Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 45
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
93
Taka mæðraskrár:
Félagssaga.
Fengið er fullt nafn, fæðingardagur og ár, nafnnúmer, lögheimili, dvalarstaður,
ef annar er og sími hjá viðkomandi konu. Staða konunnar er skráð, ríkisborgararétt-
ur og trúarfélag. Einnig er hjúskaparstétt skráð, svo og hvort konan er í sambýli
eður ei. Tekið er niður nafn barnsföður/maka, nafnnúmer hans, fæðingardagur og
ár, og einnig staða hans, ef konan gefur það upp.
Á þessu má ráða félagslega aðstöðu konunnar í þjóðfélaginu, og er þá hægt að
miða félagslega aðstoð og ráðleggingar við það.
Fjölskyldusaga konunnar:
Spyrjast þarf fyrir um sjúkdóma í ætt svo sem sykursýki, háþrýsting o.fl.
Fjölskyldusaga tekur yfir spurningar um sjúkdóma nánustu ættingja, vanskapanir í
ætt, og afbrigðilegar fæðingar. Einnig tekur hún yfir tvíbura í ætt konunnar.
Heilsufarssaga.
Nauðsynlegt er að vita um fyrri sjúkdóma í hjarta, lungum og nýrum. Einnig
þarf að fá vitneskju um æðasjúkdóma, svo sem háþrysting o.fl. Einnig tekur
heilsufarssaga yfir sýkingar, svo sem rauðu hundana, fengnar blóðgjafir, sérstaklega
rhesus neikvæðar konur; hvort konan hafi verið eða sé á sérstakri lyfjameðferð.
Spyrjast þarf fyrir um fyrri aðgerðir, sérstaklega á innri kynfærum og kviðarholi.
Einnig þarf að athuga hvort vansköpun sé á grind, meðfasdd eða eftir slys.
Mjög nauðsynlegt erað vita hvort konan sé haldin einhverjum sjúkdómi, svo sem
flogaveiki. Einnig þarf að fylgja vitneskja um ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum, ef
um það er að ræða.
Fœðingarsaga:
Tekin er niður dagsetning fyrri fæðinga, fæðingarstaður, lengd meðgöngu og
gangur fæðingar. Einnig er fengið kyn barnsins eða barnanna, þyngd þeirra,
núverandi heilsa og lengd brjóstagjafar. Ef barn hefurdáið, er tilgreind dánarorsök
þess og aldur þess við lát. Einnig er afbrigði fæðingar tilgreint, og getur það gefið
ábendingu um frekari rannsóknir og ákvörðun á fæðingaraðferð.
Fósturlát eru einnig skráð, hvenær konan missti fóstur og hve langt hún var
gengin þá.
Áherslu ber að leggja á eftirfarandi:
Langvarandi ófrjósemi.
Getur bent á litningagalla hjá öðru eða báðum foreldrum. Einnig getur verið um
sköpulagsgalla á kynfærum. Þaraf leiðandi eraukin hætta á utanlegsfóstri.