Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 53
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
101
3. Hjá konum, sem áður hafa fætt vanskapað bam.
4. Hjá konum, sem áður hafa fætt andvana barn.
5. Hjá konum, sem áður hafa gengið með 6 sinnum fram að 28. viku.
6. Hjá konum sem eru mjög feitar.
7. Hjá konum, sem hafa fjölskyldusögu um sykursýki.
8. Hjá konum, sem hafa áður misst barn viku fyrir eða eftir fæðingu.
9. Hjá konum, sem hafa hydramnion nú eða höfðu í fyrri meðgöngu.
10. Hjá konum, sem hafa vulvitis.
11. Hjá konum, sem sykurþolspróf hefur áður verið óeðlilegt hjá.
12. Ef grunur er um óeðlilega þyngd fósturs.
Grinda rmœl inga r.
Röntgenmyndatökur eru ekki gerðar fyrr en eftir 36. viku meðgöngu, til að
fyrirbyggja sköddun á fóstrinu. Geislamir geta orsakað stökkbreytingar á genum
fósturs, og jrnnnig breytt arfmynstri litninganna. Tekin er pelvimetri og yfirlits-
mynd af kvið konunnar, þannig er ha=gt að sjá í leiðinni, hvort eitthvað afbrigðilegt
sé við sköpulag fósturs, þ.e. bein þess svo og legu fósturs.
E. Grindarmæling er gerð hjá konum sem eru undir 160 cm á hæð.
2. Konum með sitjandi stöðu fósturs.
3. Ef kona er talin ganga með mjög stórt barn, þ.e. grunur um misræmi
milli fósturs og grindar.
4. Konur, sem orðið hafa fyrir skaða á grind.
Sonar.
Sonar er fyrsta og eina óskaðlega aðferðin til að sjá fóstrið, fylgjast með vexti þess
°g viðgangi og þar með að meta líðan þess á hverjum tíma.
Sonar er örbylgjutgeki. örbylgjur eru bylgjur, sem hafa hærri tíðni en mannlegt
eyra getur greint, þ.e. 16mhz. Bylgjumar, sem notaðar eru við sonargreiningu eru
2,5 mhz. Þessi bylgjulengd sameinar það að ná nasgilega djúpt niður í vefina, þ.e.
20—25 cm niður og gefa samt sæmilega skýra mynd.
örbylgjurnar eru sendar út frá tækinu um krystal, sem nefnist piezzokrystall.
Hver krystall hefur sína ákveðnu tíðni. Tækið sendir örbylgjur í púlsum (hretum),
en hlustar á milli og tekur þá við bergmálinu og breytir þannig hljóði í mynd.
Myndin eða skyggningin kemur síðan fram á skermum sonartsekisins. Hægt er að
gera ýmsar stærðarmælingar út frá þeim. Teknar eru Polaroid-myndir af skermin-
um, til að geta gert samanburð síðar.
Skoðandinn verður að hafa glögga reynslu og innsýni í sína grein, til að geta
hagnýtt sér tækið. Æfingartími fyrir mann, með staðgóða kliniska þekkingu er
talinn vera um 4—6 mánuðir.
Abendingan
1. Þar sem meðgöngulengd er óörugg.
2. Stærð legs svararekki til menostasis.
3. Grunurer um placenta praevia.
4. Grunur er um fleirburameðgöngu.