Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 22
70
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
laun deildarljósmóður. Því hefir formaður rætt við viðkom-
andi starfsm. launagreiðslu á ellih. og fylgt málinu eftir með
bréfi dags. 24.03.79.
24. mars 1979.
Ljósmæðrafélag íslands vill hér með vísa til sérkjara-
samninga milli Ljósmæðrafélags íslands og fjármálaráð-
herra, er tóku gildi 1. júlí 1977 og röðun launaflokka er
ákveðin. Þar kemur fram, að deildarljósmóðir skuli vera í
12. lfl. byrjunarlauna, en eftir fjögurra ára starf, beri að
hækka laun hennar um 1 lfl. og síðan 1 lfl. eftir 15 ára
starf. f bréfl dags. 2.11.78, sem sent var öllum forraða-
mönnum sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og formönnum
bæjarstarfsmannafélaga og undirritað var af formanni
Ljósmæðrafélags íslands og fulltrúa B.S.R.B., Baldri
Kristjánssyni, kemur fram, að ljósmóður, sem vinnur ein
sem ábyrg fyrir deild, beri laun deildarljósmóður. Þær
ljósmæður, sem hér eiga hlut að máli og starfa á Elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund, hafa margar unnið við hjúkr-
unarstörf á stofnuninni um margra ára skeið.
Því vill Ljósmæðrafélag íslands fyrir hönd þeirra félaga
sinna, er vinna umrasdd störf, fara þess á leit við
forráðamenn stofnunarinnar, að Ijósmæðrum verði greidd
laun frá og með 1. apríl n.k. samkvæmt launaflokki
deildarljósmæðra.
Með jyrirjram þökk og kveðju
j.h. Ljósmœðrajélags íslands
Steinunn Finnbogadóttir jormaður
Til launadeildar
Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar.
Ekki hefir enn fengist niðurstaða í málinu, þar sem ekki
voru framundan samningar B.S.R.B. eða sérkjarasamningar
félagsins á árinu frá aðalfundi til aðalfundar, voru fulltrúar
eigi kjörnir, en síðar á árinu tilnefndi stjórnin tvær ljós-