Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Side 6
46
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Samsjón eða samstilling augnanna er að þróast uns barn er 5—6
ára. Er hér um heilastarfsemi að ræða, sem beinir sjónás beggja
augna að sama marki — nefnt fusion á erlendu máli og stuðlar að
samruna tveggja mynda i heilanum, sin frá hvoru auga. Meðan
þessi taugaviðbrögð eru ekki nægilega þroskuð, geta börn skotið
augum í skjálg, einkum þegar þau eru þreytt. Ef augun eru rang-
stæð að staðaldri eftir 6 mánaða aldur, má telja öruggt að barnið
sé rangeygt og hefur samsjón þá ekki þroskast. Þarf þá að leita
með barnið til augnlæknis, sem gerir á því viðeigandi rannsóknir.
Þvi fyrr sem rangeygt barn er tekið til meðferðar, þeim mun meiri
líkur eru fyrir því að það geti þroskað samsjón og að augu geti
unnið eðlilega saman. Það er því áríðandi að draga ekki að fara
með rangeygt barn til augnlæknis. Rangeygð læknast ekki af
sjálfu sér.
Öll höfum við tekið eftir að börn gráta ekki með tárum fyrr en
þau eru nokurra vikna. Ef augnslímhúð nýfædds barns aftur á
móti verður fyrir ertingu, streyma tár úr augunum eins og hjá full-
orðnum. Stundum kemur fyrir að táragöng opnast ekki niður í
nefhol fyrr en barn er nokkurra vikna eða mánaða gamalt. Oft á
þetta aðeins við um annað auga. Einkenni eru tárarennsli niður á
kinn og augnalok klistrúð saman eftir svefn. Þar sem tárin geta
ekki runnið sína eðlilegu leið niður í nefhol safnast slím í tárapok-
ann og bakteríugróður getur náð sér þar niðri. Ef þrýst er með
fingurgóm á húðina yfir tárapokanum leitar gröftur og slím út úr
tárasmugunni í innri augnakrók. Þegar svo er komið þarf að stíla
táragöngin. Opnast þar með leið niður í nefhol. Er það gert í
svæfingu og um skjótan bata er venjulega að ræða. Ef ekki er
bólga í tárapokanum er ráðlagt að bíða með stílun uns barn er
5—6 mánaða, þar eð táragöng niður í nef opnast oft af sjálfu sér
þó þau séu stifluð við fæðingu.
Gera þarf lauslega augnskoðun hjá öllum börnum meðan þau
dveljast á fæðingardeildini. Ganga þarf úr skugga um að augu séu
rétt sköpuð. Ríkari áherslu ber að leggja á slíkt, ef um þróunar-
galla er að ræða eða vanskapnað á einhverju líffæri. Erfitt getur
verið að opna augu ungbarna. Þau eru oftast með lokuð augu og
hringvöðvinn í augnalokum er mjög kraftmikill og barnið streitist
á móti og herpir augnalokin saman. Lítið af áhöldum þarf til
skoðunar: vasaljós, augnspegil og gott er að hafa stækkunargler.