernig glataði virt stétt og valdamikil hvoru tveggja völdum og virðingu á fáum árum? Upphafið má rekja til stofnunar skólarannsóknadeildar í menntamálaráðuneyti árið 1966. Uppeldisfræði var ný en vanmáttug fræðigrein sem átti sér ekki lífs von nema með því að ná völdum í menntakerfinu. Til að það tækist varð að rýra gildi hefðbundinnar kennaramenntunar og gera lítið úr kennslu starfandi kennara. En fyrsta skrefið var samt að fá full- komið vald yfir menntun kennara. Það tókst þegar kennaramenntun- in færðist á háskólastig. Þá var hlutur svokallaðra uppeldisgreina aukinn en menntun í kennslugreinum látin mæta afgangi. Samtímis var hafinn áróður gegn kennarastéttinni: „gömlu” kennararnir voru til fárra fiska metnir og starf þeirra ekki aðeins lélegt heldur jafnvel hættulegt þroska og velferð barna og unglinga. Uppeldisskólinn var að taka við af hefðbundnum eða klassískum skóla. Nýjungunum fylgdi ekki aðeins valdaleysi heldur ómæld en ólaunuð heimavinna, m.a. gerð námsefnis í stórum stíl. „Gam- alt og úrelt námsefni", eins og uppeldisfræðin kallaði kennslubæk- urnar, þótti ekki boðlegt lengur. Þar sem nýtt og betra námsefni lét á sér standa, og gerir enn, hafa kennarar orðið í frítíma sínum að búa til námsefnið að miklu leyti sjálfir. Fyrir enga borgun. Eftir fá ár við þessi kjör hurfu karlmennirnir hreint og beint úr grunnskólunum, aðeins skólastjórar héldu velli en einnig þeir eru að hverfa. En hvers vegna fóru þeir fremur en konurnar? Skýring mín er sú að karlar hafi sökum menningar sinnar kunnað betur að verð- leggja tíma sinn og vinnu en konur. Margar kvennanna voru að stíga fyrstu skrefin á vinnumarkaði en á þessum árum var reglan sú að gift- ar konur ynnu ekki utan heimilis. í samræmi við aldagamla kvenna- menningu voru konur ekki vanar að verðleggja tíma sinn og vinnu. Þær voru því tiltölulega auðveld bráð valdaránsmanna, ekki síst þeg- ar höfð var að yfirvarpi samúð með svokölluðum lítilmagna í skóla- kerfinu, börnunum sem lentu í tossabekkjunum og áttu ekki aftur- kvæmt þaðan. 11 Agi ag uppeldi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.