Ljósmæðrablaðið - 01.07.1981, Blaðsíða 20
60
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
og fundarmönnum í hverju þessi tímafreka samantekt lægi. Lét
hún i ljós áhyggjur yfir því, að hún hefði lítið getað sinnt verkinu í
september vegna annarrar vinnu.
Ákveðið var að ritnefnd mætti ásamt Steinunni og Guðbjörgu
heima hjá ritstjóra þann 27. þ.m. og yrði þar litið sameiginlega
yfir starfið.
Af ritnefndarfundi 19. mars er það helst til frétta, að Steinunn
sagði frá viðræðum sem hún hefði átt við Ingvar Gíslason
menntamálaráðherra og jákvæðum undirtektum ráðherra við
beiðni hennar um styrk til Stéttartals ljósmæðra, staðfest með
bréfi 12. mars 1981, svohljóðandi:
„Fjárveitinganefnd Alþingis hefir undanfarin ár átt hlut að því
að menntamálaráðuneytið hefir afhent stjórn Ljósmæðrafélags
fslands fjárupphæð til þess að styrkja útgáfu ritsins Ljósmæður á
íslandi.
Útgáfa verksins hefir dregist hryggilega lengi. En nú liður að
lokaþættinum og því leyfi ég mér enn einu sinni fyrir hönd félags-
ins og útgáfustjórnar að fara þess á leit við yður, herra mennta-
málaráðherra, að þér sýnið þann skilning og vinsemd að veita
okkur nokkurn styrk, t.d. 5—7 þúsund krónur.
Virðingarfyllst,
Steinunn Finnbogadóttir. ”
Þá upplýsti Steinunn að Lúther Jónsson f.h. prentsmiðjunnar
Odda, hefði spurst fyrir um hvað LMFÍ hyggðist fyrir um útgáf-
una og samning félagsins frá 18. okt. 1978, um að prentsmiðjan
sæi um prentunina, og svaraði hún því, að vilji félagsins í því efni
væri óbreyttur, en svo sem kunnugt er liggur nú fyrir um 600
áskrifendur, og á grundvelli þeirra byggist samningur féalgsins við
prentsmiðjuna.
Ritnefnd ræddi alla hugsanlega möguleika sína til þess að flýta
verkinu og gerði ráðstafanir þar að lútandi, m.a. þær að óska eftir
vinnuframlagi hjá þeim Helgu Þórarinsdóttur og Önnu Sigurðar-
dóttur um uppröðun mynda í verk sín og frágang til prentsmiðju.
Á ritnefndarfundi 29. apríl ’81, lá fyrir svar frá menntamála-
ráðherra varðandi áðurnefnt bréf dags. 12. mars, þar sem leitað