Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
57
breytast. — Þetta sé skyndihugmynd, ekki nægilega ígrund-
uð. Og sannarlega er til umhugsunar, hvort fella eigi út úr
þjóðlífsmyndinni íslensku ljósmæðrastéttina, en bæta því
námi ofan á nám annarra stétta, sem þýðir minni menntun í
ljósmóðurfræðunum sjálfum, á sama tíma og verið er að
setja á stofn margvíslegar nýjar heilbrigðisstéttir.
En, nú í þessu umróti er mikið gleðiefni, hve Ljósmæðra-
félag fslands hefur eflst í starfí síðustu ár, og þaðan vænti ég
raunhæfra umræðna um þetta mál, — á þann veg, að ísland
eigi áfram ljósmæður sem sjálfstæða stétt.
Margrét Þórhallsdóttir. •
Eva S. Einarsdóttir ljósmóðir,
kennari við Ljósmæðraskóla tslands.
Skemmtilegt og fróðlegt þing.
Ég hef verið beðin um að segja nokkur orð um þing
ljósmæðra, sem haldið var í Osló, dagana 12.—15. júní í vor.
Þetta er í fyrsta skipti, sem ég er þátttakandi í svona móti,
og hef ég því ekki neinn samanburð, en mér fannst, sem
mjög vel hafi verið staðið að þessu þingi, allt sérlega vel
skipulagt, bæði í sambandi við fræðsluerindi og skemmtun.
Þingið hófst með guðsþjónustu, sem alltaf er hátíðleg
byrjun. Auk fróðlegra fyrirlestra, var í sambandi við þingið
sýning á ýmsum vörum til notkunar við fæðingarhjálp, svo
og mikið af bókum varðandi fagið.
f heild fannst mér þetta þing vera mjög skemmtilegt og
fróðlegt í alla staði. Það var ánægjulegt og gagnlegt að hitta
erlendu ljósmæðurnar, en ekki síður skemmtilegt að ferðast
með hópi íslenskra starfssystra sinna og kynnast þeim.
Vil ég hvetja ljósmæður til að vera með, eigi þær þess kost,
þegar fundir eru haldnir hér heima eða erlendis.
Eva Einarsdóttir.