Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 52

Vera - 01.02.1999, Blaðsíða 52
Guðríður Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Lyfju í Reykjavík Þvagleki - algengt vandamál meðal kvenna. Öll höfum viö lært þá list í bernsku að stjórna eigin þvaglátum en vegna álags, elli, veikinda eöa slysa getum við misst þenn- an hæfileika á lífsleiðinni. Flestir telja að vandi þessi sé ein- göngu bundinn við aldraðar konur en svo er hreint ekki því ung- ar konur og miðaldra eiga einnig við hann að stríða. Könnun, sem fór fram í október 1993 meðal kvenna í Öxarfjarðarhéraði, (úrtak 131 kona), sýnir að 56% kvenna 21 árs og eldri hafi þvagleka, þar af 29% talsverðan eða mikinn. Þetta er í sam- ræmi við hæstu niðurstöður erlendra rannsókna. Tíðni þvag- leka eykst með aldrinum og talið er að allt að helmingur kvenna yfir sextugt leki þvagi. Vandinn er einnig þekktur með- al karla þó í mun minna mæli sé. vagleki er hulið vandamál sem lítt hef- ur verið til umræðu á opinberum vett- vangi og á meðan þetta er feimnismál verður erfiðara fyrir þolendur að glíma við vandann. Þvagleki er viðkvæmt vandamál sem tengist sjálfsmynd þolenda og víst er að sumir líða einnig andlega. Það hlýtur að vera óásættanlegt að eiga það á hættu að blotna í tíma og ótíma og það er vissulega hamlandi að þurfa alltaf að ganga með bl- eyju og hafa áhyggjur af því hvar næsta kló- sett sé að finna. Verst er að margir bera sig ekki eftir hjálp þegar hana er auðvelt að fá því mikið er hægt að gera til að bæta ástandið og sumir ná fullum bata.Tímabært er að opna umræðuna, ekki bara meðal kvenna því það hjálpar auðvitað að karlar séu líka upplýstir. Undirrituð lagði leið sína til Lyfju í Reykja- vík til að fræðast nánar um þvagleka. Þar tóku á móti mér þau Guðríður Þorsteins- dóttir hjúkrunarfræðingur og Ingi Guðjóns- son framkvæmdastjóri. Þau buðu mér inn í herbergi hjúkrunarfræðings, en í þaö er inn- angengt úr versluninni sem er stórglæsileg. Guðríður vinnur sem ráðgjafi í fullu starfi hjá Lyfju í Lágmúla og til hennar geta viðskipta- vinir leitað með vandamál sín án þess að eiga pantaðan tíma. Guðríður er margfróð um þvagleka og til hennar hafa margir leitað. Hjá Lyfju er hægt að fá mikið úrval af þvag- lekavörum. Má þar nefna bleyjur, buxur með innleggi og tappa, auk lyfja að sjálfsögðu en þau fást aðeins gegn lyfseðli. Rétt er að geta þess að Tryggingastofnun ríkisins greiðir bleyjur fyrir þá sem þurfa að nota þær að staðaldri samkvæmt læknisráði. Hjá Lyfju liggja einnig frammi fjölmargir bæklingar fyr- ir almenning um ýmis veikindi og kvilla, meðal annars um þvaglekann. Ég bað Guð- ríði fyrst að útskýra fyrir mér hvernig lækna- vísindin skilgreina vandann. „Tvenns konar þvagleki er algengastur, áreynsluleki og bráðaleki. Áreynsluleki kall- ast það þegar kona lekur þvagi við líkam- lega áreynslu, [ leikfimi, vegna hósta, hnerra eða hláturs. Þá þarf viðkomandi ekki að losa þvag heldur lekur aðeins meðan áreynsla varir. Einkennin eru mismikil en þessi tegund þvagleka er algengust í kringum tíðahvörfin. Áreynsla á grindarbotninn getur hrundið áreynsluþvagleka af stað. Fylgni er milli fjölda meðgangna / fæðinga og áreynslu- þvagleka. Feitu fólki er einnig hættara við honum en öðrum því þunginn þrýstir á blöðru og girndarbotn. Margt bendir til að stoðvefur þeirra sem fá kvillann sé veik- byggðari en hjá þeim sem heilbrigðir eru. Bráðaleki kallast það þegar þvagleka fylg- ir mikil þvaglátsþörf og viðkomandi getur ekki við neitt ráðið. Stundum getur aukið andlegt álag eða vatnsniður kallað fram bráðaleka. Konan missir þá oft þvag á leið- inni á klósett. Stafar þetta af ótímabærum samdrætti í þvagblöðru. Bráðaþvagleki ger- ir oft vart við sig eftir breytingaskeið vegna hormónabreytinga, vöðvar I grindarbotni hafa rýrnað og breytingar orðið á slímhúð. Eykst tíðni hans jafnt og þétt eftir tíðahvörf- in. Erting í þvagblöðru vegna sýkingar, bólgu eða æxla getur einnig valdið bráðaleka. Stundum hafa konur einkenni beggja teg- unda þvagleka og er það kallað blandleki.” Grindarbotnsæfingar hjálpa mörgum Guðríður hefur orðið vör við það í starfi sínu að þvagleki sé feimnismál. Hún hefur séð viðskiptavini pukrast með bleyjukaup og oft kemur þolandi ekki sjálfur til hennar en sendir einhvern fyrir sig að leita upplýsinga. Stundum koma konur og leita hjálpar vegna þvagleka bræðra sinna. Verst finnst Guðríði þó sú tilhugsun að fólk leiti ekki hjálpar held- ur bíti bara á jaxlinn. „Ég ráðlegg fólki sem til mín kemur með þennan vanda að fara til læknis. Með venju- legri skoðun má greina kvillann og þá fyrst er hægt að vinna að bata. Stundum er ein- faldlega um þvagfærasýkingu að ræða. Læknir skoðar hvort blöðru- eða legsig sé á ferðinni og ef svo er ekki er kannað hvers 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.