Vera - 01.04.2004, Qupperneq 33

Vera - 01.04.2004, Qupperneq 33
með að borga aðeins 10.000 þýsk mörk (um 430.000 ísl. krónur) í mútur allan þennan tíma. Mörgurn þótti við færast mikið í fang með húsakaupunum og við höfum ýmis- legt fengið að heyra í gegnum tíð- ina,” segir Vilborg og rifjar upp þegar hún fór eitt sinn á skrifstofu þýska þróunarmálaráðuneytisins í Sarajevo. „Þar hitti ég mann sem hafði unnið við þróunarstarf í Afr- íku og sagði hann mér að þeim hefði reynst svo ljómandi vel að halda kennslustundir undir skugg- sælu tré. Ég horfði á manninn í for- undran, því þegar við vorum að tala saman var 11 stiga frost í Sarajevo og ekki lauf að sjá á nokkru tré! Mér fannst þetta fáránlegt svar og varð auðvitað öskureið. Við buðum reyndar þessum ágæta manni að vera við opnun miðstöðvarinnar í Sarajevo 9. september 1999 og var hann hinn glaðasti yfir myndar- skapnum og sagðist nú skilja hvað okkur gengi til. Þegar ég kom síðan á Balkan- skrifstofu stjórnvalda í Hessen og sagði embættismönnunum þar þessa sögu, hlógu þau hjartanlega og ákváðu að kaupa hús í Tuzla í austanverðri Bosníu og gefa BISER til þess að hægt væri að koma þar á fót menntamiðstöð fyrir konur. Balkanskrifstofan hefur reynst okk- ur afar vel í gegnum tíðina, en hún hafði á tímabili mikil umsvif vegna hins mikla fjölda flóttafólks sem kom til Hessen meðan á stríðinu stóð. Mikill fjöldi flóttamanna var og er í Tuzla og eru einstæðar mæð- ur með stálpuð börn og unglinga fjölmennar. Margir flúðu þangað eftir fjöldamorðin miklu í Screbr- eniza, sem framin voru í beinni út- sendingu í júlí 1994. Þarna var því mikil þörf fyrir langtímaaðstoð. Árið 2000 fengum við vænan stryk frá ESB til reksturs miðstöðvarinnar í Tuzla og var starfsemin blómleg fyrsta árið. Þá komu yfir 4000 kon- ur í húsið og þær áttu að meðaltali þrjú til fjögur börn, svo segja má að um 16.000 manns hafi notið góðs af þjónustunni. En síðan hefur verið mikill barningur að fá fé til rekst- ursins, þó ekki sé þar um stórar upphæðir að ræða. Það kostar ekki nema þrjár milljónir íslenskra króna á ári að halda uppi líflegri starfsemi í hverju húsi, en það hefur reynst okkur erfitt síðustu ár að út- vega fé.” Enn er ótalið hús sem BISER konur keyptu með kaupleigu- samningi í sveitaborginni Travnik í Mið-Bosníu, en þann rekstur hafa sænsku samtökin Kvinna till Kvinna styrkt verulega. Þýskalands- deildin tók einnig þátt í að gera hús- ið upp en menntamiðstöðin er eini staðurinn í sýslunni (kantónunni) sem sinnir menntun kvenna. Að sögn Vilborgar er þörfin einna mest í sveitunum, því þar er staða kvenna verst og algengt að konur séu ólæs- ar. „Nú eigum við von á að fá 60.000 evrur frá þýskum stjórn- völdum og getum þá komið starf- seminni í Sarajevo og Travnik í umsóknirnar, en aðeins 10% þeirra komast í gegn, hitt fer beint í rusla- körfuna. Hvílík sóun á peningum og mannafla! Skrifstofur ESB minna mig á skýjakljúf sem hefur enga glugga og engar dyr en kannski póstkassa! Þetta er eins og geimskip, sem lifir sjálfstæðu lífi,” segir hún og kemst í ham í líkingamálinu. „Ég er ekki hissa þótt mörgum íslend- ingunt lítist ekki á að fara þarna • » ínn. Hún snýr sér svo aftur að alvör- unni og segir með þunga: „Auðvit- að er fullt af merkunr umsóknum þarna, en það er algjört happdrætti hverjar komast í gegn. Það mætti eins kasta upp krónu urn það. Mér sýnist að grasrótarsamtök hafi mjög litla möguleika á að fá styrki núorð- ið og það er ekki lengur hugsað um að styrkja starf meðal kvenna á Balkanskaga sérstaklega. I Brussel fá bara stærri hjálparstofnanir, eins og Rauði krossinn, styrki. Húsið í Sarajevo þurfti viðgerða við og síðan var ákveðið að byggja hæð ofan á það. Þar hefur verið öflug starfsemi þar til í fyrra en vonir standa til að takist að opna aftur fljótlega. ÞEGAR VIÐ SÓTTUM SÍÐAST UM TIL ESB LEITAÐI ÉG AÐST0ÐAR SEX HÁ- SKÓLAMENNTAÐRA MANNA, SEM V0RU HEILAN MÁNUÐ AÐ SETJA SAMAN UMSÓKN FYRIR 0KKUR EFTIR ÖLLUM KÚNSTARINNAR REGLUM. SKRIF- STOFUBÁKNIÐ í BRUSSEL ER 0RÐIÐ AÐ FRAMGANGSKERFI FYRIR UNGA EMBÆTTISMENN 0G STÓR RÁÐGJAFAFYRIRTÆKI... gagnið en allt er í óvissu með húsið í Tuzla,” segir Vilborg og ljóst er að hún er ekki af baki dottin þrátt fýrir að stundum sé útlitið svart. Eins og áður segir hefur verið nánast vonlaust að sækja um styrki til ESB eftir að reglur um umsóknir voru hertar og flækt- ar eftir spillingarmálið árið 2000. Um það segir Vilborg: „Þegar við sóttum síðast um til ESB leitaði ég aðstoðar sex háskólamenntaðra manna, sem voru heilan mánuð að setja saman umsókn fyrir olckur eft- ir öllum kúnstarinnar reglum. Skrifstofubáknið í Brussel er orðið að framgangskerfi fyrir unga emb- ættismenn og stór ráðgjafafyrirtæki, sem hafa það hlutverk að fara yfir Eftir að ég gerði mér grein fyrir þessu fékk ég þá hugmynd að stofna kvennamálaráðuneyti í tengslum við Evrópuráðið í Strassborg sem hefði það verkefni að úthluta 40% af því fé sem ESB ver til lýðræðis- þróunar og líknarmála. Balkan- löndin og fleiri fátæk lönd Austur- Evrópu eru ekki í ESB en þau eru í Evrópuráðinu og því er það kjörinn vettvangur til að rniðla fé til þessara svæða. Ég er sannfærð um að til þess að komast að rót mansalsvand- ans verður að vinna með konum á þeim svæðum sem kallast uppruna- lönd, þ.e. þaðan sem konurnar koma, sem eru seldar í vændi,” seg- ir Vilborg nteð sannfæringarkrafti. Þá hugmynd að aflienda kvenna- málaráðuneyti 40% af því fé sem 4 vera / 2. tbl. / 2004 / 33

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.