Vera - 01.04.2004, Blaðsíða 58
JRETTABLABg?
35
/ HA
ft»af4astfi.,iS
SF^Síafe
l»íH. ™ upp i kaffi. Ujv,'. £
.míI ............h-ísws
mNmNm «&$£? lcv ««<*.
nBrPUnffE SHXnXS,flWiiatS
wG7°b- A«íi ^MÍherb/h „
p0ft,ð,Kolaporj. JSf01 n%L*M6skasifri
S, *juteni
—
8697. P l’42> 7,Rb0P*
hefmii,
FERMINGAR UNDIRFÖT
Stakii bijóstahalddiar kr. 1.990 - 2.490
Buxui/C-strengur kr. 790
ri.ib.i-il Uival al undirlatnaði, náttfatnaði
og náttsloppum a g6ðu veiði.
Ný sending al sundboluin fiá Spáni.
Sjáumst cos
Glæsibæ, S. 588 5575
/ ÞAU SÖGÐU...
„En við á fslandi sökkvum okkur bara ofan í
sögur af því hvað konur hafa það vont í öllum
öðrum löndum en á Vesturlöndum. Það er
hálfgerður flótti frá því að takast á við vanda-
mál í eigin landi [...] Sumir hlutar jafnréttis-
baráttunnar eru komnir styttra í Suðaustur-
Asíu og sumir lengra. Jafnrétti er baráttumál
fyriröll lönd, líka ísland."
Ugla Egilsdóttir.
U-beygjan mars/apríl 2004
„Meðal aðildarlanda ESB er umtalsverður
launamunur karla og kvenna orðinn að nokk-
urskonar „náttúrulögmáli", þrátt fyrir aukna
atvinnuþátttöku og menntun kvenna, ásamt
víðtaekri löggjöf sem koma á í veg fyrir að
fólki sé mismunað á grundvelli kynferðis."
Lilja Mósesdóttir.
Morgunblaðið. 4. apríl 2004.
„En jafnvel konur sem geta beinlínis þakkað
kvennabaráttunni fyrir að vera í áhrifastöðu
sem þær hefðu annars ekki komist í, gefa kyn-
systrum sínum nú langt nef og segja að konur
eigi að komast áfram „á eigin verðleikum"."
MargrétK. Sverrisdóttir.
Fréttablaðið. 4. april 2004.
„Vissulega skiptir fagurfræðin okkur miklu
máli en þegar ungum konum er stillt upp á
svið eins og hverjum öðrum fallegum hlut
(víst), farðaðar af okkar færustu förðunar-
meisturum, búnar að vera í ströngu matarað-
haldi svo vikum skiptir, kaffibrúnar af ofnotk-
un Ijósabekkja, í háum hælum svo leggirnir
sýnist lengri, í bikiníum, í push-up brjósta-
höldurum, þá má alveg setja spurningarmerki
við hvaða fegurð er verið að velja."
Elín Valgerður Margrétardóttir.
Orðlaus.is Fegurðardraugar.
„Það væri ekki öfundsvert hlutskipti fyrir
konu í ábyrgðarstöðu að vera sér þess meðvit-
uð að hún hefði valist til starfans vegna kyns
síns en ekki hæfileika"
Reykjavíkurbréf.
Morgunblaðið 28. mars 2004.
„Og konur eiga að taka að sér verkefni á for-
sendum kvenna, treysta því að hið kvenlega
viðhorf sé verðmætt. Ekki reyna að stjórna
eins og karlar - það er nóg til af þeim i stjórn-
um."
Guðrún Pétursdóttir.
Tímarit Morgunblaðsins. 4. apríl 2004.
„Jafnvel þótt ákvörðun atvinnurekenda að
greiða kvenfólki lægri laun en körlum, ein-
göngu á grundvelli kyns þeirra, teljist brot á
lagalegum rétti einstaklinga er ekki þar með
sagt að launamunurinn sjálfur sé mannrétt-
indabrot."
Haukur Örn Birgisson.
Fréttablaðið 1. apríl 2004.
„Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir
jafnréttislög barn síns tíma. Óeðlilegt sé að
þeir sem nú hafa veitingarvaldið séu bundnir
af því að ráða konur frekar en karla, af því að
forverar þeirra hafi ekki gert það."
Morgunblaðið. 7. apríl 2004.
(Kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að
Björn Bjarnason hefði brotið gegn lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla við ráðningu hæstaréttardóm-
ara. Mat nefndarinnar var að Hjördís Hákonardóttir væri
hæfari en Ólafur Börkur Þorvaldsson sem skipaður var.)
„Skólarnir, sem að okkar mati eiga að vera
vettvangur til að efla andlegt atgervi, félags-
lega hæfni og búa unga fólkið undir fullorð-
insárin, eru nú allt í einu orðinn vettvangur
þar sem etja á skólunum saman í keppni um
hver þeirra hefur fram að færa fallegasta
kvenkyns nemandann. Þetta eru ekki skila-
boð sem nútímasamfélag á að senda ungu
fólki, hvorki stelpum né strákum."
Katrín Anna Guðmundsdóttir.
Morgunblaðið. 7. april 2004.
58/2. tbl. / 2004 / vera