Vera - 01.02.1999, Page 38
Þórunn Sveinbjarnardóttir
í 4. sæti í Reykjaneskjördæmi
Þórunn Sveinbjarnardóttir er fædd í Reykjavik 22. nóvember
1965. Hún er stjórnmálafræðingur frá Háskóla íslands og Johns
Hopkins University í Bandaríkjunum. Að námi loknu starfaði hún
við móttöku flóttamanna frá Víetnam hjá Rauða krossi íslands og
var síðan í starfsþjálfun á upplýsingaskrifstofu EFTA í Genf um
hálfs árs skeið. Árin 1992-1995 var hún framkvæmdastjóri Sam-
taka um kvennalista og sat í stjórn Hlaðvarpans frá 1994-1997.
Síðastliðin þrjú ár hefur Þórunn starfað fyrir Alþjóða Rauða
krossinn við hjálparstörf í Tansaníu og Aserbaidsjan, auk þess að
sinna sérverkefnum fyrir RKÍ. í fyrra var hún prófkjörs- og kosn-
ingastjóri Reykjavikurlistans en hefur frá miðju ári 1998 starfað
sem blaðamaður á Morgunblaðinu og ritað um sjávarútvegsmál
og erlend málefni.
Þórunn hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir
Kvennalistann. Hún var aðalmaður í Útvarpsráði frá 1995-1997
og situr i nefnd Alþingis um endurskoðun kosningalaga. Hún sat
í fyrstu stjórn Evrópusamtakanna og var talsmaður þeirra árið
1996. Þórunn tók virkan þátt í stúdentapólitíkinni i Háskólanum
og var kosin fyrsti formaður Röskvu árið 1988.
Bætum þjóðfélagið!
Ég vil að konur og karlar vinni saman að því að skapa þjóðfélag sem
byggist á jafnræði, mannúð og framsýni. Það verður verkefni stjórn-
málanna á næstu öld. Tryggjum efnahagslegt sjálfstæði kvenna. Upp-
rætum launamun kynjanna. Karlar fái að minnsta kosti þriggja mán-
aða fæðingarorlof. Náttúran er ein stærsta auðlind þjóðarinnar, njót-
um hennar en misnotum ekki. Þjóðfélag sem býður öryrkjum og öðr-
um bótaþegum að lifa við hungurmörk er ekki á réttri leið. Samfylk-
ingin á að gera það að forgangsmáli að skapa þessum hópum mann-
sæmandi kjör. íslendingar eiga að vera málsvarar mannréttinda í
heiminum. íslendingar eru meðal ríkustu þjóða heims. Við eigum að
sjá sóma okkar í því að styðja fátækar þjóðir og rækja þá skyldu okk-
ar að veita flóttamönnum skjól hér á landi. Með sameinuðum kröftum
okkar getur Samfylkingin tekist á við verkefni nýrrar aldar!
treysta a
Námskeið Rauða kross ístands
• Atmenn skyndihjálp
• Sálræn skyndihjálp
• Barnfóstrunámskeió
• Námstefna um neyðarvarnir
• Sendifulttrúanámskeið
• Alþjóðamál og alþjóðastarf
• Mannúð og menning
• Námskeið URKÍ
• Slys á börnum
• Leiðbeinendanámskeið
Auk fjötda annarra námskeiða
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Rauða krossi íslands og deildum um attt land.
Þú getur ekki alltaf treyst því að aðrir þekki réttu viðbrögðin vió
slysum og öðrum áföllum. Þú gætir einmitt lent í þeirri aðstöðu að
líf og andleg velferð annarrar manneskju séu háð því að þú bregðist
rétt við á réttu andartaki. Ertu búinn undir það?
Það getur borgað sig aó kunna að bregðast
við því óvænta í lífinu.
Hringdu og pantaðu bækling um námskeiðin okkar.
Rauði kross íslands
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík. Sími 570 4000
heimasíða: www.redcross.1s
Netfang: central@redcross.is
38