Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 58
o
rjfr'.
1 Yl Yl hafði greinilega undirbúið daginn vel, því
þegar ég vaknaði í morgun glöð í hjarta yfir þessum degi -
mínum degi og kynsystra minna, þá var svipurinn á honum
þannig meðan hann svafað ég vissi að ég mætti eiga von á
einhverju óvæntu. Ég vildi ekki vekja hann, fór því hljóðlega
á fætur og út í bakarí til þess að hann gæti fengið ný rún-
stykki þegar hann kæmi á fætur. Þegar ég kom úr bakaríinu
svaf þessi elska enn, svo ég fékk mér bara brauðið frá því í
gær að borða, ég vildi ekki taka nýju rúnstykkin - vildi bíða
eftir því að hann vaknaði. Ég las sunnudags Moggann sem
var yfirfullur af áminningum til karlmanna um að þeir skyldu
ekki gleyma konudeginum heldur gefa spúsum sínum blóm
- það væri tákn um ást. Ég fann hlýju streyma um mig yfir
hugulsemi blómakaupmanna. Þeir eru svo nærgætnir, þvíef
ekki væri fyrir þeirra óhlutdrægu áminningu væru trúlega
einhverjar konur sem fengju ekki blóm þennan dag. Ég á
samt bágt með að trúa að það skuli vera til karlmenn sem
gleyma konudeginum. Ekki vildi ég vera í sporum þeirra
kvenna. Þvíhvað er aumkunarverðara en kona sem ekki fær
blóm á konudaginn?
Klukkan er hálf tólf þegar minn maður rís úr rekkju - hann þurfti nú á
þessari hvíld að halda eftir erfiða vinnuviku og svo vakti hann svo lengi í
nótt yfir boxinu. Hann vildi ekki rúnstykkin, sagði að það væri komið há-
degi og hann þyrfti eitthvað matarmeira enda hef ég oft heyrt að karlar
þurfi að borða heita máltíð helst tvisvar á dag. Eftir hádegið fór hann að
hitta strákana sem hann spilar fótbolta með á sunnudögum, þeir kalla sig
„the oldies”. Karlmenn sem vinna svona mikið þurfa að hreyfa sig og losna
við stressið. Það er ekki nóg fyrir hann að fara í líkamsreekt þrisvar ( viku,
þó svo að hann spili körfubolta með vinnufélögunum tvö kvöld vikunnar.
Karlmenn verða að fá líkamlega útrás.
Eftir fótboltann kom hann við hjá vini sínum að skoða nýja jeppann hans
og fékk að taka prufurúnt. Algjört megataeki og gott fyrir ímyndina sagði
hann. Kom í leiðinni við á vídeoleigu og leigði spólu svo við gætum haft
það huggulegt í kvöld. Rosa fín mynd með Bruce Willis þar sem hann sýn-
ir frábæra drápstakta - reglulega afslappandi. Ég undirbjó kvöldmatinn -
uppáhaldið hans, steikt lambalæri að hætti mömmu hans með brúnni
sósu, brúnuðum kartöflum og ís í eftirrétt. Settist svo inn í stofu með
þvottastaflann sem ég átti eftir að brjóta saman frá því í morgun og dáðist
að manninum mínum þar sem hann fékk sér smá „kríu” fyrir matinn. Hann
var þögull yfir matarborðinu enda ekki furða, það er nú ekkert smá álag
sem hann býr við alla daga í vinnunni. Svo var hann eflaust að hugsa um
konudaginn og hve miklu máli hann skipti mig. Ég fékk hálfgert samvisku-
bit - hann sem hafði um þarfari hluti að hugsa var að eyða tíma í að hugsa
um mig. Ég ákvað að bæta honum þetta upp og baka ólífubrauð sem hann
gæti tekíð með í vinnuna í fyrramálið handa sér og vinnufélögunum. Ég hef
gert það áður og félagar hans voru yfir sig hrifnir.
Eftir kvöldmatinn settist þessi elska inn í stofu fyrir framan sjónvarpið á
meðan ég gekk frá í eldhúsinu og byrjaði að hnoða brauðið. Eftir féttatíma
Stöðvar 2 og Rúv kom hann fram í eldhús og sagðist hafa steingleymt því
að það væri konudagurinn í dag, hann hefði áttað sig á því þegar hann sá
viðtal í fréttum við blómasala sem var ánægður með afrakstur dagsins.
Þessi elska sagðist ætla að kippa málunum í lag hið snarasta og dreif sig
út og kom að vörmu spori með blómvönd handa mér, nokkrar rósir sem
voru örlítið farnar að hneigja höfuðið og sellófanið aðeins farið að rifna. Ég
get nú ekki ætlast til þess að hann fari að eltast við einhverja fína blóma-
búð, þessi sem fást í sjoppunum og í matvöruverslununum eru fullboðleg.
