Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 51
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
99
Seinni skoðanir.
Eðlilegt er að konur komi í skoðun á fjögurra vikna fresti fram til 26.— 28. viku,
síðan aðra hverja viku fram til 36. viku meðgöngu og síðan vikulega þar til konan
fæðir.
Þyngd.
Ávallt er þyngd konunnar mæld, til að fylgjast með þyngdaraukningu. Þyngdar-
aukning er minnst fyrstu 10—12 vikurnar, en nokkuð jöfn upp frá því. Hún á að
vera ca. 300 gr. á viku.
Ef kona þyngist um meira en 2 kg á viku, á að leggja hana inn. En ef kona
þyngist um meira en 600 gr. á viku, þarf að fylgjast náið með henni.
Of mikil þyngdaraukning getur verið óeðlileg vökvasöfnun í líkamanum. 40%
kvenna fá bjúg á meðgöngu, einkum á fætur, sem stafar af auknum blóðþrýstingi
og æðaútvíkkun. Af þessum 40%, fær 1/3 kvennanna einnig bjúg í andlit og
hendur, sem gæti verið byrjandi pre-eclampsia. 10% af konum með bjúg fá
preæclampsiu.
Ytri skoðun.
Mæld er hæð legbotns frá efri brún symphysis, strax og hægt er að greina legbotn
vel. Einnig er mælt mesta ummál um kvið konunnar. Nauðsynlegt er að greina
hvort ummálsaukning konunnar samsvari meðgöngulengd. Of mikil ummálsaukn-
ing getur bent á hydramnion, molu eða fleirburameðgöngu. Of lítill vöxtur eða
enginn getur bent á fylgjuþurrð, oligohydramnion eða foetus mortuus.
Einnig er þreifað eftir stöðu fósturs á seinni mánuðum meðgöngu. Á síðustu
vikum meðgöngu er athugað hvort fyrirsætur fósturhluti er skorðaður í grindarinn-
gangi.
Fósturhljóð.
Hlustað er eftir fósturhljóðum frá 18.— 20. viku með tré-stethoscopi, en hægt er
að hlusta eftir fósturhljóðum með Doptone frá 12. viku.
Ef fósturhljóð greinast alls staðar mjög fjarlæg getur það bent á occiput posterior
stöður.
Blóðþrýstingur.
Mældur er blóðþrýstingur hjá konunni liggjandi. Eðlilegur blóðþrýstingur er
120/80. Ef blóðþrýstingur er 140/90 eða meiri er konan látin liggja í hálftíma og
mæling endurtekin. Ef blóðþrýstingur er enn 140/90 (diastóluþrýstingur er mun
mikilvægari) eða meiri, bendir það á Hypertensio og jafnvel byrjandi pre-
eclampsiu. Blóðþrýstingur laskkar oft á öðr» trimestri (12.— 28. viku) vegna aukins
æðabeðs.
Athuga þarf hvort konan hafi haft háþrýsting fyrir.