Vera - 01.04.2004, Side 17

Vera - 01.04.2004, Side 17
/ UNGT FÓLK OG JAFNRÉTTI HJÁ MÖRGU UNGU FÓLKI ÞYKIR ÞAÐ MJÖG EÐLILEGT AÐ FÍLA KLÁM. MARGAR STELPUR REYNA AÐ VERA SEXY OG FÁ ÞANNIG ATHYGLI FRÁ STRÁKUNUM. ÞÆR KYSSA AÐRAR STELPUR TIL AÐ FÁ ÞESSA ATHYGLI líka bara í svo miklum minnihluta. Manni er kennt að skammast sín ef maður er á móti klámi. Það er tengt við áhuga á kynlífi og það er eins og maður hafi ekki lyst á kynlífi ef maður er á móti klámi! Ég er á móti klámi vegna þess að það sýnir svo firrtan boðskap. Svo er klám ógeðslegt og við höfum enga þolinmæði fyrir því." Fyrirmyndirnar segja að strák- ar séu fyndnir en stelpur sexý Næst leiðum við hugann að fyrir- myndum sem hljóta að hafa áhrif á þessi viðhorf ungs fólks í dag. Ida segir þetta byrja mjög snemma, m.a. með fyrirmyndum í fjölmiðlum, for- eldrum og leikföngum. „Strákarnir segja t.d.: „Sjáið þessa, hún er svo flott." Stelpur eru aldar upp þannig að þeim líður vel ef þær fá athygli vegna útlitsins. Það skiptir ekki máli hvort hún sé dugleg eða klár. Stelpur eru aldar upp þannig að þeim líður vel ef þær fá athygli vegna útlitsins." Raggi bendir á að fjölbreytni í fyrir- myndum fyrir stelpur sé af skornum skammti en: „Karlar mega vera Ijótir og feitir en eru samt fyndnir, ekki konur." Ida nikkar til samþykkis: „Já, það þykir töff að vera þannig fyndinn en þegar konur eru þannig þá þykir það bara ógeðslegt." Raggi leiðir hugann aftur að femínistum og segir: „Svo þegar þessar konur fara að berjast á móti misréttinu þá er talið að þær séu al- gjörar grýlur. Þetta er svo ótrúlegt. Sorglegt í rauninni," segir hann. Það er rétt... þetta er ótrúlegt. Sér- staklega þegar maður lítur á Idu og Ragga sem eru svo ung og sæt og langt frá því að vera lík henni Grýlu. Þegar Ida og Raggi eru að lokum spurð um framtíðarmótmæli segjast þau vilja gera fleiri veggspjöld og gefa út virkilegt „underground" blað sem vekur fólk til umhugsunar um jafnrétti kynjanna. Einnig benda þau á mikilvægi þess að tala við fólk um málefni kynjanna og reyna þannig að víkka út sjóndeildarhringinn hjá ein- um í einu. Þau ætla að halda áfram að berjast með Karlahópi Femínistafé- lagsins og telja það mikilvægt bak- land fyrir sig í baráttunni. I framtíð- inni langar þau að koma femínisma á framfæri í gegnum listsköpun. vera/2. tbl./2004/17

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.