Það er hugurinn sem skiptir máli - það sagði hann a.m.k. um leið og hann
kyssti mig á kinnina. Ég gekk frá blómunum í lítinn en fallegan blómavasa
sem ég átti, á meðan setti hann spóluna með Bruce Willis í tækið. Ég sett-
ist svo inn í stofu hjá honum eftir að ég var búin að finna til poppið og gos-
ið. Myndin náði ekki að fanga athygli mína svo ég fór bara að athuga með
brauðið, straujaði, setti aftur í vélina, athugaði hvort þvotturinn á snúrunni
væri orðinn þurr, fann til fötin okkar fyrir morgundaginn og fyrr en varði var
klukkan að nálgast miðnætti. Hann bauð mér góða nótt, var að fara að
sofa því það var langur dagur framundan. Ég gekk frá í stofunni, þaö hafði
óvart farið popp á gólfið og í sófann án þess að hann tæki eftir því. Ég setti
blómin inn í stofu, reyndi að finna ilminn af þeim og hugsaði um leið og ég
slökkti Ijósið að ekki væru allar konur eins heppnar og ég að fá blóm á
konudaginn.
58
Aum er sú kona
Það er víst engín hætta á því að konudagurinn fari fram hjá
neinum, hvorki körlum né konum. Svo rækilega erum við minnt
á hann af blómasölum. „Karlmenn! Konudagurinn er á sunnu-
daginn, blómin fást hjá okkur.” „Karlar, gefið konum ykkar blóm
á konudaginn.” o.s.frv. Þetta glymur í eyrum okkar vikuna fyrir
konudaginn því blómasalar vita sem er að þetta er þeirra
góssentíð. Þennan dag „neyðast" flestir karlar til að gefa kon-
um sínum blóm. Þegar ég segi „neyðast” þá held ég að ég taki
ekki of sterkt til orða, því skilaboð blómasala til beggja kynja
eru að konur „eigi” að fá blóm á þessum degi. Aum er sú kona
sem ekki fær blóm á sjálfan konudaginn. Ekki getur hún sagt
við bónda sinn: „Elskan - þú gieymdir að gefa mér blóm á
konudaginn.” - því þá væri hann vís með að rjúka út í búð og
kaupa þessa litlu „tíkarieg” vendi sem fást þar, svona rétt til að
redda sjálfum sér - og hvaða kona víll fá blóm við þær aðstæð-
ur?
Ég heyrði um daginn viðtal við blómasala að norðan. Hann
var að vonum ánægður með að konudagurinn værí að nálgast,
ekki bara vegna aukinnar blómasölu heldur tjáði hann alþjóð að
ekki væri nóg að gefa konum sínum blóm heldur byðu þeir upp
á „ástarhvata”, sem er sér norðlensk blanda af nuddolíu til að
nudda elskuna sína upp úr. Hann sagði líka annað, sem sýnir
hversu merkingarlaus þessi dagur er orðinn, því ekki einungis
þurfa þeir að velja blómin fyrír karlana heldur skrífa á kortin fyr-
ir þá líka. Konudagurinn er því enginn konudagur lengur.
Það sem mér fínnst sorglegast við allt sem tengíst þess-
um degi er að sumar konur fá kannski aldrei blóm frá maka sín-
um nema þennan eina dag á ári, blómvönd sem að auki er gef-
Inn af skyldurækni. Það eru til fullt af öðrum tílefnum og „ekki”
tilefnum til að gefa konu sinni blóm - „konudagurinn” getur ver-
ið oftar en einu sinni á ári. Það er alltaf gaman að fá blóm, en
það er líka margt annað sem er miklu meira gaman að fá. Ég
yrði alsæl ef minn heittelskaði þyðist til að kosta heimilishjálp
allan ársins hring, svo við hefðum meiri tíma saman og þyrftum
ekki að eyða frítíma okkar í þrif. Eins myndi ég ekki slá hend-
inni á móti því ef hann byði mér í helgarferð út á land, að ég tali
nú ekki um til útlanda. Þetta þarf samt ekki að vera neitt stór-
kostlegt, smá tilbreyting í hversdagsleikann segir allt sem segja
þarf. Bara það að maturinn sé stöku sinnum tilbúinn þegar við
komum þreyttar heim úr vinnunni, að búið sé að láta renna í
baðið, nudd á þreyttar tær o.s.frv. gerir oft á tíðum miklu meira
en blóm. Eflaust spyrja einhverjar sig hvort við þurfum ekki að
gera „eitthvað” fyrir þá í staðinn - jú, að sjálfsögðu. Þeim þykir
eflaust líka mjög gott að láta koma sér á óvart stöku sinnum,
en það er ekki málið I þessum pistli.
Við konur þurfum hins vegar að vera á varðbergi og passa að
gera okkur ekki svo ómissandi á heimilinu að karlarnir taki okk-
ur sem sjálfsögðum hlut sem nóg sé að henda í blómvendi einu
sinni á ári. Því miður er það oft á tíðum svo - og þær gleðjast
heil ósköp yfir þessum vendi sem þær allra náðarsamlegast
fengu. Konur, gleðjumst ekki yfir blómvendi og korti sem ein-
hver blómasali hefur valið og skrifað eitthvað „sætt” á. Karl-
menn eru ekki hugsanalesarar og því þurfum við að láta vita
hvað við viljum og hvað við viljum ekki. Ég tel það enga afsök-
un að segja að karlinn kunni ekki að elda og því sé vonlaust mál
að reikna með honum í eldamennskuna. Stelpur mínar, það er
til fullt af skemmtilegum matreiðslunámskeiðum sem hægt er
að innrita þá á og er mjög sniðug gjöf þeim til handa.
A
Agla S. Björnsdóttir