Vera - 01.04.2004, Side 20

Vera - 01.04.2004, Side 20
/ UNGT FÓLK OG JAFNRÉTTI WW' il I nA M K *n - 1 SKl á 1 mmsMir. tr* f ^ •tilÉfil Wi Íir' f 1 1 KVENLEIKI FELST í VANDVIRKNI, LÍKAMLEGU ÞRÓTTLEYSI, SÉRTÆKRI ÞEKKINGU, TILFINNINGUM, ÓSJÁLFSTÆÐI, HUG- LÆGNI, SAMVINNU OG AÐ VERA NÆRANDI EÐA SAMÚÐARFULL fyndnastir voru um leið vinsælastir í strákahópnum. í skólastofunni er algengara að drengir séu uppáhalds- nemendur kennara (Howe, 1997). Það má m.a. skýra með því að opinber (umræðu)virkni í tímum (e. public talk) er gjarnan mun meiri hjá drengjum, á meðan stelpur eru virkari í að tala saman innbyrðis (e. privat talk). Drengir fá meira af neikvæðri og jákvæðri athygli kennarans. Nýlegar rannsóknir í grunnskóla sýna að 76% af athygli kennarans fer til drengja (Lynch og Lodge, 2002). Þar sem opinber virkni þeirra er mun meiri er ekki að undra að þeir séu oft- ar fyndnir en stelpurnar og kennarinn þekki betur til þeirra. ( nýlegri íslenskri rannsókn kom þetta skýrt fram þar sem allir kennarar sem kenndu þeim tveimur bekkjum sem voru til skoðunar töldu að ákveðnir drengir væru bæði skemmtilegastir og fyndnastir (BRM,2003). Þessir drengir höfðu jafnframt sterkustu valdastöðuna af drengj- unum í hópnum. Það hefur einmitt sýnt sig í leiðtogarann- sóknum að gott er að leiðtogi hafi húmor fyrir sjálfum sér og öðrum (Ásdís Halla Bragadóttir, 2000). Því kemur ekki á HITAVEITA SUÐURNESJA vistvæn orka óvart að fyndni hafi almenn áhrif á vinsældir og valdaupp- byggingu í drengjahópum. Það virðist hins vegar ekki vera eins ráðandi þáttur í valdauppbyggingu í stúlknahópum (BRM, 2003). Fyndni, frumkvæði og virkni eru samtvinnaðir þættir. Það má þó ekki skilja þetta sem svo að allir sem eru virkir opinberlega séu líka fyndnir. Hins vegar er virknin for- senda fyrir því að einhverjir viti af þvi hvort einstaklingar eru fyndnir eða ekki. Af hverju eru stelpur ekki virkari al- mennt á opinberum vettvangi? Eins og komið hefur fram er þessi orðræða um hina undirgefnu óvirku konu margra alda gömul. Þessar gömlu hugmyndir koma skýrt fram í þeim væntingum sem gerðar eru til kynjanna í skóla. Bent hefur verið á að stelpum sé fyrst og fremst umbunað fyrir kvenleika, þ.e. að vera þægar og góðar, sýna af sér meiri þroska en drengirnir (það þýðir að þeim er hrósað fyrir að kunna að bíða eða láta í minni pokann frekar en að ströggla o.s.frv.), vera samvinnufúsar og hjálpsamar, láta lítiðfyrir sérfara og hlýða án þess að spyrja spurninga, svo eitthvað sé nefnt. Þeim er sérstaklega hælt fyrir að láta lít- ið fyrir sér fara. Hins vegar telja margir kennarar það felast í eðli drengja að vera árásargjarnir, fyrirferðarmiklir, kapps- fullir, óstýrilátir og þess vegna truflandi (Francis, 1997; Llewellyn, 1980; Robinson, 1992). Ef stelpur eru fyrirferðar- miklar, virkar og ráðandi í kennslustofunni er það oftar túlkað sem óviðeigandi hegðun eða andspyrna gegn kennaranum heldur en þegar drengir eiga í hlut (Wal- kerdine, 1990). Þar sem fyndni byggist á uppbroti í tímum, frumkvæði og virkni má segja að þessir undirbyggjandi þættir séu mun síður styrktir hjá stúlkum. 20/2. tbl. / 2004 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.