Vera - 01.02.1999, Qupperneq 10
Agi ag uppeldi
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
hússtjórnarkennari, næringarráðgjafi ag fareldri
ÉHver á að temja
börnin okkar?
Hvað er agi ? Eiga börnin okkar við agavandamál
að stríða? Ein af skýringum Orðabókar Menninar-
sjóðs við AGA er tamning við regiusemi. í mín-
um huga er agavandamál barna okkar mun víð-
tækara. Mér finnst börnin okkar kærulaus, ókurt-
eis, þau bera enga virðingu fyrir sjálfum sér og
litla virðingu fyrir náunganum, ekki einu sinni
fyrir þeim sem eldri eru.
Stór hluti þessara barna er afsprengi „Blómsturbarnanna” - barnanna
sem vildu meira frelsi. Var það þetta sem við vildum? Vildum við að
börnin okkar taekju við stjórninni eða yrðu stjórnlaus? Þeir sem eiga
dýr, til dæmis hunda eða hesta, temja þau, fara á námskeið eða borga
of fjár til annarra sem sjá um tamninguna. Af hverju ætti þetta að vera
öðruvísi með börnin okkar? Virðing fyrir venjum og siðum er ekki með-
fæddur hæfileiki, þetta þarf að lærast. Hver kom þeim í þennan heim?
Ber okkur ekki skylda til að skila vinnunni okkar? Mikil umræða hefur
verið um að skólarnir ættu að kenna börnunum okkar. Að sjálfsögðu eiga
skólarnir að kenna þeim. Þeir eiga að kenna þeim námsefnið og eiga
kröfu á að fá frið til þess. Við foreldrarnir eigum að gera þá kröfu til barn-
anna okkar að þau trufli ekki starf skólans. Við foreldrar berum ábyrgð á
börnunum okkar. Sem foreldri barns í Hagaskóla hef ég gengið um
gangana og hlustað á unglingana sem allt of mörg þekkja ekki sín tak-
mörk. Einnig hef ég kennt í öðrum skólum og þar er ástandið ekki betra.
Ef okkur þykir vænt um börnin okkar, viljum við tryggja framtíð þeirra.
Sýnum þeim þá ástúð að kenna þeim mannasiði.
Pampers bleiur
með LotionCare
Nýjung - nú eru til bleiur sem annast húð barnsins þíns! Röndum af mildum verndandi húðlegi hefur verið
bætt í Pampers bleiurnar. Allar Pampers bleiur veita nú húðinni meiri vörn en þurrleikan einan, með
svolitlum húðlegi. það eru mjóar rendur af mildum, ilmefnalausum legi innan á hverri bleiu. Þegar barnið
hreyfir sigflyst lögurinn yfir á húð barnsins, myndar verndandi lag og stuðlar að því að húðin haldist mjúk
og heilbrigð. LotionCare dregur mjög úr hœttu á að roði og óþœgindi myndist á bleiusvœðinu. Foreldrar
taka eftir því að pirringur og roði í húðinni er miklu sjaldgœfari þegar notaðar eru bleiur með LotionCare.
Víðtœkar prófanir hafa veriö gerðar á húðleginum og sannað er að hann er fullkomlega öruggur, jafnvel
fyrir börn með viðkvæma húð. ^