Vera - 01.02.1999, Síða 57
Þessi afsakandi formáli er hér hafður til að segja
ykkur hvað ég er glöð yfir að hafa ekki neyðst til
að skrifa undir pressu um plötuna hennar Möggu Stínu
strax og hún kom út í haust og þurfa svo að segja
nokkrum mánuðum síðar: Sorrí Stína, fyrirgefðu hvað
ég skrifaði illa um plötuna þína, en ég er búin að skipta
um skoðun. Ég var nefnilega ekkert sérlega hrifin af An
Album, eins og skífan heitir, nema hvað mér þóttu tvö -
þrjú lög ágæt. Að öðru leyti fannst mér platan pirrandi,
þannig að áður en hún pirraði mig of mikið gaf ég henni
hvíld fram yfir áramót. Og viti menn, hljómar þá ekki
Magga Stína á nýju ári eins og ferskur andblær, mátu-
lega klikkaður og ég hef komist að þeirri niðurstöðu að
tónlistin á An Album og flutningur Möggu Stínu sé það
mest ögrandi í þopþ-plötuflóði síðasta árs.
Ég set Möggu Stínu þó ekki í efsta sæti, hún verður
að sætta sig við seigluna í Bubba efsta, síðan fyndnina í
Súkkati, fallega áferð Lhooq, eilífa snilld Stuðmanna og
það að ég er Kolrössu - fan. Pví að þrátt fyrir mjög
skemmtilega takta í tónlistinni og sjarmerandi flutning á
grimmilegum textunum í dálitlum Risaeðlustíl þá er eins
og krafturinn í Möggu Stínu komist ekki alveg til skila út
úr hljóðverinu og til hlustandans. Ekki veit ég hvort þar
er um að kenna upptökustjórn, upptökuandanum eöa
bara hlustandanum mér...en hvað um það; Graham
Massey, sem m.a. hefur unniö með Björk, tekur þátt i
upptökustjórninni í öllum lögum með Möggu Stínu, en
auk þeirra Lhooq-menn og Valgeir Sigurösson í sitt-
hverjum fjórum (af 12). Mér finnst Magga Stína njóta
sín best með Lhooq-liðinu (í Naturally, l-Cuba, Agent
Bíbí og Bikers-relations), en líka ágætlega með Valgeiri í
Battery-love og Operation.
Móa var á topp 5 listanum hjá mér fram að áramótun-
um en er nú komin niður fyrir Möggu Stínu eöa réttar
sagt nokkrar plötur mjökuöust uppfyrir hana, því aö
platan hennar hefur ekki versnað. Universal kom mér
nefnilega þægilega á óvart þegar ég heyrði hana fyrst.
Hér er á ferðinni góð og snyrtilega sexý popp-plata með
léttum tilraunablæ. Lagasmíðar eru ágætar, rúmur helm-
ingur eftir Móu, en hinar unnar í samvinnu við Eyþór
Arnalds, eigin- eða/og sambýlismann hennar. Bækling-
urinn með disknum er svalur og svart-hvítur með flottum myndum af Móu og eng-
ar stafsetningarvillur í textum eins og hjá Möggu Stínu...
Móa hefur sérstakan söngstíl sem fellur ekki öllum í geð, en ég er alveg sátt við
hann. Hún minnir mig t.d. á tvær söngkonur sem ég hef alltaf haldið mikið uppá:
fyrst og fremst Anisette, söngkonu hinnar konunglegu dönsku hipparokksveitar
Savage Rose sem á rætur að rekja til ársins 1967 og er enn starfandi; og í annan
stað finnst mér Móa bera keim af hinni bandarísku Earthu Kitt...Ekki leiðum að líkj-
ast skal ég segja ykkur.
Boltarfrá Gymnic
Dýnurfrá AIRE
P. OLAFSSON eht
Trönuhrauni 6 • 220 Hafnarfirði
Sími 565 1533 • Fax 565 3258
57