Ljósmæðrablaðið - 01.11.1979, Blaðsíða 24
72
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
upphæð, sem veitt er nú samkvæmt síðustu fjárlögum.
Erfitt er að sætta sig við, að þeir aðilar úr elstu stétt
íslenskra kvenna í opinberu starfi, er gegnt hafa svo
mikilvægum störfum sem ljósmæðrastörf eru og ekki síst
voru við hinar örðugustu aðstæður í hinum dreifðu
byggðum landsins, þurfi á efri árum að standa frammi
fyrir slíku vanmati þjóðfélagsins á lífsstarfi sínu.
Virðingarfyllst,
Steinunn Finnbogadóttir, formaður.
Til fjárveitinganefndar
ALÞINGIS
Það er mikið ánægjuefni að segja frá því hér, að þarna
áttu hlut að máli 32 ljósmæður og varð fjárveitinganefnd við
þessari beiðni félagsins, þannig að nú eru öll þessi nöfn inni
á fjárlögum ársins 1979 og þeim veitt hverri fyrir sig 190
þúsund krónur á ári og greiðist sem lífeyrir mánaðarlega.
Upphæðin, sem þarna er um á ræða, eru rúmar 6 milljónir
króna. Þetta þýðir áframhaldandi greiðslu á fjárlögum. Þessi
greiðsla er komin til framkvæmda frá síðustu áramótum.
Ýmis bréf og fyrirspurnir bárust félaginu m.a. frá Kvenfé-
lagasambandi Islands, Bandalagi kvenna í Reykjavík, Land-
vernd, B.S.R.B. og einstökum ljósmæðrum víðs vegar um
land, svo og bréf frá Sigurði Magnússyni próf. og Gunnari
Biering, barnalækni. Öll þessi mál voru rædd einu sinni eða
oftar á stjórnarfundum og formanni falið að svara viðkom-
andi aðilum.
Ljósmæðratalið hefir verið öðru fremur í brennidepli hjá
félaginu og til umfjöllunar á öllum stjórnarfundum, auk þess
sem ritnefnd og formaður hefir á síðasta starfsári haldið 25
fundi. Hin mörkuðu spor voru, að ritið kæmi út á afmælisár-
inu 1979 og bæri heitið Ljósmæður á íslandi. Verkinu stýrir
Björg Einarsdóttir og auk þess hefir Helga Þórarinsdóttir,
sagnfræðingur, ritað 60 ára sögu L.M.F.Í.