Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 16
64
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Skýrsla stjórnar ó aðalfundi
2. maí 1979
Á starfsárinu voru haldnir 3 félagsfundir, 8 stjórnarfundir
og árshátíð. Tvö meginverkefni hafa sett svip sinn ástarfsemi
félagsins á árinu og fyrst að nefna útgáfu stéttartalsins,
„Ljósmæður á íslandi”, en útgáfa þess er tileinkuð 60 ára
afmæli félagsins, og kaupin á Hverfisgötu 68a. Eigi að síður
hefur fjöldi mála verið til umfjöllunar og úrvinnslu hjá
félaginu.
Suðurnesjadeild stofnuð
Þann 27. október 1978 var stofnuð ný deild innan
L.M.F.Í. það var Suðurnesjadeild, stofnfundurinn var hald-
inn í Keflavík, þar voru mættar 14 ljósmæður víðs vegar af
Suðurnesjum. Undirbúningsnefndin bauð formanni og
stjórn félagsins að vera gestir þessa stofnfundar og mættu þar
auk formanns, varaformaður og ritari.
Fundurinn var vel undirbúinn, ánægjulegur og öllum er
að stóðu til sóma. Stofnun deildarinnar gefur góð fyrirheit
nm sameiginlegt framlag til félagsins og heimabyggðarinn-
ar. Formaður færði deildinni kristalskertastjaka að gjöf frá
félaginu, sem tákn um vilja til að bera ljós í bæinn. Stjórnin
fagnar þessum liðstyrk og þakkar framtakið. Stjórn deildar-
innar skipa Sólveig Þórðardóttir, formaður, Halldóra Krist-
insdóttir, Ingunn Ingvarsdóttir og Hulda Bjarnadóttir.
Alþjóðamótíð í Jerúsalem
Hulda Jensdóttir var fulltrúi L.M.F.f. á alþjóðamóti
ljósmæðra, sem haldið var í Jerúsalem 3.—8. september
1978, samkvæmt ákvörðun og ósk stjórnar á fundi þann 19.
júlí 1978. Stjórninni var það mikið kappsmál að félagið ætti